09.07.2012
Framkvæmda- og hafnarráð - 130
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 130130. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
9. júlí 2012 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Bergvin Oddsson, Íris Róbertsdóttir, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Guðmundur Þ B Ólafsson, Ólafur Þór Snorrason.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
1. 201207015 - Eldheimar sýningarskáli, bygging og eftirlit
Óskað var eftir tilboðum í 1. áfanga Eldheima, jarðvinna og mannvirki, með útboðsauglýsingu í dagblöðum og voru tilboð opnuð á Skrifstofu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmanneyjabæjar að Tangagötu 1 900 Vestmannaeyjum kl 14.00 þann 28 júní 2012.
Fimm tilboð sem bárust í verkið og voru þau eftirfarandi ásamt kostnaðaráætlun
Smíðandi ehf. 151.495.515
Vörðufell ehf. 124.690.406
Eðalbyggingar ehf 114.755.178
Steini og Olli ehf 109.995.113
Steypustöð Vestmannaeyja ehf 99.842.001
Kostnaðaráætlun TPZ 114.699.210
Ráðið samþykkir að fela framkvæmdastjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda og leggur áherslu á að verkáætlun liggi fyrir áður en gengið verður til samninga, eins og kveðið er á um í útboðsgögnum.
2. 201203062 - Útboð á sorphirðu og rekstri söfnunarstöðvar fyrir sorp.
Ólafur Þór Snorrason greindi frá útboði á sorphirðu og sorpförgun í Vestmannaeyjum 2012-2015. Fram kom að tilboð verða opnuð 23.júlí nk. en verkin voru boðin út á EES svæðinu.
3. 201206014 - Stöðuleyfi fyrir veitingavagn
Frestað erindi frá 129. fundi. Hallgrímur Rögnvaldsson sækir um stöðuleyfi fyrir veitingavagn á hafnarsvæðinu.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti tímabundið stöðuleyfi á veitingavagni sunnan við Tangagötu, til móts við Tangagötu 7 en vísar erindinu til afgreiðslu Umhverfis- og skipulagsráðs.
4. 201109006 - Hafnasambandsþing 2012
Sveinn R. Valgeirsson kynnti drög að dagskrá þings Hafnasambands Íslands sem haldið verður í Vestmannaeyjum 20-21. september n.k.
Ráðið samþykkir að fela formanni ráðsins ásamt forstöðumanni Vestmannaeyjahafnar og framkvæmdastjóra að vinna að málinu í samráði við Hafnasamband Íslands.
5. 201207031 - Hafnarreglugerð fyrir Vestmannaeyjahöfn
Fyrir lá erindi frá Hafnasambandi Íslands frá 20.júní sl. þar sem fjallað var um rekstrarform hafna og greint frá minnisblaði sem unnið var á vegum Innanríkisráðuneytis um skilyrði sem uppfylla þarf til að höfn teljist "höfn með hafnarstjórn í eigu sveitarfélags". Fyrir lágu drög að breytingu á hafnarreglugerð fyrir Vestmannaeyjahöfn.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi drög að hafnarreglugerð fyrir Vestmannaeyjahöfn og felur framkvæmdastjóra að fylgja málinu eftir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00



