28.06.2012

Bæjarstjórn - 1464

 
 
Bæjarstjórn Vestmannaeyja - 1464. fundur
 
haldinn í Einarsstofu safnahúsi,
28. júní 2012 og hófst hann kl. 18.00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson, Elliði Vignisson, Páley Borgþórsdóttir, Páll Marvin Jónsson, Páll Scheving Ingvarsson, Kristín Jóhannsdóttir og
Jórunn Einarsdóttir.
 
Fundargerð ritaði:  Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
 
Leitað var eftir því að taka inn með afbrigðum fyrsta mál á dagskrá fundarins, afleiðingar fyrir Vestmannaeyjar ef fyrirliggjandi kvótafrumvarp verður að lögum var það samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Einnig var leitað eftir því að taka inn með afbrigðum fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs nr. 165 frá 27. júní s.l. var það samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
 
Dagskrá:
 
1.
201106006 - Afleiðingar fyrir Vestmannaeyjar ef fyrirliggjandi kvótafrumvörp verða að lögum.
Ályktun bæjarstjórnar Vestmannaeyja:
Á seinustu árum hefur bæjarstjórn Vestmannaeyja ítrekað varað stjórnvöld við þeim skaða sem boðaðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu myndu hafa. Rökstuddum ábendingum hefur verið mætt með tómlæti eða jafnvel hroka og hvergi vottað fyrir vilja til að vinna með sveitarstjórnum, sjómönnum, verkalýðsfélögum eða nokkrum öðrum sem lagt hafa fram rökstuddar viðvaranir hvað varðar skaðlegar hugmyndir um breytingar á stjórn fiskveiða. Hins vegar hafa þingmenn og hlaupaliðar ríkisstjórnar mætt einlægum viðvörunum með ásökunum um sérhagsmunagæslu og hræðsluáróður.


Þessi meinti hræsluáróður birtist nú Eyjamönnum sem helkaldur veruleiki. Um 13% starfsmanna Vinnslustöðvarinanr missa senn vinnu sína vegna þessara ákvarðana sem varað var við. 41 fjölskylda missir lífsviðurværi sitt. Framtíðin er dekkri en hún annars væri og nánast má öruggt telja að uppsagnir Vinnslustöðarinnar séu bara fyrsti uppsagnardóminókubburinn sem ríkisstjórnin velti yfir landsbyggðina.

Bæjarstjórn ítrekar áður framkomnar og rökstuddar ábendingar sínar. Af einlægni er þess óskað að þingmenn sameinist í skilningi á því að rangar ákvarðanir hafa verið teknar og enn er stefnt í verri átt.

Bæjarstjórn lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu þeirra fjölskyldna sem nú missa viðurværi sitt og lýsir ábyrgð á hendur þeim stjórnvöldum sem hingað til hafa skellt skollaeyrum við einlægum ábendingum þeirra sem til þekkja. Þessum fjölskyldum er bent á að hafa samband við þingmenn VG, Samfylkingar og Hreyfingarinnar. Þeirra er ábyrgðin á gjörningnum og þeirra er valdið til að leiðrétta rangindin.

Gunnlaugur Grettisson
Elliði Vignisson
Páley Borgþórsdóttir
Páll Marvin Jónsson

Ályktunin var samþykkt með fjórum atkvæðum, Páll Scheving Ingvarsson, Jórunn Einarsdóttir og Kristín Jóhannsdóttir sátu hjá.
 
2.
201205089 - Helga B. Ólafsdóttir sækir um árs leyfi frá störfum sem varabæjarfulltrúi og formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja frá og með 1. júlí 2012.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum að veita Helgu B. Ólafsdóttir leyfi frá nefndarstörfum frá og með 1. júlí 2012.
 
3.
201006073 - Kosning forseta bæjarstjórnar, varaforseta og skrifara.
a. Gunnlaugur Grettisson var kosinn forseti bæjarstjórnar með sjö samhljóða atkvæðum.
b. Elliði Vignisson var kosinn varaforseti bæjarstjórnar með sjö samhljóða atkvæðum.
c. Skrifarar bæjarstjórnar voru kosnir Jórunn Einarsdóttir og Páley Borgþórsdóttir og til vara Páll Scheving Ingvarsson og Páll Marvin Jónsson, var það samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.
 
4.
201006074 - Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.
Bæjarráð

Aðalmenn:
Páley Borgþórsdóttir, formaður
Páll Scheving Ingvarsson, varaformaður
Páll Marvin Jónsson

Varamenn:
Gunnlaugur Grettisson
Elliði Vignisson
Jórunn Einarsdóttir

Fjölskyldu- og tómstundaráð

Aðalmenn:
Páll Marvin Jónsson, formaður
Jórunn Einarsdóttir, varaformaður
Sigurlaug Böðvarsdóttir
Jarl Sigurgeirsson
Sigurhanna Friðþórsdóttir

Fjölskyldu- og tómstundaráð:

Varamenn:
Hildur Zoega
Guðlaugur Friðþórsson
Jóhanna Njálsdóttir
Hrönn Harðardóttir
Guðjón Rögnvaldsson

Framkvæmda- og hafnarráð

Aðalmenn:
Arnar Sigurmundsson, formaður
Stefán Ó. Jónasson, varaformaður
Íris Róbertsdóttir
Bergvin Oddsson
Jón Árni Ólafsson

Varamenn:
Þorbjörn Víglundsson
Sigurjón Ingvarsson
Ragnar Óskarsson
Guðmundur Huginn Guðmundsson
Margrét Rós Ingólfsdóttir

Fræðslu- og menningarráð

Aðalmenn:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður
Páll Scheving Ingvarsson, varaformaður
Díanna Þyrí Einarsdóttir
Elsa Valgeirsdóttir
Trausti Hjaltason

Varamenn:
Elliði Vignisson
Björgvin Eyjólfsson
Sigurlaug Böðvarsdóttir
Elís Jónsson
Hlynur Vidó Ólafsson

Umhverfis- og skipulagsráð

Aðalmenn:
Gunnlaugur Grettisson, formaður
Kristín Jóhannsdóttir, varaformaður
Hörður Óskarsson
Drífa Kristjánsdóttir
Pétur Fannar Hreinsson

Varamenn:
Valur Bogason
Björgvin Eyjólfsson
Margrét Rós Ingólfsdóttir
Hörður Þórðarson
Þorvaldur Ásgeirsson

Ofangreindir nefndarmenn voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
 
5.
201010070 - Fundargerðir Náttúrustofu Suðurlands frá 21. júní s.l.
Fundargerðin var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
 
6.
201206013F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 165
Liður 1 var samþykktur með sex atkvæðum, Jórunn Einarsdóttir sat hjá.
Liður 2 var samþykktur með sex atkvæðum, Jórunn Einarsdóttir sat hjá.
Liður 10 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liðir 3-9 og 11 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
 
7.
201205010F - Fjölskyldu- og tómstundaráð nr. 110 frá 23. maí s.l.
Liðir 1-3 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
 
8.
201206002F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja nr. 128 frá 4. júní s.l.
Liðir 1-3 voru samþykktir með sex atkvæðum einn bæjarfulltrúi var fjarverandi.
 
9.
201206001F - Bæjarráð Vestmannaeyja nr. 2934 frá 5. júní s.l.
Liður 1 var samþykktur með sex atkvæðum, Jórunn Einarsdóttir sat hjá við afgreiðslu.
Liður 2 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 3 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 4 samþykktur með fimm atkvæðum, Kristín Jóhannsdóttir sat hjá og Jórunn Einarsdóttir greiddi atkvæði á móti.
Liður 5 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 7 var samþykktur með sex atkvæðum og Páll Marvin Jónsson sat hjá.
Liður 8 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
 
10.
201206004F - Fjölskyldu- og tómstundaráð nr. 111 frá 6. júní s.l.
Liðir 1 og 2 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
 
11.
201206005F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja nr. 163 frá 6. júní s.l.
Liðir 1-9 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
 
12.
201206007F – Fræðslu og menningarráð nr. 248 frá 13. júní s.l.
Liðir 1-8 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
 
13.
201206009F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja nr. 164 frá 21. júní s.l.
Liður 3 var samþykktur með sex atkvæðum, Jórunn Einarsdóttir sat hjá.
Liðir 1,2 og 4-14 voru samþykktir með sex atkvæðum Jórunn Einarsdóttir sat hjá.
 
14.
201206008F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja nr. 129 frá 22. júní s.l.
Liðir 1-6 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
 
 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19.20
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159