28.06.2012

Bæjarráð - 2935

 
 
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2935. fundur
 
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
28. júní 2012 og hófst kl. 12.00
 
 
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Páll Marvin Jónsson og
 Elliði Vignisson.
 
Fundargerð ritaði:  Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
 
 
 
Dagskrá:
 
1.
200712123 - Kauptilboð í 2.- 4. hæð Ægisgötu 2.
Bæjarráð samþykkir kauptilboðið með því skilyrði að tafarlaust verði ráðist í endurbætur á ytrabyrði hússins. Vestmannaeyjabær mun engan þátt taka í endurbótum á húsinu ef frá er talin hlutdeild vegna eignarhluta Vestmannaeyjabæjar á fyrstu hæð þar sem fyrirhugað er að sinna sjávarrannsóknum og vera með fiska- og náttúrugripasafn..
 
2.
1206114 - Lundaveiði 2012
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu í umhverfis- og skipulagsráði Vestmannaeyja.
 
3.
201204052 - Kjörskrárstofnar vegna forsetakosninga 30. júní 2012
Bæjarráð hefur samið kjörskrá vegna forsetakosninga 30. júní 2012 á grundvelli kjörskrárstofns Þjóðskrár.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita kjörskrána sbr. 2. mgr. 24. gr. kosningalaga.
 
4.
201206100 - Fjárlaganefnd breytir áherslum sínum við fjárlagagerð
 
5.
201206090 - Til umsagnar rekstrarleyfi til sölu gistingar fyrir gistihúsið Hamar.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
6.
201206097 - Til umsagnar umsókn Guðrúnar Helgu Bjarnadóttur um heimagistingu að Hólagötu 42
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um heimagistingu að Hólagötu 42 svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
7.
200708078 - Samningamál lögð fyrir bæjarráð
Afgreiðsla samningamáls er færð í sérstaka samningamálafundargerð.
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.05
 
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159