27.06.2012

Umhverfis- og skipulagsráð - 165

 
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 165. fundur haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, 27. júní 2012 og hófst hann kl. 12:00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Björgvin Eyjólfsson og Sigurður Smári Benónýsson.
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
 
Dagskrá:
 
1. 201110163 - Aðalskipulagsbreyting - Hásteinsgryfja/íþróttasvæði.
Skipulagstillagan var auglýst frá 4 maí til 15 júní 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Á kynningarferlinu bárust tvær athugasemdir og er gert grein fyrir þeim í greinargerð. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002 - 2014 lögð fram ásamt drögum að greinargerð vegna athugasemda.
 
Afgreiðsla:
Umhverfis- og skipulagsráð leggur til að gerðar verði eftirfarandi breytingar í kjölfar athugasemda:
-Í skipulagskilmála fyrir reit U-2 Íþróttasvæði við Hástein verði sett ákvæði um hljóðvarnir á mótum tjaldsvæðis og Áshamars.
 
Ráðið samþykkir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi með ofangreindum breytingum og í samræmi við 1. mgr. 32.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
 
Umhverfis- og skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að reglur um tjaldsvæði á íþrótta- og útivistarsvæði við Hástein dags. 7.4.2010 verði afgreiddar af bæjarstjórn, tilkynntar til lögreglu og birtar almenningi í samræmi við 3. m.gr. 4. gr. reglugerðar um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007.
 
Ráðið felur Skipulagsfulltrúa að svara innsendum athugasemdum í samræmi við framlagða greinargerð skipulagsráðgjafa.
 
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
2. 201203025 - Deiliskipulag íþrótta-og útivistarsvæðis, breytt deiliskipulag
Skipulagstillagan var auglýst frá 4 maí til 15 júní 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Á kynningarferlinu bárust tvær athugasemdir og er gert grein fyrir þeim í greinargerð. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein lögð fram ásamt drögum að greinargerð vegna athugasemda.
 
Afgreiðsla:
Umhverfis- og skipulagsráð leggur til að gerðar verði eftirfarandi breytingar í kjölfar athugasemda:
1. Í skipulagsskilmála verði bætt ákvæði um að varnaraðgerðir vegna hrunhættu verði einungis heimilar innan lóðamarka hótelsins.
2 . Á skipulagsuppdrátt verði sett inn hljóðmön á mótum tjaldsvæðis og Áshamars jafnframt verði kveðið á um hljóðvarnir í skilmálum.
3. Í mótvægisaðgerðir gegn hrunhættu verði sett á kvöð um að bannað sé að nota sprengiefni við bygginu hótelsins.
4 . Í byggingarleyfi hótels verði sett inn ákvæðið að óheimilt sé að nota sprengiefni og að umgengni við fornleifar verði í samræmi við umsögn minjavarðar Suðurlands.
 
Ráðið samþykkir breytingartillögu deiliskipulags með ofangreindum breytingum og í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
 
Ráðið felur Skipulagsfulltrúa að gera breytingar á skipulagsgögnum og svara innsendum athugasemdum í samræmi við framlagða greinargerð skipulagsráðgjafa.
 
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
3. 201206086 - Vestmannabraut 28 fyrirspurn varðandi stækkun húsnæðis.
(10 mál frá 164 fundi - frestað erindi)
Magnús Bragason óskar eftir afstöðu ráðsins til stækkunar á hótelbyggingu sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið óskar eftir að lóarhafi skili inn breytingartillögu deiliskipulags sbr. 43.1 gr. skipulagslaga. Innsend gögn skulu vera í samræmi við ákvæði skipulagslaga og framlagt minnisblað skipulags-og byggingarfulltrúa.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
 
 
4. 201206111 - Bárustígur 1. Umsókn um auglýsingarskilti.
Páll Zóphóníasson f.h. eigenda m.hl. 218-2607 sækir um leyfi fyrir auglýsingaskiltum sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
 
 
5. 201206098 - Fiskmarkaður Vestmannaeyja. Umsókn um byggingarleyfi
Páll Zóphóníasson f.h. Fiskmarkaðs Vestmannaeyja hf. sækir um leyfi fyrir stoðveggjum í lóðarmörkum sbr. meðfylgjandi gögn.
Fyrir liggur umsögn Framkvæmda- og hafnarráðs dags. 22.6.2012 Afgreiðsla:
Afgreiðsla:
Ráðið tekur undir áhyggjur fh-ráðs varðar útkeyrslu úr porti til vesturs. Ráðið hafnar erindinu og óskar eftir nýjum gögnum.
 
 
6. 201206112 - Fyrirspurn varðandi nýbyggingu Kirkjuvegi 66
Þórður Svansson óskar eftir afstöðu ráðins til byggingar íbúðarhúsnæðis á lóð sinni við Kirkjuveg 66 sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið lítur jákvætt á erindi umsækenda og felur skipulags-og byggingarfulltrúa framgang erindis.
 
 
7. 201206101 - Skólavegur 12. Umsókn um sólpall, girðingar og breytingar á lóð.
Guðmar Weihe Stefánsson sækir um leyfi fyrir girðingum og breytingum á lóð sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið. Allar framkvæmdir á lóð og í lóðarmörkum skulu vera í samræmi við gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
 
 
8. 201206110 - Flatir 19. Umsókn um byggingarleyfi
Anna Margrét Hauksdóttir f.h. Ísfells sækir um leyfi fyrir gluggabreytingum sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 26.6.2012.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
 
 
9. 201206103 - Söguskilti - Heimagata, Landakirkja, Eldfell.
Kristín Jóhannsdóttir f.h. Vestmannaeyjabæjar sækir um leyfi fyrir skiltum á gönguleiðum sbr. meðfylgjandi gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið fyrir sitt leyti. Ráðið leggur áherslu á vandaðan frágang og að skilti verði feld að umhverfi eins og kostur er.
 
 
10. 201206046 - Umferðarmál.
Umferðarmál - hringkeyrsla og hraðahindrun við gatnamót Bárustígur/Strandvegur.
Afgreiðsla:
Með vísan í deiliskipulag miðbæjar samþykkir ráðið umferðarbeytingar fyrir sitt leyti. Ráðið felur skipulags-og byggingarfulltrúa framgang erindis.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
 
11. 1206113 - Hásteinsvegur 21. Umsókn um lóð
Sigurður G Þórarinsson sækir um byggingarlóð við Hásteinsveg 21 sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 31. des. 2012.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:10
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159