22.06.2012

Framkvæmda- og hafnarráð - 129

 
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 129. fundur
 
 
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
föstudaginn 22. júní 2012 og hófst hann kl. 15:00
 
 
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Bergvin Oddsson, Margrét Rós Ingólfsdóttir, Þorbjörn Víglundsson, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Ólafur Þór Snorrason.
 
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
 
Sigurður Smári Benónýsson skipulags- og byggingarfulltrúi sat fundinn undir 4-6.máli.
 
Dagskrá:
 
1. 201206055 - Bryggjudagur 2012
Fyrir lá erindi frá Handknattsleiksdeild ÍBV vegna bryggjudags 2012 dags. 14.júní 2012. Óskar Handknattsleiksdeild ÍBV eftir áframhaldandi styrk Vestmannaeyjahafnar vegna þessa verkefnis.
Ráðið samþykkir að veita handknattleiksdeild ÍBV íþróttafélags 300.000 kr. styrk vegna Bryggjudags sem haldinn verður 21. júlí 2012.
 
2. 201205034 - Bryggjustæði smábáta
Sveinn R Valgeirsson kynnti ástand og fyrirhugaðar breytingar á bryggjustæðum smábáta. Ljóst er að öryggismálum á álbryggjum norðan Brattagarðs er ábótavant og Vestmannaeyjahöfn getur ekki tekið ábyrgð á bryggjum sem ekki eru í eigu hafnarinnar.
Ráðið mun funda með eigendum umræddra álbryggja kl. 17.00 í dag þar sem farið verður yfir ástand þeirra og sameiginlega hagsmunamál. Síðar verður fundað með fulltrúum smábátafélagsins Farsæls um sorpmál og fleiri samskiptamál.
 
3. 201206078 - Hafnarstæði fyrir 6 sæketti og einn bát
Fyrir lá erindi frá Hólmgeiri Austfjörð og Jóhönnu Ingu Jónsdóttur dags. 18.júní 2012 vegna aðstöðu fyrir sex sæketti og einn bát í tengslum við útleigu á þessum tækjum.
Ráðið tekur jákvætt í erindið og felur Sveini Rúnari Valgeirssyni að ræða við bréfritara um staðsetningu og fyrirkomulag.
 
4. 201206014 - Stöðuleyfi fyrir veitingavagn
Hallgrímur S Rögnvaldsson og Wenyi Zeng sækja um stöðuleyfi fyrir veitingagám á sunnan við Bása sbr. innsend gögn. Óskar Umhverfis- og skipulagsráð eftir afstöðu ráðsins.
Ráðið frestar að taka afstöðu til erindis til næsta fundar en þá munu liggja fyrir nánari upplýsingar m.a. vegna umferðarmála.
 
5. 201205042 - Deiliskipulag Strandvegi 102, hafnarsvæði H-1
Fyrir lá lýsing til umsagnar á deiliskipulagi á svæði H-1, Strandvegur 102 og nágrenni.
Ráðið samþykkir lýsinguna fyrir sitt leyti en leggur áherslu á að athafnasvæði við bryggjukanta og annað það sem fylgir hafnarstarfseminni verði ekki skert.
 
6. 201206098 - Fiskmarkaður Vestmannaeyja. Umsókn um byggingarleyfi
Fyrir lá umsókn frá Fiskmarkaði Vestmannaeyja um leyfi til að girða af lóð Fiskmarkaðsins í samræmi við innsend gögn. Óskað er eftir afstöðu ráðsins.
Ráðið samþykkir erindið fyrir sitt leyti en vekur athygli á að skoða þarf betur staðsetningu á útkeyrslu, með tilliti til umferðaröryggis og vísar erindinu til Umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16.30
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159