22.06.2012

Fjölskyldu- og tómstundaráð - 112

 
 
 
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 112. fundur
 
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
föstudaginn 22. júní 2012 og hófst hann kl. 13:00
 
 
Fundinn sátu:
Helga Björk Ólafsdóttir, Jórunn Einarsdóttir, Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, Jarl Sigurgeirsson, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Jón Pétursson, Guðrún Jónsdóttir, Margrét Rós Ingólfsdóttir, Lísa Njálsdóttir.
 
Fundargerð ritaði: Margrét Rós Ingólfsdóttir,
 
 
 
Dagskrá:
 
1. 201201034 - Sískráning barnaverndarmála 2012
Sískráning barnaverndartilkynninga maí.
Í maí bárust 16 tilkynningar vegna 15 barna. Þar af voru tilkynningar vegna ofbeldis gegn börnum 8 talsins og 8 vegna áhættuhegðunar barna. Mál 12 barna af 16 voru til frekari meðferðar.
 
 
2. 200704150 - Fundargerð barnaverndar fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð
Undir þessum lið er fjallað um öll erindi sem falla undir barnavernd og eru trúnaðarmál.
Fundargerð barnaverndar er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
 
 
3. 200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
 
 
4. 201206071 - Þjóðhátíð 2012
Umræður um Þjóðhátíð 2012
Fjölskyldu- og tómstundaráð sem fer með hlutverk barnaverndarnefndar, vill brýna fyrir foreldrum barna yngri en 18 ára, að heimila þeim ekki að fara á útihátíð án fylgdar og eftirlits lögráða og ábyrgðs aðila. Ráðið beinir því til forsvarsmanna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum að leita allra leiða til að koma í veg fyrir að ólögráða börn (undir 18 ára) komi ein og eftirlitslaus á Þjóðhátíð. Framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs er falið að undirbúa bakvaktir barnaverndar á Þjóðhátíð eins og hafa verið undanfarin ár.
 
 
5. 200806010 - Forvarnir fjölskyldu- og fræðslusviðs
Beiðni um styrk vegna forvarnarverkefnis frá Foreldrafélögum GRV og FÍV.
Borist hefur beiðni um styrk vegna málþings um tölvufíkn sem er fyrirhugað að halda hér í Vestmannaeyjum í haust. Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkir að styrkja verkefnið um 60.000 kr.
 
 
6. 201206067 - Beiðni um styrk vegna stofnunar 0% hóps
Beiðni um styrk
Ráðið vísar málinu til forvarnarteymis Vestmannaeyjabæjar.
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00
 
 
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159