21.06.2012

Umhverfis- og skipulagsráð - 164

 
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 164. fundur haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, fimmtudaginn 21. júní 2012 og hófst hann kl. 12:00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Sigurður Smári Benónýsson og Ólafur Þór Snorrason.
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
Hörður Óskarsson vék af fundi í 4 máli 
 
Dagskrá:
 
1. 201110163 - Aðalskipulagsbreyting - Hásteinsgryfja/íþróttasvæði.
Skipulagstillagan var auglýst frá 4 maí til 15 júní 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Eitt athugasemdabréf barst við auglýstri tillögu dags. 14.6.2012.
Einnig barst ósk um framlengingu á athugasemdafresti.
Afgr. ráðs:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og samþykkir að framlengja frest til að skila inn athugasemdum til kl. 12:00 þann 22.6.2012.
 
 
2. 201203025 - Deiliskipulag íþrótta-og útivistarsvæðis, breytt deiliskipulag
Skipulagstillagan var auglýst frá 4 maí til 15 júní 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Eitt athugasemdabréf barst við auglýstri tillögu dags. 14.6.2012.
Einnig barst ósk um framlengingu á athugasemdafresti.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og samþykkir að framlengja frest til að skila inn athugasemdum til kl. 12:00 þann 22.6.2012.
 
 
3. 201201043 - Miðstræti 20, breytt deiliskipulag
Skipulagstillagan var auglýst frá 4 maí til 15 júní 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Engar athugasemdir barust við auglýstri tillögu.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir skipulasgbreytingu sbr. auglýst tillaga.
Ráðið vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar sbr. 41 gr. skipulagslaga.
 
 
4. 201202075 - Friðarhöfn 160712. Umsókn um stækkun lóðar.
(13 mál frá 155 fundi - frestað erindi)
Hallgrímur Júlíusson f.h. Net ehf. sækir um stækkun lóðar sbr. innsend gögn. Áætlað er að stækka atvinnuhúsnæði um 450m2 og auka við athafnasvæði lóðar.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir stækkun lóðar. Nýtt lóðarblað er í samræmi við deiliskipulag svæðis.
 
 
5. 201111092 - Strandvegur 54. Umsókn um leyfi auglýsingaskilti
(2 mál frá 163 fundi - frestað erindi)
Magnús Benónýsson f.h. húseigenda sækir um leyfi til að nýta vesturgafl Kiwanishússins undir auglýsingar, sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið og felur skipulags-og byggingarfulltrúa framgang erindis.
 
 
6. 201205014 - Hásteinsvöllur - norðurstúka. Umsókn um stöðuleyfi
(4 mál frá 161 fundi - frestað erindi)
Tryggvi Már Sæmundsson f.h. ÍBV-Íþróttafélags sækir um stöðuleyfi fyrir gám við áhorfendastúku norðan Hásteinsvallar frá 1.5.2012 til 30.9.2012.
Fyrir liggur bókun Fjölskyldu- og tómstundaráðs frá 6.6.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið hafnar leyfi fyrir þann gám sem stendur við stúku í dag með núverandi útliti. Ráðið óskar eftir að umsækjandi skili inn gögnum fyrir mannvirki sem fyrirhugað er að staðsetja við stúkubyggingu og leggur áherslu á að mannvirki skuli vera svæðinu til sóma.
 
 
7. 201205013 - Hásteinsvöllur - norðurstúka. Umsókn um byggingarleyfi
(5 mál frá 161 fundi - frestað erindi)
Tryggvi Már Sæmundsson f.h. ÍBV-Íþróttafélags sækir um leyfi fyrir breytingum á áhorfendastúku norðan við Hásteinsvöll sbr. innsend gögn.
Teikn. Sigurjón Pálsson.
Fyrir liggur bókun Fjölskyldu- og tómstundaráðs frá 6.6.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir byggingarleyfi sbr. innsend gögn.
Byggingarleyfisgjald kr. 17.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
8. 201206042 - Faxastígur 40-42. Afsal lóðarhluta.
Kristján Þórarinsson f.h. fasteigna ríkissjóðs afsalar lóðarhluta af lóð við Faxastíg 40-42.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið og felur skipulags-og byggingarfulltrúa að útbúa nýjan lóðarleigusamning.
 
 
9. 201203063 - Faxastígur 38. Umsókn um byggingarleyfi og stækkun lóðar.
Adólf Þórsson f.h. húseigenda Faxastíg 38 sækir um stækkun lóðar og breytingar á húsnæði sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir stækkun lóðar og felur skipulags-og byggingarfulltrúa að útbúa nýjan lóðarleigusamning.
Ráðið samþykkir byggingarleyfi þar sem uppdrættir eru í samræmi við byggingarregugerð nr. 112/2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 43.879 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
10. 201206086 - Vestmannabraut 28 fyrirspurn varðandi stækkun húsnæðis.
Magnús Bragason óskar eftir afstöðu ráðsins til stækkunar á hótelbyggingu sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið lítur jákvætt á erindi umsækenda og felur formanni ráðsins og skipulags-og byggingarfulltrúa að ræða við lóðarhafa.
 
 
11. 201206082 - Faxastígur 44. Fyrirspurn varðandi byggingu atvinnuhúsnæðis
Einar Birgir Einarsson fh. lóðarhafa óskar eftir afstöðu ráðsins til byggingar atvinnuhúsnæðis sbr. innsendar teikningar dags. júní 2012.
Afgreiðsla:
Ráðið hafnar hugmyndum um keyrsluhurðir á suðurhlið og samnýtingu á innkeyrslu lóðar nr. 46.
Ráðið felur formanni ráðsins og skipulags-og byggingarfulltrúa að ræða við lóðarhafa.
 
 
12. 201206085 - Skólavegur 14. Umsókn um nýja innkeyrslu og breytingar á lóð.
Magnea Bergvinsdóttir sækir um leyfi fyrir nýrri innkeyslu á suður lóð og breytingar á lóð sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið. Allar framkvæmdir á lóð og í lóðarmörkum skulu vera í samræmi við gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Allur kostnaður við framkvæmdir utan lóðarmarka eru á kostnað framkvæmdaraðiða og skal tilkynna til Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyjabæjar.
 
 
13. 201204038 - Strandvegur 72. Umsókn um byggingarleyfi
Valur Andersen f.h. Geldungs ehf. sækir um leyfi fyrir útlitsbreytingum á atvinnuhúsnæði við Strandveg 72 sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 7.6.2012.
 
 
14. 201206089 - Hlíðarvegur 5. Umsókn um byggingarleyfi
Björgvin Björgvinsson fh. lóðarhafa sækir um leyfi fyrir útlistbreytingum sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 7.6.2012.
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:15
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159