06.06.2012

Umhverfis- og skipulagsráð - 163

 
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 163. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
miðvikudaginn 6. júní 2012 og hófst hann kl. 12:00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form., Hörður Óskarsson, Pétur Fannar Hreinsson, Sigurður Smári Benónýsson, Ólafur Þór Snorrason, Margrét Rós Ingólfsdóttir.
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
 
 
Dagskrá:
 
1. 201205044 - Bárustígur 1. Umsókn um byggingarleyfi og breytta notkun fastanr. 218-2607
(6 mál frá 161 fundi - frestað erindi)
Bárustígur 1. Umsókn um byggingarleyfi og breytta notkun fastanr. 218-2607
Páll Zóphóníasson f.h. eigenda m.hl. 218-2607 sækir um breytta notkun og breytingar á mannvirki sbr. innsend gögn.
Fyrir liggja umsagnir Vinnueftirlits, Heilbr.eftirlits Suðurlands og Eldv.eftirlits Vesmannaeyja.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið með vísan til umsagna umsagnaraðila og athugasemdalista byggingarfulltrúa dags. 6.6.2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 17.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
2. 201111092 - Strandvegur 54. Umsókn um leyfi auglýsingaskilti
(5 mál frá 149 fundi - frestað erindi)
Magnús Benónýsson f.h. húseigenda sækir um leyfi til að nýta vesturgafl Kiwanishússins undir auglýsingar, sbr. innsend gögn.
Afgr. ráðs:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að ræða við lóðarhafa.
 
 
3. 201205043 - Friðarhöfn 160714. Umsókn um byggingarleyfi
(7 mál frá 161 fundi - frestað erindi)
Sindri Ólafsson f.h. Skipalyftunar sækir um leyfi fyrir að griða af og ganga frá lóð sbr. innsend gögn.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir leyfi fyrir hluta af stoðveggjum sbr. afstöðumynd umhverfis-og framkvæmdasviðs dags. 6.6.2012.
Afgreiðslugjald kr. 12.286 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
4. 201206004 - Kleifarhraun 4. Umsókn um byggingarleyfi
Guðjón Engilbertsson f.h. GE ver sf. sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsi við Kleifarhraun 4 sbr. innsend gögn.
Teikn. Jón Friðrik Matthíasson
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við deiliskipulag svæðis og byggingarregugerð nr. 112/2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 228,170 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010 og Skipulagslögum nr. 123/2010.
 
 
5. 201206003 - Tangagata 7. Fyrirspurn varðandi viðbyggingu til norðurs.
Sigurmundur Gísli Einarsson f.h. húseigenda óskar eftir afstöðu ráðsins til viðbyggingar til norður við Tangagötu 7 sbr. innsend gögn.
Teikn. Páll Zóphóníasson
Afgr. ráðs:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og felur formanni ráðsins og starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að ræða við lóðarhafa.
 
 
6. 201206007 - Fyrirspurn. Skansvegur 5 breytt notkun.
Valur Andersen f.h. húseigenda óskar eftir afstöðu ráðsins til varðandi að breyta notkun húsnæðis úr geymsluhúsnæði í íbúð.
Afgr. ráðs:
Ráðið getur ekki orðið við erindinu þar sem íbúð samræmist ekki landnotkun á hafnarsvæði sbr. ákvæði Skipulagslaga.
 
 
7. 201206013 - Brekastígur 24. Umsókn um byggingarleyfi
Kristinn Hermansen Brekastíg 24 sækir um leyfi fyrir breytingum á húsnæði sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 5.6.2012
 
 
8. 201206014 - Stöðuleyfi fyrir veitingavagn
Hallgrímur S Rögnvaldsson og Wenyi Zeng sækja um stöðuleyfi fyrir veitingagám á hafnarsvæði sbr. innsend gögn.
Afgr. ráðs:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og óskar eftir afstöðu framkvæmda-og hafnarráðs.
 
 
9. 201206015 - Torfærukeppni í landmótunargryfju
Erla Jóhannsdóttir f.h. Torfæruklúbbs Suðurlands sækir um leyfi fyrir torfærukeppni í landmótunargryfju á nýjahrauni 7 júlí n.k. sbr. innsend gögn.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið. Ráðið leggur áherslu á að vandaðan frágang svæðis að lokinni keppni og felur skipulags-og byggingarfulltrúa framgang málsins.
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:10
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159