06.06.2012

Fjölskyldu- og tómstundaráð - 111

 
 
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 111. fundur
 
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
miðvikudaginn 6. júní 2012 og hófst hann kl. 16.15
 
 
Fundinn sátu:
Helga Björk Ólafsdóttir, Jórunn Einarsdóttir, Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, Jarl Sigurgeirsson, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Margrét Rós Ingólfsdóttir.
 
Fundargerð ritaði:  Margrét Rós Ingólfsdóttir,
 
 
 
Dagskrá:
 
1.
200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
 
2.
201205014 - Hásteinsvöllur - norðurstúka. Umsókn um stöðuleyfi
Ósk um leyfi til að setja upp stöðugám í norðurstúkuna miðja við Hásteinsvöll.
Fjölskyldu- og tómstundaráð gerir alvarlegar athugasemdir við það að ÍBV-íþróttafélag hafi farið í breytingar á norðurstúku án samþykkis og leyfis frá Vestmannaeyjabæ sem er eigandi mannvirkisins. Ráðið er ósátt við núverandi útlit bráðabirgðagámsins og gerir kröfu um að útliti hans verði breytt á þann hátt að hann falli sem best að umhverfinu.
Varðandi erindi um leyfi til að setja stöðugám yfir keppnistímabilið 2012 í norðurstúkuna miðja við Hásteinsvöll þá setur ráðið sig ekki upp á móti framkvæmdinni sem slíkri, verði útliti hans breytt, en vísar málinu til Umhverfis- og skipulagsráðs sem fer með forræði yfir Umhverfis- og skipulagsmálum í Vestmannaeyjum til endanlegrar ákvörðunar.
 
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:50
 
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159