05.06.2012

Bæjarráð - 2934

 
 
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2934. fundur
 
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
þriðjudaginn 5. júní 2012 og hófst hann kl. 12.00
 
 
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Páll Marvin Jónsson og Elliði Vignisson.
 
Fundargerð ritaði:  Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
 
Páll Scheving Ingvarsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu á 5. máli á dagskrá (nr. 201205063)
Páll Marvin Jónsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu á 6. máli í fundargerðinni (201205067)
 
 
Dagskrá:
 
1.
201110009 - Umræða um stjórnun fiskveiða
Bæjarráð tekur heilshugar undir ályktun fjölmenns samstöðufundar sem stéttarfélög sjómanna og landverkafólks héldu í gær en á fundinum var samþykkt ályktun þar sem fram kemur, að fyrirhuguð frumvörp ríkisstjórnarinnar komi til með að rýra kjör sjómanna og landverkafólks.  Bæjarráð Vestmannaeyja skorar á ríkisstjórn Íslands að láta af atlögu gegn sjávarútvegi enda bitnar hún fyrst og framst á landsbyggðinni en þó einnig á landsmönnum öllum sem í dag lifa öðru fremur á sjávarútveginum.   
 
Bæjarráð Vestmannaeyja, sem eru stærsti útgerðarstaður á Íslandi, bendir ríkisstjórn Íslands enn og aftur á að frumvörpin um sjávarútveginn, sem liggja nú fyrir Alþingi eru klárlega aðför að kjörum sjómanna og landverkafólks.  Það er morgunljóst að auðlindagjald í sjávarútvegi kemur til með að rýra kjör þeirra. Allir aðilar sem hafa skilað umsögnum um frumvörpin eru sammála um að svo sé.  Bæjarráð beinir því til þingmanna suðurlands að standa vörð um hagsmuni kjósenda sinna.  Það verður best gert með því að láta af atlögum gegn sjávarútvegi.
 
Bæjarráð harmar þann skrípaleik sem settur hefur verið á svið með því að boða fulltrúa Vestmannaeyjabæjar ásamt tugum annarra álitsgjafa á fund atvinnuvegnaefndar án þess að votti fyrir áhuga á að mæta þeim lögmætu ábendingum og rökum sem sett hafa verið fram.  Jafn stórt hagsmunamál og umhverfi sjávarútvegs verður ekki þróað áfram á farsælan máta nema með ríkri samvinnu.  Bæjarráð skorar því á ríkisstórn og þingmenn alla að hlusta á þau rök sem sett hafa verið fram og vinna með hagsmunaaðilum að sátt. 
    
 
2.
201005057 - Umræða um siglingar í Landeyjahöfn.
      Bæjarráð fjallaði um framkvæmd sjómannadags Vestmannaeyja.  Hátíðin tókst í alla staði vel og kann bæjarráð þeim sem að komu sérstakar þakkir.  Sjómannadagurinn hefur á síðustu árum eflst mjög og hann sækir nú mikill fjöldi bæði heimamanna og gesta.  Bæjarráð harmar þó að þjóðvegur Vestmannaeyja skuli veita takmarkaða þjónustu þessa helgi en aðra daga.  Það er krafa bæjarráðs að hér eftir verði þjóðvegurinn opinn miðað við þörf og Herjólfur sigli eigi minna en 5 til 6 ferðir alla daga um sjómannadagshelgina.
 
3.
201205046 - Rekstur Náttúrustofu Suðurlands
     
          Fyrir lá minnisblað frá starfshópi um framtíðarfyrirkomulag Náttúrustofu Suðurlands.  Bæjarráð óskar eftir því við stýrihópinn að hann vinni málið áfram í samræmi við tillögur minnisblaðsins og umræðu á fundinum.
 
4.
200809036 - Sérdeild leikskóla
Thelma Gunnarsdóttir sálfræðingur og Erna Jóhannesdóttir fræðslufulltrúi óska eftir heimild til að ráða starfsmann í 0,85% starfshlutfall að sérdeild leikskóla í a.m.k. 3 mánuði vegna aukins álags.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu enda rúmast það ekki innan fjárhagsáætlunar.  Bæjarráð beinir því til framkvæmdastjóra sviðsins og starfsmanna skólaskrifstofu að mæta brýnum þörfum innan þess rekstrarramma sem lagður hefur verið í fjárhagsáætlun.
 
5.
201205063 - Til umsagnar ósk um leyfi til að halda þjóðhátíð í Herjólfsdal dagana 3.-6. ágúst 2012
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti. Samþykki þetta er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað skemmtanahalda ef þörf krefur.
 
6.
200707340 - Fundargerðir nefnda lagðar fyrir bæjarráð
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs nr. 162 frá 23. maí s.l.
Fundargerð fjölskyldu- og tómstundaráðs nr. 110 frá 23. maí s.l.
 
7.
201205067 - Til umsagnar umsókn um leyfi til iðkunar litbolta á malarvellinum í Löngulág
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti. Samþykki þetta er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
8.
200708078 - Samningamál lögð fyrir bæjarráð
Afgreiðsla samningamála er færð í sérstaka samningafundargerð
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15.30
 
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159