04.06.2012
Framkvæmda- og hafnarráð - 128
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 128. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
mánudaginn 4. júní 2012 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Bergvin Oddsson, Íris Róbertsdóttir, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Guðmundur Þ B Ólafsson, Ólafur Þór Snorrason.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
1. 201008031 - Upplýsingabeiðni frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)vegna skipalyftu í Vestmannaeyjum
Fyrir lá svar frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) dags. 30.maí 2012 vegna meintar opinberrar aðstoðar vegna endurbyggingar upptökumannvirkja Vestmannaeyjahafnar. Fram kom að endurbygging upptökumannvirkjanna felur ekki í sér opinbera aðstoð skv. skilgreiningu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
Ráðið fagnar niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), enda er hún í fullu samræmi við þau sjónarmið sem fulltrúar Vestmannaeyjahafnar hafa haldið fram.
2. 201206002 - Viðgerðir á bryggjuþiljum 2012
Sveinn R Valgeirsson fór yfir áfallinn kostnað vegna viðgerða á bryggjuþiljum í Vestmannaeyjum. Fram kom að áfallinn kostnaður er kr. 25.079.982. Í viðbót þarf að fara í viðgerðir á bryggjuþili Básaskersbryggju og er áætlað að fara í það verk í haust ásamt nokkrum minniháttar viðgerðum.
3. 201205077 - Hafnartorg 2012
Farið yfir framkvæmdir við nýtt Hafnartorg/Vigtartorg við Vigtarhús og vesturhús Fiskiðjunnar sem tekið var í notkun um sjómannadagshelgina.
Ráðið þakkar öllum þeim aðilum innanbæjar og utan sem lögðu hönd á plóginn við að gera torgið jafn glæsilegt og raun ber vitni og óskar bæjarbúum til hamingju.
4. 201011075 - Eldheimar 2011 framtíðarsýn.
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir við Eldheima en verkið fer fljótlega í útboð.
5. 201205035 - Niðurrif á malbikunarstöð
Guðmundur ÞB Ólafsson fór yfir verkáætlun vegna niðurrifs malbikunarstöðvar. Fram kom að farið verður farið í að rífa malbikunarstöðina síðar í þessum mánuði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.05



