23.05.2012
Umhverfis- og skipulagsráð - 162
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 162. fundur haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, miðvikudaginn 23. maí 2012 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Hörður Þórðarson og Sigurður Smári Benónýsson.
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
Hörður Óskarsson og Pétur Fannar Hreinsson véku af fundi í 2 máli
Dagskrá:
1. 201203024 - Deiliskipulag Eldheima, skipulagsbreyting
Skipulagstillagan var auglýst frá 4 apríl til 16 maí 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Eitt bréf dags. 13.5.2012 barst við auglýstri tillögu.
Afgr. ráðs á innsendu bréfi.
Ráðið samþykkir að breyta aðkomu að bílastæði Eldheima sbr. athugasemd bréfritara. Ráðið getur ekki orðið við öðrum athugasemdum, en mun við hönnun bílastæða taka tillit til ábendinga bréfritara eins og mögulegt er.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir skipulasgbreytingu sbr. auglýst tillaga og afgr. fundar. Ráðið vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar sbr. 41 gr. skipulagslaga.
2. 201106061 - Deiliskipulag Ísfélags Vestmannaeyja við FES Strandvegi. Tillaga.
Skipulagstillagan var auglýst frá 4 apríl til 16 maí 2012 og liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði til samþykktar.
Engar athugasemdir bárust við auglýstri tillögu.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir skipulagið og að erindinu verði lokið skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
3. 201204050 - Bárustígur 2. Umsókn um byggingarleyfi
(9 mál frá 159 fundi - frestað erindi)
Þröstur Bjarnhéðinsson sækir um leyfi fyrir breytingum á atvinnuhúsnæði Bárustíg 2 sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
Fyrir liggja umsagnir Vinnueftirlits, Heilbr.eftirlits Suðurlands og Eldv.eftirlits Vesmannaeyja.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið með vísan til umsagna umsagnaraðila og athugasemdalista byggingarfulltrúa dags. 22.5.2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 17.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
4. 201004069 - Vesturvegur 5. Umsókn um byggingarleyfi
(afgr. frá 119 fundi ráðsins)
Sigurjón Pálsson f.h. Reglubrautar sækir um leyfi fyrir bílstæðum við suð-austurhorn lóðar sbr. innsend gögn.
Teikn. Sigurjón Pálsson.
Afgr. ráðs:
Ráðið heimilar bílastæði við suð-austurhorn lóðar sbr. umsókn og áréttar við umsækendur að allar framkvæmdir við innkeyrslu og bílastæði eru á kostnað leyfishafa og skulu vera í fullu samráði við byggingarfulltrúa.
5. 201205080 - Illugagata 58. Umsókn um byggingarleyfi
Úranus Ingi Kristinsson Illugagata 58 sækir um leyfir fyrir gluggabreytingum og breytingum á þakkassa sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla byggingarfulltrúa dags. 22.5.2012.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:45



