23.05.2012
Bæjarstjórn - 1463
Bæjarstjórn Vestmannaeyja - 1463. fundur
haldinn í Einarsstofu Safnahúsi,
miðvikudaginn 23. maí 2012 og hófst hann kl. 18.00
Fundinn sátu:
Elliði Vignisson, Páley Borgþórsdóttir, Páll Marvin Jónsson, Páll Scheving Ingvarsson, Stefán Óskar Jónasson, Gunnlaugur Grettisson og Jórunn Einarsdóttir.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Leitast var eftir því að taka inn með afbrigðum fundargerð umhverfis-og skipulagsráðs nr. 162 frá 23. maí s.l.
Var það samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Dagskrá:
|
1.
|
201107068 - Fjárhagsleg endurskipulagning á Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf.
|
|
|
Boðað hefur verið til hlutahafafundar í Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf þann 24. maí 2012.
Fyrsta mál á dagskrá fundarins er samkomulag um fjárhagslega endurskipulagningu EFF. |
||
|
Fyrir bæjarstjórn lá greinargerð um breytingar á EFF og úttekt Þrastar Sigurðssonar, fjármálasérfræðings hjá Capacent á áhrifum breytts fyrirkomulags á fjárhag og greiðslur Vestmannaeyjabæjar vegna endurskipulagningar á EFF og nýrra leigusamninga bæjarins við EFF. Bæjarstjórn samþykkir fjárhagslega endurskipulagningu EFF í samræmi við framlögð gögn. Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að fella eldri leigusamninga við EFF úr gildi og taka upp nýja leigusamninga í samræmi við framlögð gögn. Bæjarstjórn felur Gunnlaugi Grettissyni bæjarfulltrúa að fara með atkvæði Vestmannaeyjabæjar á hluthafafundi EFF þann 24. maí n.k. þar sem tekin verður afstaða til umræddra breytinga af hálfu EFF.
Afgreiðslan var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vísa ábyrgð samnings við Fasteign hf. alfarið á samstarfs V-lista og B-lista á þar síðasta kjörtímabili. Á þeim tíma börðust bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins með oddi og egg gegn þátttöku Vestmannaeyjabæjar í Fasteign hf. Bentu þeir ítrekað á gengisáhættu og óhagstæða skilmála fyrir leigutaka. Allt kom fyrir ekki og illu heilli varð niðurstaðan sú að eignir bæjarins voru seldar inn í hlutafélagið Fasteign gegn 30 ára leigusamningum. Um leið valdi þáverandi meirihluti að kaupa hlutafé í félaginu fyrir á annað hundrað milljónir sem nú liggur fyrir að er einskis virði og verður afskrifað með öllu.
Þegar litið er til niðurstöðunnar úr þeim samningi sem V listi og B listi gerðu þrátt fyrir varnaðarorð Sjálfstæðisflokks liggur fyrir að leigugreiðslur til Fasteignar á verðlagi hvers árs eru frá árinu 2004 til apríl 2012 eru orðnar 1058 milljón krónur (núvirt á verðlag apríl 2012 er þetta 1288 milljónir).
Á sínum tíma greiddi Fasteign hf. Vestmannaeyjabæ 962 milljónir (núvirt á verðlagi apríl 2012 er þetta um 1572 milljónir). Samantekið þá hefur Vestmannaeyjabær á þessum átta árum því greitt stóran hluta af kaupverðinu til baka í formi leigu sé það skoðað á verðlagi hvers árs. Séu allar greiðslur (leiga og kaupverð) uppreiknaðar á verðlag apríl 2012 þá höfum við einungis fengið krónur 578 milljónir fyrir allar þær eignir sem við nú þurfum að skuldbinda okkur fyrir 1800 milljónir fyrir og enn eru tugir ára eftir af samningnum. Ástæða er einnig til að benda á að um 80% af þessari skuldbindingu er tengdur við Evru og ber því með sér gríðarlega gengisáhættu. Á einungis átta árum höfum við því nokkurn vegin greitt til baka til Fasteignar þá fjármuni sem við fengum fyrir eignir okkar. Það er því ljóst að skaðinn af þessari ákvörðun verður mikill enda var þar glannalega farið. Skylda núverandi bæjarfulltrúa er að leita allra leiða til að lágmarka tap Vestmannaeyjabæjar og kemur þar sterklega til greina að lágmarka áhættuna með því að kaupa allar eignirnar til baka. Það er samt þyngra en tárum taki að þurfa að greiða 1800 milljónir fyrir eignir sem voru seldar á sem nemur 578 milljónum þegar leigugreiðslur seinustu ára hafa verið dregnar frá.
Páley Borgþórsdóttir
Páll Marvin Jónsson
Elliði Vignisson
Gunnlaugur Grettisson
|
||
|
|
||
|
2.
|
201205008F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja nr. 162 frá 23. maí s.l.
|
|
|
Liðir 1-5 lágu fyrir til umræðu og staðfestingar.
|
||
|
Liður 1 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 2 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 3 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 4 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 5 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
3.
|
201203003F - Fjölskyldu- og tómstundaráð nr. 105 frá 7. mars s.l.
|
|
|
Liðir 1-3 liggja fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Liðir 1-3 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
4.
|
201204003F - Fjölskyldu- og tómstundaráð nr. 107 frá 4. apríl s.l.
|
|
|
Liðir 1 og 2 liggja fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Liðir 1-2 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
5.
|
201204012F - Fjölskyldu- og tómstundaráð nr. 108 frá 25. apríl s.l.
|
|
|
Liðir 1,2 og 4-6 liggja fyrir til staðfestingar.
Liður 3 liggur fyrir til umræðu og staðfestingar. |
||
|
Liðir 1,2 og 4-6 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 3 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
6.
|
201204015F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja nr. 160 frá 3. maí s.l.
|
|
|
Liðir 1-3 og 7 liggja fyrir til umræðu og staðfestingar.
Liðir 4-6 liggja fyrir til staðfestingar. |
||
|
Liður 1 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 2 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 3 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 7, erindisbréf byggingafulltrúa og umhverfis- og skipulagsráðs var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liðir 4-6 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
7.
|
201204016F - Fræðsluráð nr. 246 frá 8. maí s.l.
|
|
|
Liðir 1-4 liggja fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Liðir 1-4 voru samþykktir með sex atkvæðum Jórunn Einarsdóttir sat hjá.
|
||
|
|
||
|
8.
|
201204017F - Menningarráð nr. 246 frá 8. maí s.l.
|
|
|
liðir 1 og 2 liggja fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Liðir 1 og 2 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
9.
|
201205001F - Fjölskyldu- og tómstundaráð nr. 109 frá 9. maí s.l.
|
|
|
Liðir 1-3 liggja fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Liðir 1-3 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
10.
|
201205004F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja nr. 126 frá 11. maí s.l.
|
|
|
Liðir 1-7 og 9 liggja fyrir til staðfestingar.
Liður 8 liggur fyrir til kynningar. |
||
|
Liðir 1-7 og 9 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
11.
|
201205003F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja nr.161 frá 14. maí s.l.
|
|
|
Liðir 1-7 liggja fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Liðir 1-7 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
12.
|
201205005F - Bæjarráð Vestmannaeyja nr. 2933 frá 15. maí s.l.
|
|
|
Liður 1 liggur fyrir til umræðu og staðfestingar.
Liðir 2,3, 5 og 6 liggja fyrir til staðfestingar. Liðir 4 og 7 liggja fyrir til kynningar. |
||
|
Liður 1 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
Liðir 2,3, 5 og 6 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
13.
|
201205006F - Fræðsluráð nr. 247 frá 15 maí s.l.
|
|
|
Liðir 1 og 2 liggja fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Liðir 1 og 2 voru samþykktir með sex atkvæðum, Jórunn Einarsdóttir vék af fundi.
|
||
|
|
||
|
14.
|
201205009F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja nr. 127 frá 21. maí s.l.
|
|
|
Liðir 1-6 liggja fyrir til staðfestingar.
Liður 7 liggur fyrir til umræðu og staðfestingar. |
||
|
Liðir 1-6 voru samþykktir með sjö samhljóða atkvæðum.
Liður 7 var samþykktur með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
|
15.
|
201010070 - Fundargerðir Náttúrustofu Suðurlands
|
|
|
Fundargerðin liggur fyrir til staðfestingar.
|
||
|
Fundargerðin var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
|
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19.33



