21.05.2012
Framkvæmda- og hafnarráð - 127
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 127. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
mánudaginn 21. maí 2012 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Bergvin Oddsson, Þorbjörn Víglundsson, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Ólafur Þór Snorrason.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Frosti Gíslason mætti á fundinn undir 7.máli.
Dagskrá:
1. 200910075 - Umgengni á hafnarsvæðinu og í nágrenni þess.
Sveinn Rúnar Valgeirsson fór yfir samskipti við þá aðila sem eiga dót á Eiðinu og hvaða úrbætur eru fyrirhugaðar til að laga umgengni.
2. 201205034 - Bryggjustæði smábáta
Sveinn Rúnar Valgeirsson fór yfir samskipti við eigendur bryggjustæða og fyrirhugað viðhald og endurnýjun.
Ráðið felur Sveini að fylgja málinu eftir og ræða m.a. við fulltrúa Hafnasambands Íslands og í framhaldi af því verði boðað til fundar með fulltrúum þeirra smábáta sem nýta aðstöðu við flotbryggjur.
3. 201106064 - Flotbryggjur vegna smábáta
Sveinn Rúnar Valgeirsson kynnti möguleika á endurnýjun á flotbryggjum.
Ráðið samþykkir að fela Sveini að fá tilboð í flotbryggjur.
4. 201112078 - Endurbætur á Binnabryggju 2012
Ólafur Þ Snorrason fór yfir samskipti við Siglingastofnun vegna endurbóta á Binnabryggju. Reiknað er með að efni verði boðið út innan 3ja vikna og ferillinn taki fari 4-6 mánuði með afhendingu á efni.
5. 201205078 - Flotbryggja fyrir farþegabáta norðan Eiðis
Sveinn R Valgeirsson greindi frá samskiptum við Siglingastofnun um hönnun á hugsanlegri flotbryggju norðan Eiðis hefur verið til skoðunar hjá Siglingastofnun
6. 201103095 - Endurnýjun á hafnarvog 2011
Arnar Sigurmundsson greindi frá samtali við Þóhall Ottesen hjá Fiskistofu varðandi staðsetningu á nýrri bílavog hjá Vestmannaeyjahöfn sem kæmi í stað núverandi bílavogar.
7. 201205077 - Hafnartorg 2012
Frosti Gíslason fór yfir þær hugmyndir sem í gangi eru vegna Hafnartorgs og sjónvarpsþátt sem RÚV hefur hug á að framleiða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.45



