15.05.2012
Bæjarráð - 2933
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2933. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
þriðjudaginn 15. maí 2012 og hófst hann kl. 12.00
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Páll Marvin Jónsson og Elliði Vignisson.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá:
|
1.
|
201205046 - Rekstur Náttúrustofu Suðurlands
|
|
|
Ljóst er að rekstrarframlag ríkisins og mótframlag Vestmannaeyjabæjar vegna reksturs Náttúrustofu Suðurlands vegna ársins 2012 mun ekki duga fyrir rekstrarkostnaði stofunnar.
|
||
|
Náttúrustofa Suðurlands
Bæjarráð lýsir yfir þungum áhyggjum af rekstri Náttúrustofu Suðurlands. Þrátt fyrir ríkan vilja stjórnar til að mæta rekstrarvanda með niðurskurði á kostnaði er ljóst að tekjur duga ekki fyrir grunnrekstri stofnunarinnar og stefnir nú í að hallinn á rekstri hennar verði 6.766.173 kr. Jafnvel þótt Vestmannaeyjabær auki framlag sitt til samræmis við viðbótarframlag ríkisins um 1.920.000 stefnir í að stofan skili halla upp á 4.846.173 kr. Slíkt er ekki viðunandi og kallar á aðgerðir. Í samræmi við lög um náttúrustofur fer Náttúrustofa Suðurlands með ríkt hlutverk í grunnrannsóknum. Vestmannaeyjabæ kann að verða nauðugur sá kostur að loka náttúrustofunni ef ekki kemur til aukið rekstrarfé. Slíkt væri stórt skref aftur á bak í náttúruvernd og rannsóknum á starfssvæði stofnunarinnar.
Bæjarráð samþykkir að mynda þriggja manna stýrihóp sem skila skal tillögum að framtíðarfyrirkomulagi Náttúrustofu Suðurlands á næsta fundi bæjarráðs. Gert er ráð fyrir að fulltrúi stýrihópsins kalli eftir viðhorfi þeirra aðila sem fara með forræði stofunnar og bera ábyrgð á fjárframlögum til hennar.
Hópinn skipa Páll Marvin Jónsson, Martin Eyjólfsson og Trausti Hjaltason.
|
||
|
|
||
|
2.
|
201205009 - Upplýsingamiðstöð ferðamanna sumar 2012
|
|
|
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við rekstraraðila upplýsingamiðstöðvar Vestmannaeyja, Eymundsson að samningi um rekstur stöðvarinnar verði framlengdur um eitt ár.
|
||
|
|
||
|
3.
|
201205045 - Stofnun nýrrar deildar innan Lífeyrssjóðs starfsmanna sveitarfélaga LSS.
|
|
|
Stjórnendur LSS eru að kynna fyrir sveitarfélögunum tillögur um að sameina lífeyrissjóðina. Talið er að hægt sé að spara umtalsvert í rekstri sjóðanna með sameiningu. Sameiningin mun eiga sér stað með þeim hætti að stofnuð verður ný deild innan LSS.
|
||
|
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðsins Sigurbergi Ármannssyni að kynna sér málið með aðkomu að hinum sameinaða sjóði lífeyrissjóðanna í huga.
|
||
|
|
||
|
4.
|
201205032 - Efnahags- og viðskiptanefnd- mál nr. 762 sparisjóðir
|
|
|
Fulltrúum sveitarstjórna þar sem starfandi eru sparisjóðir verður gefinn kostur á að veita umsögn við málið sem og Byggðastofnun, Bændasamtökum Íslands og talsmanni neytenda.
|
||
|
|
||
|
5.
|
201205010 - Til umsagnar umsókn vegna rekstarleyfis fyrir veitingahúsi og samkomusal í Slippnum í Vestmannaeyjum
|
|
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
|
||
|
|
||
|
6.
|
200708078 - Samningamál lögð fyrir bæjarráð
|
|
|
Afgreiðsla samningamáls er færð í sérstaka samningabók
|
||
|
|
||
|
7.
|
200707340 - Fundargerðir nefnda lagðar fyrir bæjarráð
|
|
|
Fundargerð umhverfis-og skipulagsráðs nr. 160 frá 2. maí s.l.
Fundargerð framkvæmda-og hafnarráðs nr. 126 frá 11. maí s.l. Fundargerð fræðsluráðs og menningarráðs nr. 246 frá 8. maí s.l. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12.35



