14.05.2012

Umhverfis- og skipulagsráð - 161

 
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 161. fundur haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, mánudaginn 14. maí 2012 og hófst hann kl. 12:00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Björgvin Eyjólfsson, Sigurður Smári Benónýsson og Ólafur Þór Snorrason.
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
Hörður Óskarsson og Pétur Fannar Hreinsson véku af fundi í 2 máli
 
Dagskrá:
 
1. 201204075 - Deiliskipulag á hafnarsvæði. Svæði H-2, IS-4 og IS-6.
(1 mál frá 160 fundi)
Skipulags- og byggingafulltrúi óskar eftir heimild ráðsins til að skipta skipulagssvæði í tvö svæði.
1. deiliskipulag fyrir vesturhluta hafnarsvæðis nr. H-2
2. deiliskipulag á Eiði fyrir iðnaðarsvæði IS-4 og IS-6 .
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að skipta svæði í tvo skipulasgramma og felur skipulags-og byggingarfulltrúa að undirbúa feril skipulags.
 
 
2. 201205042 - Deiliskipulag Strandvegi 102, hafnarsvæði H-1
Tekin fyrir Lýsing deiliskipulags á lóð Ísfélags Vestmannaeyja við Strandveg 102 og nærumhverfi lóðar. Lýsing unnin af TPZ ehf. dags. 11.5.2012. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir Lýsingu deiliskipulags til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar Skipulagsstofnunar og annara umsagnaraðila.
 
 
3. 201204037 - Strandvegur 76. Umsókn um breytta notkun og leyfi fyrir að innrétta m.hl. 218-4803 sem veitingahús.
(8 mál frá 159 fundi - frestað erindi)
Indiana Audunsdottir f.h. eigenda eignarhluta 218-4803 sækir um leyfi fyrir breyttri notkun á 2 hæð húsnæðis, úr iðnaðarhúsnæði í veitingahúsnæði sbr. innsend gögn.
Teikn: Magnús Jensson
Fyrir liggur samþykki eigenda húsnæðis.
Fyrir liggja umsagnir Vinnueftirlits, Heilbr.eftirlits Suðurlands og Eldv.eftirlits Vesmannaeyja.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið með vísan til umsagna umsagnaraðila og athugasemdalista byggingarfulltrúa dags. 14.5.2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 17.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
4. 201205014 - Hásteinsvöllur - norðurstúka. Umsókn um stöðuleyfi
Tryggvi Már Sæmundsson f.h. ÍBV-Íþróttafélags sækir um stöðuleyfi fyrir gám við áhorfendastúku norðan Hásteinsvallar frá 1.5.2012 til 30.9.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og felur formanni og starfsmönnum ráðsins að ræða við umsækjanda.
 
 
5. 201205013 - Hásteinsvöllur - norðurstúka. Umsókn um byggingarleyfi
Tryggvi Már Sæmundsson f.h. ÍBV-Íþróttafélags sækir um leyfi fyrir breytingum á áhorfendastúku norðan við Hásteinsvöll sbr. innsend gögn.
Teikn. Sigurjón Pálsson.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og felur formanni og starfsmönnum ráðsins að ræða við umsækjanda.
 
 
6. 201205044 - Bárustígur 1. Umsókn um byggingarleyfi og breytta notkun fastanr. 218-2607
Páll Zóphóníasson f.h. eigenda m.hl. 218-2607 sækir um breytta notkun og breytingar á mannvirki sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og vísar erindi til umsagnaraðila með vísan til 2.4.1. gr. Byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
 
 
7. 201205043 - Friðarhöfn 160714. Umsókn um byggingarleyfi
Sindri Ólafsson f.h. Skipalyftunar sækir um leyfi fyrir að griða af og ganga frá lóð sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og felur formanni og starfsmönnum ráðsins að ræða við umsækjanda.
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:45
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159