14.05.2012

Framkvæmda- og hafnarráð - 126

 
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 126. fundur
 
 
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
föstudaginn 11. maí 2012 og hófst hann kl. 15:00
 
 
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Bergvin Oddsson, Íris Róbertsdóttir, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Guðmundur Þ B Ólafsson, Friðrik Björgvinsson, Ólafur Þór Snorrason, Andrés Þorsteinn Sigurðsson.
 
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
 
Sigurður Smári Benónýsson sat fundinn undir 5. og 6. máli.
 
Dagskrá:
 
1. 201205036 - Malbikun á hafnarsvæði 2012
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir mikilli þörf að ráðast í malbikunarframkvæmdir á hluta Friðarhafnarbryggju og Edinborgarbryggju, sunnan Nausthamars.
Ráðið samþykkir fjárveitingu að fjárhæð 20 milljónir króna vegna ofangreindra framkvæmda og kemur þessi liður til hækkunar á viðhaldslið hafnarmannvirkja. Fram kom á fundinum að útgjöld vegna þessara framkvæmda rúmast innan áætlunar um tekjur og útgjöld Vestmannaeyjahafnar 2012.
 
2. 201205035 - Niðurrif á malbikunarstöð
Framkvæmdastjóri upplýsti að borist hafi tilskilin leyfi til að rífa og fjarlægja malbikunarstöð bæjarins. Reiknað er með að ráðist verði í verkið innan skamms.
 
 
3. 201205041 - Frárennsli frá fiskvinnslustöðvum.
Borist hafa kvartanir til ráðsiins vegna frárennslis frá fiskvinnslum við Garðaveg sem borist hefur meðal annars niður á Strandvegog nærliggjandi lóðir.
Ráðið felur framkvæmdastjóra að ganga á eftir því að viðkomandi fyrirtæki geri nauðsynlegar ráðstafanir sem allra fyrst til úrbóta.
 
 
 
4. 201205033 - Komur skemmtiferðaskipa árið 2012
Andrés Þ Sigurðsson fór yfir fyrirhugaðar komur skemmtiferðaskipa sumarið 2012. Fram kom í máli Andrésar að 19 skip hafa tilkynnt komu sína til Vestmannaeyja sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár.
Ráðið þakkar Andrési kynninguna og verður málið tekið til nánari umræðu á næsta fundi ráðsins.
 
5. 201203068 - Hreinsunardagur 12 maí og hreinsunarátak 2012.
Rætt var um umgengni á hafnarsvæði og athafnalóðir, m.a. á Eiðinu. Sveinn R Valgeirsson og Sigurður Smári Benónýsson upplýstu ráðið um samskipti við fyrirtæki á svæðinu og möguleika á úrbótum.
Umgengi á hafnarsvæði og á athafnalóðum hefur ekki verið sem skyldi og felur ráðið Sveini og Sigurði að sjá til þess að þeim samþykktum sem gilda vegna tímabundinna stöðuleyfa sé framfylgt.
 
6. 201203039 - Starfshópur um nýtingu hafnarsvæðis
Sigurður Smári Benónýsson fór yfir vinnu starfshóps um nýtingu hafnarsvæðis. Fram koma að haldnir hafa verið 4 fundir þar sem ýmsir hagsmunaðilar hafa komið og kynnt sínar hugmyndir og framtíðaráform.
 
 
7. 201205037 - Ósk um uppsetningu lokaðs hliðs á bryggju farþegabáta
Fyrir lá bréf frá Rib-Safari og Viking Tours dags. 8.maí 2012 þar sem óskað er eftir því að Vestmannaeyjahöfn setji upp hlið sem lokar af flotbryggjur þar sem bátar þeirra liggja.
Ráðið getur ekki orðið við erindinu.
 
8. 201205034 - Bryggjustæði smábáta
Sveinn R Valgeirsson kynnti fyrirkomulag og kostnað vegna álbryggja og tilboð vegna flotbryggja.
 
 
 
 
9. 201205038 - Starfshópur um framtíðarskipan sorpmála í Vestmannaeyjum 2012
Starfshópur um framtíðarskipan sorpmála skilaði af sér greinargerð og tillögum. Starfshópurinn fór jafnframt yfir samskipti við Umhverfisstofnun og greindi frá fundi sem haldin var 7.maí sl. með Umhverfisstofnun. Þar var farið yfir samskipti Vestmannaeyjabæjar og Umhverfisstofnunar vegna Sorporkustöðvar Vestmannaeyja og áminningar vegna þeirrar starfsemi. Var Vestmannaeyjabæ gefin frestur til að skila áætlun um framtíð Sorporkustövarinnar og skyldrar starfsemi til 11.maí 2012. Hafa Umhverfisstofnun nú þegar verið sendar tillögur starfshópsins og eru þær nú til skoðunar.
Ráðið þakkar kynninguna og samþykkir að vinna eftir tillögum starfshópsins. Það felur í sér að sorpbrennslu verði hætt í Sorporkustöð Vestmannaeyja ekki síðar en 1.september 2012. Samfara útboði á sorphirðu og meðhöndlun úrgangs á evrópska enahagssvæðinu verði væntanlegum rekstrarðila gert að sjá um förgun úrgangs skv. reglum. Jafnframt óskar ráðið eftir því að framkvæmdastjóri UF-sviðs og Friðrik Björgvinsson verkefnisstjóri skili inn tillögum eigi síðar en 1.júní að breyttum samþykktum um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjum.
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.15.
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159