09.05.2012
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 109
Fjölskyldu- og tómstundaráð nr. 109 frá 9. maí s.l. . fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
miðvikudaginn 9. maí 2012 og hófst hann kl. 16.15
Fundinn sátu: Helga Björk Ólafsdóttir, Jórunn Einarsdóttir, Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, Jarl Sigurgeirsson, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Jón Pétursson, Guðrún Jónsdóttir, Margrét Rós Ingólfsdóttir og Sólrún Erla Gunnarsdóttir.
Fundargerð ritaði: Margrét Rós Ingólfsdóttir,
Dagskrá:
1. 201201034 - Sískráning barnaverndarmála 2012
Sískráning barnaverndartilkynninga apríl.
Í apríl bárust 13 tilkynningar vegna 12 barna. Þar af voru tilkynningar vegna vanrækslu 8 talsins, 2 vegna ofbeldis gegn börnum og 3 vegna áhættuhegðunar barna. Mál allra barnanna 12 voru til frekari meðferðar.
2. 200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
3. 200711112 - Akstursþjónusta
Framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og tómstundaráðs leggur fram tillögur að breytingum á akstursþjónustu.
Fjölskyldu- og tómstundaráð fór yfir tillögur framkvæmdastjóra ráðsins varðandi breytingar á akstursþjónustu aldraðra og fatlaðra.
Ráðið tekur ákvörðun um að fram fari mat á akstursþjónustunni þegar í stað og verði allir akstursamningar endurskoðaðir af matshópi í heimaþjónustu. Ráðið felur matshópnum að skila skýrslu um málið og verður það tekið upp í ráðinu eigi síðar en um miðjan júlí.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.00



