08.05.2012
Menningaráð - 246
Menningarráð - 247. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
þriðjudaginn 8. maí 2012 og hófst hann kl. 17.30
Fundinn sátu:
Hildur Sigurðardóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Díanna Þyri Einarsdóttir, Trausti Hjaltason, Leifur Jóhannesson og Kristín Jóhannsdóttir.
Fundargerð ritaði: Kristín Jóhannsdóttir, menningarfulltrúi
Dagskrá:
|
1.
|
201102096 - Skráning og mat á listaverkasafni Vestmannaeyjabæjar.
|
|
|
Erindi frá Kára Bjarnasyni dags. 11. apríl s.l. þar sem fram kemur kostnaður vegna mats á listaverkasafni Vestmannaeyjabæjar og tillaga að reglum um útlán á verkum listaverkasafsins.
|
||
|
Ráðið fagnar að lokið sé mati á listaverkum Vestmannaeyjabæjar. Mikil samfélagsleg og menningarleg verðmæti eru fólgin í þeim fjölmörgu listaverkum sem eru í eigu bæjarfélagsins. Listaverkin sem hér hafa verið metin geta einnig talist gróðvænleg fjárfesting og er það nauðsynlegt að Vestmannaeyjabær móti sér skýrar reglur varðandi útlán og umgengni við slíkar gersemar. Ráðið samþykkir þær meginreglur um útlán listaverka sem hafa verið lagðar fram. Ráðið leggur jafnframt til að forstöðumaður Bókasafns Vestmannaeyja skili árlega inn yfirliti yfir þau listaverk sem eru í útláni hjá stofnunum bæjarins.
|
||
|
|
||
|
2.
|
201203024 - Deiliskipulag Eldheima, skipulagsbreyting
|
|
|
Sigurður Smári Benónýsson byggingafulltrúi kynnti teikningar að fyrirhuguðum framkvæmdum í Eldheimum. Ráðið þakkar kynninguna og fagnar þeim farvegi sem verkefnið er komið í. Það er ósk ráðsins að uppbygging Eldheima gangi hratt og vel fyrir sig og verkefnið verði stór og mikilvægur hluti þeirrar miklu safnaflóru sem er að byggjast upp í Vestmannaeyjum.
|
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.



