25.04.2012
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 108
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 108. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
miðvikudaginn 25. apríl 2012 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Helga Björk Ólafsdóttir, Jórunn Einarsdóttir, Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, Jarl Sigurgeirsson, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Jón Pétursson, Guðrún Jónsdóttir, Sólrún Erla Gunnarsdóttir.
Fundargerð ritaði: Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs
Dagskrá:
1. 201201034 - Sískráning barnaverndarmála 2012
Sískráning barnaverndartilkynninga mars
Í mars bárust 7 tilkynningar vegna 7 barna. Þar af voru tilkynningar vegna vanrækslu 1 talsins, 4 vegna ofbeldis gegn börnum og 2 vegna áhættuhegðunar barna. Mál 6 barna af 7 voru til frekari meðferðar.
2. 200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
3. 200711112 - Akstursþjónusta
Aðfinnslur vegna akstursþjónustu
Kvartanir vegna akstursþjónustu við fatlaða og aldraða hafa komið upp öðru hvoru og þá helst vegna meininga um að þjónustuaðili haldi illa áætlun eða hann gleymi að sækja þjónustuþega. Við athugun á þjónustunni hefur hinsvegar komið í ljós að umfang þeirrar þjónustu sem farið er fram á hefur verið mun meira en samið hefur verið um við þjónustuaðila. Þjónustunni er í dag þannig fyrir komið að álagstímar eru margir og þjónustuaðili hefur ekki tök á að halda áætlun meðal annars vegna þess. Miðað við umfang ferða er ljóst að bregðast þarf við þessari stöðu. Fyrir liggur að skylda sveitarfélagsins samkvæmt lögum er að bjóða upp á akstursþjónustu fyrir fatlaða sem nauðsynlega þurfa á henni að halda til að geta stundað vinnu og nám eða sótt þjónustu sérhæfðrar þjónustustofunar. Einnig er sveitarfélaginu skylt að bjóða upp á akstursþjónustu fyrir aldraða í dagvistun.
Fjölskyldu- og tómstundaráð telur brýnt að lögbundin þjónusta hafi forgang á aðra þjónustu. Um leið lýsir ráðið yfir skilningi á því að samræmi þarf að vera á milli þeirrar þjónustu sem Vestmannaeyjabær veitir og þeirrar þjónustu sem sveitarfélagið greiðir fyrir. Ráðið samþykkir því að fela framkvæmdastjóra að leita leiða til úrbóta hvað akstursþjónustu varðar og skila drögum að slíku á næsta fundi ráðsins.
Ráðið samþykkir ennfremur að fela framkvæmdastjóra að bjóða án endurgjalds aðstöðu til sjúkraþjálfunar á Hraunbúðum og hvetja sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara til að nýta sér þá aðstöðu.
4. 200703047 - Leiguíbúðir aldraðra - almennt
Breytingar á úthlutunarreglum fyrir íbúðir aldraðra.
Sólrún Gunnarsdóttir félagsráðgjafi leggur fram tillögu um breytingar á núgildandi úthlutunarreglum fyrir leiguíbúðir aldraðra. Með breyttri reglu er verið að samræma reglur um leiguíbúðir Vestmannaeyjabæjar og einfalda afgreiðsluferla. Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkir umræddar breytingar.
5. 200804058 - Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar
Fyrirkomulag vinnuskóla Vestmannaeyja fyrir árið 2012 kynnt
Ráðinu kynnt tillaga að fyrirkomulagi vinnuskólans 2012. Ráðið samþykkir framangreindan vinnutíma og laun ungmennanna, en vinnuskólinn verður starfræktur fyrir 8.-10. bekk frá júní og fram í ágúst. Foreldrum barna í árgöngum 1996-1998 verður sent kynningarbréf á næstu dögum.
6. 201204032 - Evrópukeppnin í Futsal
Beiðni frá knattspyrnudeild ÍBV-íþróttafélags um stuðning Vestmannaeyjabæjar vegna umsóknar um að ÍBV haldi Evrópukeppni í Futsal í Vestmannaeyjum
Fjölskyldu- og tómstundaráð styður umsókn knattspyrnudeildar ÍBV-íþróttafélags um að halda Evrópukeppni í Futsal í Vestmannaeyjum um miðjan ágúst 2012. Ráðið getur ekki orðið við beiðni um fjárhagslegan stuðning en heimilar knattspyrnudeildinni notkun á íþróttasölum bæjarins í 3 - 4 daga án endurgjalds á meðan á móti stendur.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50



