24.04.2012
Umhverfis- og skipulagsráð - 159
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 159. fundur haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs, þriðjudaginn 24. apríl 2012 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Sigurður Smári Benónýsson, Ólafur Þór Snorrason.
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
Hrafnkell Proppé skipulagshönnuður frá ALTA ehf. kynnti gögn skipulagsbreytinga í málum 1 og 2.
Dagskrá:
1. 201110163 - Aðalskipulagsbreyting - Hásteinsgryfja/íþróttasvæði.
Lögð fram tillaga ALTA ehf, f.h. Vestmannaeyjabæjar dags. 24. apríl 2012. Svæði U-2, svæði til sérstaka nota stækkar til norðurs. Hverfisvernd í Hásteinsgryfju felld út.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda breytingartillögu í auglýsingu og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að auglýst verði breytingartillaga Aðalskipulags, svæði U-2 og HV-2 í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010."
2. 201203025 - Deiliskipulag íþrótta-og útivistarsvæðis, breytt deiliskipulag
Lögð fram tillaga ALTA ehf, f.h. Vestmannaeyjabæjar dags. 24. apríl 2012. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir byggingarreit sex hæða hótels í Hásteinsgryfju og tjaldsvæði við Þórsheimili.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda breytingartillögu í auglýsingu og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að auglýst verði breytingartillaga deiliskipulags íþrótta-og útivistarsvæðis við Hástein í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010."
3. 201201043 - Miðstræti 20, breytt deiliskipulag
(2 mál frá 154 fundi - frestað erindi)
Lögð fram tillaga Páls Zóphóníassonar, TPZ ehf. f.h. lóðarhafa dags. 14. febrúar 2012 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi lóðar. Byggingarreitur stækkar, nýtingarhlutfall sem og hámarks byggingarmagn breytist.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda breytingartillögu í auglýsingu og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að auglýst verði breytingartillaga deiliskipulags Miðstræti 20 í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010."
4. 201203082 - Strandvegur 74. Fyrirspurn varðar breytingu á aðalskipulagi.
(10 mál frá 158 fundi - frestað erindi)
Vals Andersen f.h. Geldungs ehf. óskar eftir breytingu á aðalskipulagi varðandi breytta notkun á 2-3 hæð Strandveg 74.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og felur skipulagsfulltrúa að vinna minnisblað um feril skipulagsbreytinga og kvaðir sem kunna að vera settar á landnotkun.
5. 201203040 - Brekastígur 7c. Umsókn um byggingarleyfi
(4 mál frá 157 fundi - grenndarkynning)
Tómas Bjarki Kristinsson Brekastíg 7c sækir um leyfi fyrir stækkun íbúðarhúsnæðis sbr. innsend gögn.
Teikn. Ágúst Hreggviðsson.
-Engar athugasemdir bárust úr grenndarkynningu.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við byggingarregugerð nr. 112/2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 78.8982 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010 og Skipulagslögum nr. 123/2010
6. 201204035 - Bessahraun 1 - 1a. Umsókn um byggingarleyfi
Þórarinn Þórhallsson og Guðni Hjörleifsson lóðarhafar Bessahrauni 1-1a sækja um byggingarleyfi fyrir parhúsi sbr. innsend gögn.
Teikn. Ágúst Hreggviðsson.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við deiliskipulag svæðis og byggingarregugerð nr. 112/2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 228.170 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010 og Skipulagslögum nr. 123/2010
7. 201204038 - Strandvegur 72. Umsókn um byggingarleyfi
Valur Andersen f.h. Geldungs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði við Strandveg 72 sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við deiliskipulag svæðis og byggingarregugerð nr. 112/2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 96.534 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010 og Skipulagslögum nr. 123/2010
8. 201204037 - Strandvegur 76. Umsókn um breytta notkun og leyfi fyrir að innrétta m.hl. 218-4803 sem veitingahús.
Indiana Audunsdottir f.h. eigenda eignarhluta 218-4803 sækir um leyfi fyrir breyttri notkun á 2 hæð húsnæðis, úr iðnaðarhúsnæði í veitingahúsnæði sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki eigenda húsnæðis.
Teikn: Magnús Jensson
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og vísar erindi til umsagnaraðila með vísan til 2.4.1. gr. Byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
9. 201204050 - Bárustígur 2. Umsókn um byggingarleyfi
Þröstur Bjarnhéðinsson sækir um leyfi fyrir breytingum á atvinnuhúsnæði Bárustíg 2 sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og vísar erindi til umsagnaraðila með vísan til 2.4.1. gr. Byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
10. 201204024 - Tangagata - Framkvæmdaleyfi
Ólafur Þór Snorrason f.h. Vestmannaeyjabæjar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir breytingum á Tangagötu sbr. uppdráttur deiliskipulags.
Afgreiðsla:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 17.4.2012 þar sem framkvæmdir eru í samræmi við gildandi deiliskipulags svæðis.
11. 201203088 - Kirkjuvegur 28. Umsókn um breytta notkun fasteignar.
Hilmir Þorvarðarson Kirkjuvegi 28 sækir um breytta notkun fasteignar sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 2.4.2012
12. 201204034 - Faxastígur 3. Umsókn um breytta notkun.
Jónas Þór Sigurbjörnsson Faxastíg 3 sækir um breytta notkun fasteignar sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 17.4.2012
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:10



