20.04.2012

Framkvæmda- og hafnarráð - 125

 
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 125. fundur
 
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
föstudaginn 20. apríl 2012 og hófst hann kl. 12:00
 
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Íris Róbertsdóttir, Ragnar Óskarsson, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Guðmundur Þ B Ólafsson, Ragnar Þór Baldvinsson, Ólafur Þór Snorrason.
 
Fundargerð ritaði:  Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
 
Dagskrá:
 
1.
201204046 - Ársreikningur Vestmannaeyjahafnar 2011
Farið yfir ársreikning Hafnarsjóðs 2011.
Ráðið samþykkir að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í Bæjarstjórn
 
2.
201204029 - Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2011.
Farið yfir ársreikninga og þá málaflokka sem falla undir verksvið Framkvæmda- og hafnarráðs.
 
3.
201204045 - Endurnýjun á pallbíl ÞMV
Guðmundur ÞB Ólafsson gerði grein fyrir þörf á endurnýjun á vinnubíl fyrir ÞMV en gamli bíllinn er MMC árgerð 1993.
Ráðið samþykkir að leitað verði eftir hentugum bíl í stað núverandi bifreiðar.  Verði af kaupum munu verða gerða ráðstafanir til að mæta útgjöldum innan fjárhagsáætlunar 2012.
 
4.
201204022 - Fyrirspurn Fráveitu Vestmannaeyja um verð vegna smíði á sökkum og hlífum fyrir útrásarlögn fráveitu norðan Eiðis.
Ólafur Þ Snorrason kynnti niðurstöður verðfyrirspurnar vegna smíði á sökkum og hlífum fyrir útrásarlögn Fráveitu. Verðupplýsingar bárustfrá tveimur aðilum, frá 2Þ ehf. kr. 21.641.250 og frá Steina og Olla ehf. kr. 24.262.500.
Ráðið samþykkir að fela framkvæmdastjóra að semja við 2Þ ehf. um smíði á sökkum og hlífum vegna útrásar Fráveitu Vestmannaeyja.
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.23
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159