17.04.2012
Bæjarráð - 2932
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2932. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
þriðjudaginn 17. apríl 2012 og hófst hann kl. 12.00
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Páll Marvin Jónsson og
Elliði Vignisson.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Gunnlaugur Grettisson sat fundinn við umræðu og afgreiðslu á fyrsta máli á dagskrá (201204028)
Dagskrá:
1. 201204028 - Kauptilboð í eignarhluta Vestmannaeyjabæjar í fasteigninni Strandvegi 30 Vestmannaeyjum
Erindi frá Þekkingarsetri Vestmannaeyja dags. 15. apríl sl.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð í fasteignina og felur bæjarstjóra að ganga frá samningum þar að lútandi.
2. 201204029 - Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2011.
Bæjarráð fór yfir fyrirliggjandi ársreikning og vísaði honum til umræðu í bæjarstjórn sem fundar síðar í dag, 17. apríl.
3. 201106088 - Til umsagnar frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjald
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (heildarlög), 657. mál og frumvarp til laga um veiðigjöld (heildarlög), 658. mál.
Þess er óskað að undirritaðar umsagnir berist fyrir 20. apríl nk.
Bæjarráð Vestmannaeyja varar Alþingi sterklega við því að samþykkja óbreytt fyrirliggjandi frumvörp ríkisstjórnarinnar til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld.
Greinargerð óháðra sérfræðinga, sem fylgir frumvörpunum og sem unnin var að beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, ætti ein og sér að duga þingmönnum til að staldra við og ígrunda gaumgæfilega áhrif lagasetningarinnar á rekstur og afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og á sjávarbyggðir landsins.
Sérfræðingarnir búast við umhleypingum á næstu árum meðan útgerðin lagar sig að breyttum aðstæðum og segja að áformuð lagasetning muni verða mjög íþyngjandi fyrir rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Enn fremur að hækkun veiðigjalds muni án efa kippa stoðum undan skuldsettari útgerðarfyrirtækjum.
Þá benda sérfræðingarnir á að byggðaaðgerðir frumvarpsins séu ólíklegar til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að, enda skorti enn þann langtímastöðugleika sem getur skapað grundvöll fyrir uppbyggingu atvinnulífs í sjávarbyggðum.
Bæjarráð telur að þessi varnaðarorð, sem fylgja frumvörpunum, séu meira en næg ástæða fyrir alþingismenn til að leggja málin til hliðar frekar en að stuðla að því að lögfesta þau og stuðla þannig að umhleypingum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir fólk og fyrirtæki í sjávarbyggðum landsins.
Bæjarráð gerir ma. athugasemdir við eftirfarandi:
*Sá landsbyggðaskattur sem kallaður er auðlindagjald er fáheyrt hár. Boðað auðlindagjald hefði verið 5 milljarðar fyrir atvinnulífið í Vestmannaeyjum árið 2010 af 24 milljörðum fyrir landið allt. Það gerir sértæka gjaldheimtu upp á tæplega 1.2 milljónir pr. íbúa í Vestmannaeyjum einungis það ár. Slíkur sértækur skattur kemur ofan á allt annað sem íbúar og atvinnulífið í Vestmannaeyjum greiðir til jafns á við aðra.
*Ósanngirnin og óréttlætið í því að leiða gríðarlega skattheimtu yfir landsbyggðina þegar loks sjást þar merki um hagvöxt er alger.
*Skattlagning á borð við það sem boðuð er í frumvarpinu merkir að endurnýjun tækja, samfélagsleg uppbygging, framþróun í veiðarfæragerð, framþróun tæknibúnaðar, uppbygging mannvirkja, þróun markaða, aukinn virðisauki sjávarfangs og fleira kemur til með að sitja á hakanum.
*Aukin áhersla á handstýringu og potta dregur úr hagkvæmni og stór eykur áhrif stjórnmálamanna á viðskipti í sjávarútvegi. Úr slíkum áhrifum þarf frekar að draga.
Á það skal að lokum bent að Íslendingar lifa á atvinnugrein sem er niðurgreidd af nágrannaþjóðum. Skýrsla Oceana sem kom út í september fjallaði um styrki ESB til sjávarútvegsfyrirtækja. Niðurstaða skýrslunnar var sú að greinin fékk styrki árið 2009 sem samsvaraði 50% af verðmæti aflans. Það myndi merkja að Íslendingar hefðu þurft að greiða 76,5 milljarða með sjávarútveginum í fyrra í stað þess að nýta hann sem undirstöðu hagkerfisins. Íslenskir stjórnmálamenn hljóta að staldra við áður en þeir grípa til óvandaðra og illa undirbúinna breytinga á stjórnun sjávarútvegs.
4. 200705123 - Félagsleg heimaþjónusta - almennt
Samræming á launum starfsmanna í félagslegri heimaþjónustu og í frekari liðveislu vegna samþættingar á þjónustu.
Bæjarráð samþykkir samþættinguna á þjónustunni og samræmingu á launum starfsmanna samhliða því.
5. 201204030 - Arðgreiðsla Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. vegna ársins 2011
Erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. dags 11. apríl s.l. þar sem fram kemur að sjóðurinn muni greiða út arð sem nemur 475.500.000 kr. sem skiptist niður á hluthafa sjóðsins. Hlutur Vestmannaeyjabæjar af því er 27.645.570 kr. fyrir greiðslu fjármagnstekjuskatts.
6. 201204019 - Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
Erindi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 2. apríl s.l.
Bæjarráð gagnrýnir harðlega samning um tímabundna breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og þá sérstaklega þann hluta samningsins sem snýr að efndum ríkisins. Samningurinn hefur aukið kostnað Vestmannaeyjabæjar við tónlistarkennslu um 2.780.826 kr án þess að því fylgi bættur hagur fyrir tónlistarkennslu í Vestmannaeyjum.
Bæjarráð furðar sig á ferli málsins. Í upphafi var hafinn vandaður undirbúningur að greiningu málsins af hálfu sambandsins og fulltrúa ráðuneyta svo unnt yrði að byggja samninginn á traustum grunni. Þá hljóp skyndilega mikill asi í málið af hálfu ráðherra sem þrýstu á um að skrifað yrði undir einfaldan samning milli aðila þ. 13. maí 2011, á sama tíma og ein opnunarhátíðin af nokkrum var haldin í Hörpu. Sveitarfélög fengu þá þær upplýsingar að kostnaðurinn á ársgrundvelli myndi nema 480 m.kr. m.v. forsendur um 711 nemendur sem það gaf upp og að það væri tilbúið að standa undir þeim kostnaði. Það var þó með því skilyrði að sveitarfélögin tækju að sér önnur verkefni frá ríkinu að verðmæti 230 m.kr. Nettógreiðsla ríkisins var því 250 m.kr. m.v. þessar forsendur. Því miður létu sveitarfélög undan þessum ótímabæra þrýstingi enda lá ráðherrum mikið á að sýna þjóðinni að nú skyldi efla tónlistarfræðslu í landinu. Hvorki meira né minna en þrír fagráðherrar mættu við undirritunina auk forsætisráðherra sem var í broddi fylkingar. Tilkynnt var að nú skyldu átthagafjötrar í tónlistarnámi heyra sögunni til og allt yrði í blóma í tónlistarfræðslumálum á Íslandi.
Þar sem samningurinn var í raun einungis umgjörð um málið var hafist handa við að útfæra hann. Það tók að sjálfsögðu sinn tíma, ekki síst vegna þess að oft vissu sveitarfélögin ekki hver væri í raun okkar viðsemjandi í málinu. Að lokum var svo skrifað undir samkomulag um útfærsluna sem fól í sér tímabundna breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Það var gert í október 2011. Þá höfðu tónlistarskólarnir fyrir löngu lokið við að innrita nemendur í skólana og kennsla var hafin fyrir allnokkru. Þá þegar kom í ljós að forsendur ríkisins stóðust engan veginn. Nemendur í þessu tiltekna námi voru 822 eða 111 fleiri en forsendur ríkisins sögðu til um. Umframkostnaðurinn á ársgrundvelli nemur 121 m.kr. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga deildi út því takmarkaða fjármagni sem sýndarsamningurinn heimilaði. Það hefur leitt til þess að nú eiga þrír virtir og rótgrónir tónlistarskólar í verulegum fjárhagsvandræðum. Í samningaviðræðum sambandsins við ráðuneytin til að ná fram leiðréttingu á þessu hafa sveitarfélögin mætt algjörri neitun af hálfu fjármálaráðuneytisins. Það er því eins og ríkisvaldið telji sig algjörlega ábyrgðarlaust gagnvart þessum forsendubresti í samningum aðila og gefur hinum fögru fyrirheitum um eflingu tónlistarnáms langt nef.
Bæjarráð telur þetta mál vera í óásættanlegri stöðu. Framkoma ríkisins í málinu er fyrir neðan allar hellur. Bæjarráð Vestmannaeyja tekur undir þá kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga að ríkið greiði þær 121 m.kr. sem vantar.
7. 201204020 - Til umsagnar umsókn um breytingu á rekstrarleyfi fyrir Cafe María og Conero
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
Að öðru leyti vísast í reglur um afgreiðslutíma veitinga- og skemmtistaða.
8. 201204017 - Til umsagnar umsókn vegna rekstrarleyfis fyrir kaffihús í Blómabúð Vestmannaeyja
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.25



