04.04.2012

Framkvæmda- og hafnarráð - 124

 
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 124. fundur
 
 
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
miðvikudaginn 4. apríl 2012 og hófst hann kl. 12.00.
 
 
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Bergvin Oddsson, Íris Róbertsdóttir, Ragnar Þór Baldvinsson, Ólafur Þór Snorrason, Andrés Þorsteinn Sigurðsson.
 
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
 
 
 
Dagskrá:
 
1. 201204008 - 100 ára afmæli Slökkviliðs Vestmannaeyja 3. september 2013
Þann 3.sept. 2013 verða liðin 100 ár frá stofnun Slökkviliðs Vestmannaeyja og af því tilefni fór Ragnar Þór Baldvinsson yfir helstu atriði í sögu Slökkviliðs Vestmannaeyja. Ráðgert er minnast afmælisins á margvíslegan hátt og meðal annars að lagfæra og koma í sýningarhæft ástand gamla brunabílnum af gerðinni Chevrolet árgerð 1929 en bifreiðin er nú staðsett í Þjónustumiðstöð og verður þar áfram meðan á endurbótum stendur. Þessi bíll var notaður hjá Slökkviliði Vestmannaeyja allt fram að gosinu á Heimaey 1973.
Ráðið felur slökkvistjóra að gera kostnaðarmat á lagfæringum á gamla brunabílnum og frekari undirbúningi að því að minnast 100 ára afmælis Slökkviliðs Vestmannaeyja á árinu 2013 en á því ári verða liðin 40 ár frá upphafi og lokum eldgossins á Heimaey 1973. Ráðið mun að fengnum upplýsingum um kostnað taka til afgreiðslu áætlaðar fjárveitingar vegna 2012 og 2013.
 
 
2. 201011004 - Rekstur upptökumannvirkja Vestmannaeyjahafnar
Farið yfir rekstur upptökumannvirkja Vestmannaeyjahafnar frá því að þau voru tekin í notkun eftir endurbyggingu í júlí 2011.
 
 
3. 201112078 - Endurbygging Binnabryggju 2012-2013
Farið yfir stöðuna á endurbyggingu Binnabryggju. Reiknað er með að framkvæmdir við nýtt stálþil og frágangur svæðis deilist á 2 ár. Framlag ríkisins er 38 milljónir skv. samgönguáætlun, sem kemur til útborgunar 2012.
Ráðið samþykkir að fela framkvæmdastjóra framgang málsins, þar með talið að heimila Siglingastofnun að bjóða út 140m. af stálþili sem miðast við að dýpi við kant verði 9m. í stað 8m. nú. Gert verði ráð fyrir framkvæmdum við Binnabryggju í fjárhagsáætlun Vestmannaeyjahafnar 2013 en áætlun í ár gerir fyrir 60 milljónum til verksins.
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.20.
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159