03.04.2012

Bæjarráð - 2931

 
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2931. fundur
 
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
þriðjudaginn 3. apríl 2012 og hófst hann kl. 12.00
 
 
Fundinn sátu:
Páll Scheving Ingvarsson, Páll Marvin Jónsson og Gunnlaugur Grettisson.
 
Fundargerð ritaði:  Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
 
 
 
Dagskrá:
 
1.
201107004 - Útboð á rekstri leikskólans Sóla
Erindi frá Hjallastefnunni ehf. þar sem þeir óska eftir því að yfirtaka allt starfsmannahald Sóla frá og með 15. apríl nk.
Hjallastefnan óskar eftir að taka við starfsmannahaldi fyrr en áætlað var og skýrist það af tvennu:
  • Að óvissu starfsmanna um starfsmannahald við yfirtökuna verði eytt sem fyrst.
  • Að nauðsynlegar skipulagsbreytingar í starfsmannahaldi liggi fyrir áður en nýtt skólaár hefst í haust.
 
Bæjarráð samþykki beiðni Hjallastefnunnar um yfirtöku á öllu starfsmannahaldi frá og með 15. apríl nk. með öllum þeim réttindum og skyldum sem kveðið er á um samkvæmt lögum nr. 72/2002 (Lög um réttarstöðu starfsmanna við aðildaskipti að fyrirtækjum). Samþykkið er skilyrt við að útbúinn verði sérstakur samningur um umrædda yfirtöku og að afstaða stéttarfélaga liggi fyrir. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við Hjallastefnuna.
 
2.
201105106 - Opnunartími veitingahúsa
Erindi frá sýslumanninum í Vestmannaeyjum dags. 30. mars sl. þar sem farið er frá á að opnunartími á veitingastöðum bæjarins í flokki II verði endurskoðaður, einnig er þess farið á leit við bæjaryfirvöld að opnunartími veitingahúsa bæjarins verði styttur um 2 klst. eða til kl. 03.30 og húsin loki kl. 04.00.
 
 
Varðandi flokk II um veitingastaði þá áréttar bæjarráð að lögin um veitingastaði nr. 85 frá 2007 gildi varðandi opnunartíma í þessum flokki sem og öðrum.
Bæjarráð bendir sýslumanni á að endurskoða þurfi eyðublöð vegna umsókna um rekstraraðila til sölu og gistingar í samræmi við núgildandi lög.
Vegna niðurskurðar í rikisframlögum til löggæslu í Vestmannaeyjum leggur  bæjarráð til að opnunartími veitingahúsa í flokki III verði styttur um 1 klst eða til 4.30 og húsin loki kl. 05.00.
Bæjarráð leggur til að reglur um opnunartíma veitingar- og skemmtistaða í Vestmannaeyjum sem samþykktar voru í bæjarstjórn Vestmannaeyja þann 26. apríl 2006 verði endurskoðaðar í heild sinni þar sem ný lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald tóku gildi eftir samþykkt bæjarstjórnar á sínum tíma.
 Bæjarráð felur framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að leggja fram drög að nýjum, endurskoðuðum reglum fyrir 1. júní n.k.
 
 
3.
201204001 - Til umsagnar umsókn vegna veitinga- og rekstrarleyfis fyrir Leikfélag Vestmannaeyja
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um veitinga- og rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
4.
201203093 - Til umsagnar umsókn vegna endurnýjunar rekstrarleyfis fyrir veitingahúsið Kaffi Kró ehf.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
5.
201203083 - Til umsagnar umsókn vegna leyfis til heimagistingar að Faxastíg 3
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um leyfi til heimagistingar svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
6.
201204004 - Umsögn vegna umsóknar Conero um tækifærisleyfi vegna lengri opnunartíma um páskana.
 
Bæjarráð bendir á að veitingaleyfi í flokki II heimilar einungis opnun til kl. 23.00  eins og fram kemur í  erindi frá sýslumannsembættinu þann 30. mars s.l.  og getur bæjarráð þar af leiðandi ekki veitt jákvæða umsögn um rýmri opnunartíma um páskana.
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12.40
 
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159