28.03.2012
Umhverfis- og skipulagsráð - 158
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 158. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
miðvikudaginn 28. mars 2012 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Sigurður Smári Benónýsson, Ólafur Þór Snorrason og Björgvin Eyjólfsson.
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
|
1.
|
201203024 - Deiliskipulag Eldheima, skipulagsbreyting
|
|
|
Skipulags- og byggingafulltrúi lagði fram breytingartillögu TPZ ehf. af deiliskipulagi Eldheima, safnasvæði gosminja við Suðurveg.
|
||
|
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda deiliskipulagið í auglýsingu og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að auglýst verði breytingartillaga deiliskipulags Eldheima við Suðurveg í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010."
|
||
|
|
||
|
2.
|
201002010 - Deiliskipulagi íþrótta-og útvistasvæðis við Hástein.
|
|
|
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti fyirr ráðinu stöðu deiliskipulagbreytingar nr. 522/2010.
|
||
|
Afgreiðsla:
Það er mat ráðsins að samþykkt skipulagsbreyting samræmist ekki ákvæðum greinargerðar Aðalskipulags Vestmannaeyja 2002-2014 og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn samþykkir á grundvelli 2 tl. 25 gr. Stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að afturkalla samþykkt bæjarstjórnar frá 21 apríl 2010 er varðar breytingu á deiliskipulagi þrótta- og útivistarsvæðis við Hástein, auglýst í B-deild Stjórnartíðinda 25 júní 2010. Afturköllun bæjarstjórnar byggist á ósamræmi milli greinargerðar gildandi Aðalskipulags og samþykktar á auglýstri deiliskipulagsbreytingu nr. 522/2010."
|
||
|
|
||
|
3.
|
201202047 - Skólavegur 41. Umsókn um byggingarleyfi og stækkun lóðar.
|
|
|
(2 mál frá 157 fundi - frestað erindi)
Guðfinnur Arnar Kristmannsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi sbr. innsend gögn. Teikn. Haraldur Valbergsson -Eitt athugasemdabréf barst úr grenndarkynningu. |
||
|
Afgreiðsla á innsendu bréfi:
Ráðið bendir bréfriturum á að lóðarmörk Skólavegs 41 til norðurs breytast ekki frá fyrri lóðarsamningi. Breidd innkeyrslu að baksvæði við Hvítinga er því með engu móti breytt og aðkoma að bílgeymslum húsa við Kirkjuveg 84 og 86 verður óbreytt. Lóðarmörk að austan liggja samsíða lóðum aðliggjandi húsa við Skólaveg norðan lóðarinnar. Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið. Ráðið samþykkir lóðarblað umhverfis-og framkvæmdasviðs dags. 28.3.2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 149.188 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Gjald vegna lóðarleigusamnings kr. 26.327 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010 og Skipulagslögum nr. 123/2010
|
||
|
|
||
|
4.
|
201103079 - Umsókn um parhúsalóðir við Kleifarhraun.
|
|
|
Sverrir H. Pálsson fh. GE verk sf. sækir um parhúsalóðir nr. 4, 6 og 8 við Kleifahraun sbr. innsend gögn.
|
||
|
||
|
|
||
|
5.
|
201203075 - Vestmannabraut 34. Umsókn um byggingarleyfi og breytt deiliskipulag lóðar.
|
|
|
Magnús Ingi Eggertsson óskar eftir leyfi til að breyta deiliskipulagi lóðar, sótt er um leyfi til að stækka íbúðarhúsnæði sbr. innsend gögn.
|
||
|
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir með tilvísan í 43.2. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vestmannabraut 30, 33, 35, 36 og 37. Bárustíg 13 og 15. Vesturvegi 5.
|
||
|
|
||
|
6.
|
201203072 - Hilmisgata 4. Umsókn um byggingarleyfi og breytt deiliskipulag lóðar.
|
|
|
Þórarinn Sigurðsson f.h. húsfélags Hilmisgötu 4 óskar eftir leyfi til að breyta deiliskipulagi lóðar, sótt er um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda. |
||
|
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir með tilvísan í 43.2. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vestmannabraut 33, 35 og 37. Hilmisgötu 2a.
|
||
|
|
||
|
7.
|
201203074 - Áshamar 1A-D. Umsókn um byggingarleyfi
|
|
|
Magnús Sigurðsson f.h. húseigenda sækir um leyfi fyrir breytingum á raðhúsi 1A sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda. |
||
|
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið.
|
||
|
|
||
|
8.
|
201203068 - Hreinsunardagur 12 maí og hreinsunarátak 2012.
|
|
|
Árlegt vorhreinsunarátak verður frá 28 apríl til 12. maí n.k. Hreinsunardagur á Heimaey, þar sem félagasamtök taka sig saman og hreinsa ákveðin svæði á Heimaey verður haldinn 12. maí n.k.
|
||
|
|
||
|
9.
|
201203073 - Ársfundur Umhverfisstofnunar 2012.
|
|
|
Ársfundur Umhverfisstofnunar 2012 verður haldinn í Reykjavík 30 mars nk.
|
||
|
Upplesið erindi.
|
||
|
|
||
|
10.
|
201203082 - Strandvegur 74. Fyrirspurn varðar breytingu á aðalskipulagi.
|
|
|
Tekið fyrir bréf Vals Andersen f.h. Geldungs ehf. óskað er eftir viðræðum við skipulagsráð varðandi breytta notkun lóðar Strandveg 74.
|
||
|
Afgreiðsla:
Ráðið felur skipulagsfulltrúa og formanni ráðsins að ræða við bréfritara.
|
||
|
|
||
|
11.
|
201203085 - Sorpskýli við Rauðagerði
|
|
|
Guðmundur Þ. B. Ólafsson f.h. Vestmannaeyjabæjar sækir um leyfi fyrir sorpskýli sunnan við lóð Kirkjugerðis Dalhrauni 1.
|
||
|
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið.
|
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:55



