21.03.2012
Umhverfis- og skipulagsráð - 157
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 157. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
miðvikudaginn 21. mars 2012 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form., Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Sigurður Smári Benónýsson, Ólafur Þór Snorrason, Valur Bogason.
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
Pétur Fannar Hreinsson vék af fundi við afgreiðslu á fyrsta erindi.
Dagskrá:
1. 201106061 - Deiliskipulag Ísfélags Vestmannaeyja við FES Strandvegi. Tillaga.
(1 mál frá 156 fundi)
Páll Zóphóníasson f.h. Ísfélags Vestmannaeyja sendir inn nýja deiliskipualgstillögu. Um er að ræða nýtt deiliskipulag á áður ódeiliskipulögðu svæði.
Fyrir liggja umsagnir frá Siglingastofnun, Fornleifavernd, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og bókun framkvæmda-og hafnarráðs frá 6 mars sl.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda deiliskipulagið í auglýsingu og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að auglýst verði tillaga að deiliskipulagi fyrir lóð fiskimjölsverksmiðju Ísfélgas Vesmannaeyja í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010."
2. 201202047 - Skólavegur 41. Umsókn um byggingarleyfi og stækkun lóðar.
(4 mál frá 155 fundi - grenndarkynning)
Guðfinnur Arnar Kristmannsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi sbr. innsend gögn.
Teikn. Haraldur Valbergsson
-Ein athugasemd barst úr grenndarkynningu.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar erindinu til næsta fundar.
3. 201202081 - Heiðarvegur 9. Umsókn um byggingarleyfi
(14 mál frá 155 fundi - grenndarkynning)
Þórður Sigursveinsson Heiðarveg 9 sækir um leyfi fyrir sólhúsi sbr. innsend gögn.
-Engar athugasemdir bárust úr grenndarkynningu.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við byggingarregugerð nr. 112/2012.
Byggingarleyfisgjald kr. 43.879 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010 og Skipulagslögum nr. 123/2010
4. 201203040 - Brekastígur 7c. Umsókn um byggingarleyfi
Tómas Bjarki Kristinsson Brekastíg 7c sækir um leyfi fyrir stækkun íbúðarhúsnæðis sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda erindið til grenndarkynningar sbr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Að grenndarkynningu lokinni mun erindið verða tekið til afgreiðslu.
Gjald vegna grenndarkynningar er kr. 15.552 skv. gjaldskrá nr. 268/2012.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
5. 201203044 - Umsókn um lóð í botni Friðarhafnar.
Sigurjón Pálsson f.h. Ísfélags Vestmannaeyja hf sækir um allt að 5000m2 lóð í botni Friðarhafnar sbr. innsent bréf.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að vísa málinu til starfshóps um landnýtngu á hafnarsvæði.
6. 201203058 - Ásavegur 18, Fyrirspurn
Ágúst Ingi Jónsson Ásavegi 18 óskar eftir afstöðu ráðsins varðandi stækkun á bílgeymslu til norðurs sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið er hlynnt erindinu og óskar eftir frekari gögnum sbr. ákvæði byggingarreglugerðar 112/2012.
7. 201203036 - Vestmannabraut 33. Afsal lóðarhluta
Elvar Örn Jóhannsson Vestmannabraut 33 afsalar hluta úr lóð sinn til lóðarhafa Hilmisgötu 4. sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda lóðar Vestmannabraut 33.
Afgreiðsla:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 19.3.2012.
8. 201203037 - Hilmisgata 4. Umsókn um stækkun lóðar.
Þórarinn Sigurðsson f.h. lóðarhafa Hilmisgötu sækir um stækkun lóðar sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 19.3.2012.
9. 201203029 - Miðstræti 23. Umsókn um breytta notkun efri hæðar og breytingar á húsnæði.
Hreggviður Ágústsson f.h. Íbenholt ehf. Miðstræti 23 sækir um leyfi fyrir breytingum á húsnæði og leyfi til að skipta húsnæði í tvo eignarhluta sbr. innsend gögn.
Teikn. Ágúst Hreggviðsson.
Afgreiðsla:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 19.3.2012.
10. 201203064 - Malarvöllur, umsókn um afnot.
Jón Marvin Pálsson f.h. Ludus ehf sækir um afnot af malarvellinum við Löngulá undir litboltastarfsemi
tímabilið 20. mars til 1. október 2012.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir leyfi til 1.10.2012. Ráðið felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfisbréf sbr. umræður á fundinum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:43



