20.03.2012

Framkvæmda-og hafnarráð - 123

 
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 123. fundur
 
 
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
þriðjudaginn 20. mars 2012 og hófst hann kl. 16:30
 
 
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Bergvin Oddsson, Íris Róbertsdóttir, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Friðrik Björgvinsson, Ólafur Þór Snorrason, Andrés Þorsteinn Sigurðsson.
 
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
 
 
 
Dagskrá:
 
1. 201112078 - Endurbætur á Binnabryggju 2012
Fyrir fundinum lá minnisblað frá Siglingastofnun dags. 15.mars 2012 þar sem farið var yfir ástand Binnabryggju og mat á viðgerðarþörf. Fram kom að tillaga Siglingastofnunar er að sett verði nýtt stálþil frá vesturhorni og austur fyrir Skáa og 10 metra inn á Skáann. Áætlaður hlutur Ríksins skv. samgönguáætlun er 38 milljónir króna. Verkið myndi verða framkvæmt á tveimur árum.
Ráðið samþykkir að taka ákvörðun um framhald málsins á sérstökum fundi í næstu viku en þá mun liggja fyrir með hvaða hætti farið verði í verkið og fjármögnun þess.
 
2. 201203039 - Starfshópur um nýtingu hafnarsvæðis
Fyrir lá fundargerð starfshóps um landnýtingu á hafnarsvæði frá 13.mars 2012. Á fundi starfshópsins var samþykkt var að kalla til hagsmunaaðila á hafnarsvæði.
 
 
3. 201011004 - Rekstur upptökumannvirkja Vestmannaeyjahafnar
Stýrihópur um endurbyggingu upptökumannvirkja Vestmannaeyjahafnar lagði fram hugmyndir að rekstrarfyrirkomulagi upptökumannvirkja.
Ráðið felur stýrihóp að vinna að nánari útfærslu og leggja fyrir ráðið á næsta fund ráðsins.
 
 
 
4. 201203062 - Útboð á sorphirðu og rekstri móttökustöðvar fyrir sorp.
Ólafur Þ Snorrason kynnti tillögur að útboði vegna sorphirðu og reksturs móttökustöðvar ásamt ráðstöfun úrgangs en núverandi samningur við Íslenska Gámafélagið hf. rennur út 30.júní n.k.
Ráðið samþykkir að fela Ríkiskaupum að bjóða út sorphirðu í Vestmannaeyjum annars vegar og rekstur móttökustöðvar og ráðstöfun úrgangs hinsvegar til næstu 5 ára. Framkvæmdatjóra er falið að vinna að málinu.
 
5. 201203044 - Umsókn um lóð í botni Friðarhafnar.
Fyrir lá umsókn frá Ísfélagi Vestmannaeyja hf um lóð í botni Friðarhafnar
Ráðið samþykkir að vísa málinu til starfshóps um landnýtngu á hafnarsvæði.
 
6. 201202075 - Friðarhöfn 160712. Umsókn um stækkun lóðar.
Fyrir lá umsókn frá Net ehf. um stækkun lóðar við húsnæði Nets ehf. á Eiði
Ráðið samþykkir að vísa málinu til starfshóps um landnýtngu á hafnarsvæði.
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.10
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159