20.03.2012
Bæjarráð - 2930
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2930. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
þriðjudaginn 20. mars 2012 og hófst hann kl. 12.00
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Marvin Jónsson, Elliði Vignisson og Jórunn Einarsdóttir.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Kristín Jóhannsdóttir vék af fundi eftir umræðu og afgreiðslu á 1. máli á dagskrá. (nr. 201201067) Jórunn Einarsdóttir sat fundinn við umræðu á 3. máli á dagskrá en sat hjá við afgreiðslu málsins. (nr. 201203018)
Dagskrá:
|
1.
|
201201067 - Ferð Kristínar Jóhannsdóttur ferðmálafulltrúa á ITB (Internationaler Tourismus Börse) árleg ferða- og markaðskaupstefna 7. - 11. mars í Berlín
|
|
|
Kristin Jóhannsdóttir kom á fundinn og upplýsti fundarmenn um kynningar- og markaðsstarfið sem fram fór á ferða- og markaðskaupstefnunni.
|
||
|
Bæjarráð þakkar kynninguna.
|
||
|
|
||
|
2.
|
201103107 - Áfangastaðurinn Vestmannaeyjar
|
|
|
Erindi frá undirbúningsnefnd að stofnun klasasamstarfs í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum.
|
||
|
Fyrir lá mat undirbúningsnefndar að stofnun klasasamstarfs ferðaþjónustunnar í Vestmannaeyjum. Þar kemur fram að árangur
af samstarfi aðila á seinustu vikum og mánuðum hafi orðið sameiginleg framtíðarsýn á áherslur í ferðamálum og hópurinn vinni nú vel saman. Lagt er til að verkefnastjórn vegna verkefnisins“ ?áfangastaðurinn Vestmannaeyjar“? verði flutt til Eyja og unnin á heimavelli.
Bæjarráð fellst á rök undirbúningsnefndar og felur bæjarstjóra að leita leiða til að gera þær breytingar á verkefnastjórnun sem nefndar eru í bréfinu og fela aðilum í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum aukið vægi í verkefnastjórnun ferðaþjónustu.
|
||
|
|
||
|
3.
|
201203018 - Umsókn um breytingu á deildarstjórastöðu í GRV (Bsk).
|
|
|
Ósk um breytingu á deildarstjórastöðu í GRV (Bsk). Bréf frá skólastjóra GRV.
|
||
|
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu en vísar því að öðru leyti til gerðar fjárhagsáætlunar.
|
||
|
|
||
|
4.
|
201203041 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
|
|
|
Bréf frá LS dags. 6. mars s.l.
|
||
|
|
||
|
5.
|
201203010 - Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
|
|
|
Bréf frá LS dags. 27. febrúar s.l.
|
||
|
|
||
|
6.
|
201203021 - Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins - skýrsla
|
|
|
Erindi frá innanríkisráðuneytinu dags. 2. mars s.l. þar sem fram kemur að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skipað 6 manna nefnd í þeim tilgangi að vinna að eflingu sveitarstjórnarstigsins í landinu.
|
||
|
|
||
|
7.
|
201202099 - Jöfnunarsjóðsframlag 2011
|
|
|
Erindi frá Innanríkisráðuneytinu dags. 16. febrúar s.l. Heildaryfirliti yfir framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2011
|
||
|
|
||
|
8.
|
201202059 - Til umsagnar umsókn vegna rekstarleyfis fyrir Hótel Vestmannaeyjar
|
|
|
Erindi frá sýslumanninum í Vestmannaeyjum dags. 14. febrúar s.l.
|
||
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
|
||
|
|
||
|
9.
|
201202125 - XXVI. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
|
|
|
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 24. febrúar s.l. þar sem fram kemur að ákveðið hefur verið að XXVI. landsþing sambandsins verði haldið föstudaginn 23. mars 2012.
|
||
|
|
||
|
10.
|
200708078 - Samningamál lögð fyrir bæjarráð
|
|
|
Afgreiðsla samningamála er færð í sérstakri samningafundargerð
|
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.20



