21.02.2012

Framkvæmda- og hafnarráð - 121

 
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 121. fundur
 
 
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
þriðjudaginn 21. febrúar 2012 og hófst hann kl. 12.00
 
 
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Bergvin Oddsson, Íris Róbertsdóttir, Sveinn Rúnar Valgeirsson og Ólafur Þór Snorrason.
 
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
 
 
Dagskrá:
 
1. 201112078 - Endurbætur á Binnabryggju 2012
Farið yfir bréf frá Siglingastofnun dags. 13. feb. 2012 þar sem farið var yfir fyrirhugaðar framkvæmdir vegna endurnýjunar á Binnabryggju. Óskaði Siglingastofnun eftir heimild Vestmannaeyjahafnar til að bjóða út stálþil vegna Binnabryggju.
Framkvæmda- og hafnarráð óskar eftir því að farið verði kerfisbundið í að þykktarmæla stálþil Binnabryggju sem fyrst. Ákvörðun um framhald verði tekin í ljósi nánari upplýsinga, með hvaða hætti ráðist verði í endurbætur og viðgerðir á Binnabryggju.
 
2. 201108115 - Geymslusvæði fyrir smábáta norðan Strandvegar
Farið yfir innsent bréf dags. 9.feb. 2012 frá nágrönnum við fyrirhugað smábátageymslusvæði í Gamla slippnum.
Ráðið þakkar þær ábendingar sem fram koma í bréfinu en tekur fram að unnið er að nánari útfærslu að umgengnisreglum á viðkomandi svæði en lögð verður áhersla á snyrtimennslu og góða umgengni þegar það verður tekið í notkun.
 
3. 201202091 - Tækjabúnaður um borð í Lóðsinn
Sveinn R. Valgeirsson fór yfir þörfina á kaup á staðsetningartæki um borð í Lóðsinn sem getur m.a. nýst við útseld verkefni.
Ráðið samþykkir að festa kaup á staðsetningarbúnaði af gerðinni Trimble SPS852 GNSS skv. tilboði og felur Sveini framgang málsin en ofangreind kaup rúmast innan fjárhagsáætlunar 2012.
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.10
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159