17.02.2012

Umhverfis- og skipulagsráð - 155

 
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 155. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
föstudaginn 17. febrúar 2012 og hófst hann kl. 12.00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form.,
Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson,
Sigurður Smári Benónýsson og Ólafur Þór Snorrason.
 
Hörður Óskarsson vék af fundi í 2 og 13 máli
Pétur Fannar Hreinsson vék af fundi í 2 máli
Drífa Kristjánsdóttir vék af fundi í 1 máli
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
Dagskrá:
 
1. 201202039 - Umsókn um lóð í botni Friðarhafnar.
Daði Pálsson f.h. Godthaab í Nöf óskar eftir lóð fyrir botni Friðarhafnar sbr. innsent bréf dags. 10.02.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og vísar því til starfshóps um nýtingu hafnarsvæðis. Ráðið leggur áherslu á að unnið verði deiliskipulag af svæðinu i botni Friðarhafnar.
 
 
2. 201012040 - Framkvæmdir við frystihús Ísfélags Vestmannaeyja við Strandveg 102. Stækkun lóðar og byggingarleyfi.
(1 mál frá 153 fundi - grenndarkynning)
Sigurjón Pálsson f.h. Ísfélags Vestmannaeyja sækir um stækkun lóðar við Strandveg 102 til austurs vegna fyrirhugaðra framkvæmda við frystihús Ísfélagsins. Einnig er sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu sbr. lóðarstækkun.
Teikn. Sigurjón Pálsson.
Fyrir liggja umsagnir frá yfirl.þj. Ve., Eldvarnareftirliti Ve., Slökkviliðsstjóra Ve., Hitaveitu Suðurnesja og bókun framkvæmda-og hafnarráðs frá 18 jan. 2012.
-Ein athugasemd barst úr grenndarkynningu.
 
Afgreiðsla á innsendu bréfi dags. 16.2.2012:
1-2. Ráðið tekur undir með bréfritara um þörf rammaáætlunar fyrir hafnarsvæðið í heild sinni og mun starfshópur Vestmannaeyjabæjar vinna tillögu af rammaáætlun samhliða endurskoðun aðalskipulags. Ráðið bendir á að samkvæmt ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010 hefur ráðið heimild til að samþykkja einstaka framkvæmdir sem eru í samræmi við landnotkun viðkomandi svæðis að undangenginni grenndarkynningu.
3. Breidd milli lóða á umræddu svæði skila því að gangstéttar verða um 1,3m og telur ráðið það fullnægja þörfum hafnarsvæðis.
4. Þessi tilvitnun bréfritara miðast við eldri tillögu umsækjanda og hefur ekkert með gögn grenndarkynningar að gera. Fyrir liggur ný umsögn umsagnaraðila og er hún jákvæði í garð gagna grenndarkynningar.
5. Fyrir liggur jákvæð umsögn Eldvarnareftirlit Vestmannaeyja til viðbyggingar og jákvæð umsögn Slökkviliðsstjóra til breytinga götunar sbr. gögn grenndarkynningar. Kvaðir til brunavarna landa alltaf á framkvæmdaraðila.
6. Ráðið getur ekki tekið undir þessa fullyrðingu bréfritara og bendir á að hver umsókn er metin útfrá lögum, reglugerðum og skipulagi er varða viðkomandi umsókn.
7. Ráðið bendir bréfritara á að samkvæmt byggingarreglugerð er það á ábyrgð lóðarhafa að uppfylla kröfum um fjölda bílastæða.
8. Starfshópur Vestmannaeyjabæjar mun móta nýtingu hafnarsvæðis, greina umferðarflæði og gera tillögu af landnýtingu innan hafnarsvæðis í samráði við umsagnaraðila og hagsmunaaðila innan svæðis.
 
 
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við mannvirkjalög nr. 160/2010. Leyfið er samþykkt með því skilyrði að umsækjandi greiði allan kostnað við breytingar á lagnakerfum HS veitna sbr. bréf dags. 16 feb. 2012. og allan kostnað varðandi framkvæmdir og breytingar við gangstéttar, götu og annað sem til fellur við framkvæmd þessa. Lóðarhafi skal skila inn skriflegri framkvæmdaáætlun til samþykktar hjá umhverfis-og framkvæmdasviði áður en framkvæmdir hefjast.
Ráðið leggur til við starfshóp um umferðarmál, að norðurhluti Garðavegar og Hafnargata verði skilgreind sem athafnasvæði.
Byggingarleyfisgjald kr. 85.911 skv. gjaldskrá nr. 117/2010.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010 og Skipulagslögum nr. 123/2010
 
 
3. 201201042 - Strandvegur 74. Umsókn um byggingarleyfi
(2 mál frá 152 fundi - grenndarkynning)
Valur Andersen f.h. Geldungs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði við Strandveg 74 sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
-Ein athugasemd barst út grenndarkynningu.
 
Afgreiðsla á innsendu bréfi dags. 9.2.2012:
Ráðið samþykkir að setja kvöð um yfirkeyrslurétt í lóðarleigusamning Strandvegs 74 sbr. athugasemd bréfritara.
 
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við mannvirkjalög nr. 160/2011. Ráðið bendir á að notkun rýma á annari- og þriðjuhæð skuli vera í samræmi við deiliskipulag og ákvæði skiplagslaga.
Byggingarleyfisgjald kr. 187.442 skv. gjaldskrá nr. 117/2010.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010 og Skipulagslögum nr. 123/2010
 
 
 
4. 201202047 - Skólavegur 41. Umsókn um byggingarleyfi og stækkun lóðar.
Guðfinnur Arnar Kristmannsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi sbr. innsend gögn.
Teikn. Haraldur Valbergsson
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda erindið til grenndarkynningar sbr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Að grenndarkynningu lokinni mun erindið verða tekið til afgreiðslu.
Gjald vegna grenndarkynningar er kr. 23.430 skv. gjaldskrá nr. 130.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
 
 
5. 201202062 - Miðstræti 11. Umsókn um byggingarleyfi og stækkun lóðar
Arnar G. Hjaltalín f.h. Drífanda stéttarfélags, sækir um stækkun lóðar, breytingar á útliti húsnæðis og leyfi fyrir viðbyggingu til norðurs sbr. innsend gögn.
Teikn. Björgvin Björgvinsson.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda húsnæðis.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við mannvirkjalög nr. 160/2011.
Byggingarleyfisgjald kr. 39.050 skv. gjaldskrá nr. 117/2010.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
6. 201202002 - Bessahraun 7. Umsókn um lóð
Jóhann Freyr Ragnarsson og Ingibjörg Andrea Brynjarsdóttir sækja um einbýlishúsalóð Bessahrauni 7.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað deiliskipulags.
Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 15.8.2012.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000 skv. gjaldskrá byggingarfulltrúa nr. 117/2010.
 
 
7. 201202060 - Skanssvæði. Umsókn um söguskilti.
Ívar Atlason f.h. stýrihóps um sögu-og mynjasafnið á Skansi, sækir um leyfi fyrir upplýsingaskiltum er varðar sögu sjóveitu og sögu gömlu sundlaugarinnar sbr. innsent bréf dags. 14.2.2012.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir erindið fyrir sitt leyti. Ráðið leggur áherslu á vandaðan frágang og að skilti verði feld að umhverfi eins og kostur er.
 
8. 201202037 - Starfshópur um nýtingu hafnarsvæðis
Skipulags- og byggingafulltrúi fór yfir verkefni fyrirhugaðs starfshóps er varðar hafnarsvæði í rammahluta aðalskipulags, mótun stefnu og landnýtingar innan hafnarsvæðis. Áætlað er að kalla saman hagsmunaaðila á hafnarsvæði til samráðs.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að formaður og vara formaður verði í starfshópnum fyrir hönd umhverfis-og skipulagsráðs.
 
 
9. 201202038 - Eiði 5-10. Umsókn um byggingarleyfi
Elías Árni Jónsson f.h. Löngu ehf. sækir um leyfi fyrir að byggja yfir port við atvinnuhúsnæði sbr. innsend gögn.
Teikn. Páll Zóphóníasson.
Afgreiðsla:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 16.2.2012.
Samræmist byggingarreglugerð nr. 112/2012.
 
 
10. 201202070 - Dalavegur 2. Umsókn um byggingarleyfi
Kristján Þórarinsson f.h. fasteigna ríkissjóðs sækir um leyfi fyrir breytingum á skólahúsnæði sbr. innsend gögn.
Teikn. Páll Zóphóníasson.
Afgreiðsla:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 16.2.2012.
Samræmist byggingarreglugerð nr. 112/2012.
 
 
11. 201202052 - Kirkjuvegur 29. Afsal lóðar.
Regin Jacobsen afsalar sér lóð Kirkjuvegi 29.
Afgreiðsla:
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 16.2.2012.
 
 
12. 201202049 - Ráðhús Kirkjuvegi 50. Ákvörðun um friðun
Mennta-og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að fenginni tillögu Húsafriðurnarnefndar að friða Ráðhús Vestmannaeyja, Kirkjuvegi 50. Friðunin nær til ytra byrðis hússins sbr. innsend gögn dags. 16.1.2012.
Upplesið erindi.
 
 
13. 201202075 - Friðarhöfn 160712. Umsókn um stækkun lóðar.
Hallgrímur Júlíusson f.h. Net ehf. sækir um stækkun lóðar sbr. innsend gögn. Áætlað er að stækka atvinnuhúsnæði um 450m2 og auka við athafnasvæði lóðar.
Afgreiðsla:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis og óskar eftir umsögn framkæmda-og hafnarráðs.
 
 
14. 201202081 - Heiðarvegur 9. Umsókn um byggingarleyfi
Þórður Sigursveinsson sækir um leyfi fyrir sólhúsi sbr. innsend gögn.
Afgreiðsla:
Ráðið samþykkir að senda erindið til grenndarkynningar sbr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Að grenndarkynningu lokinni mun erindið verða tekið til afgreiðslu.
Gjald vegna grenndarkynningar er kr. 23.430 skv. gjaldskrá nr. 130.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:35
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159