20.01.2012

Umhverfis- og skipulagsráð - 153

 
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 153. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
föstudaginn 20. janúar 2012 og hófst hann kl. 12.00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Sigurður Smári Benónýsson og Ólafur Þór Snorrason.
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
 
Dagskrá:
 
1. 201012040 - Framkvæmdir við frystihús Ísfélags Vestmannaeyja við Strandveg 102. Stækkun lóðar og byggingarleyfi.
(2 mál frá 151 fundi - frestað erindi)
Sigurjón Pálsson f.h. Ísfélags Vestmannaeyja sækir um stækkun lóðar við Strandveg 102 til austurs vegna fyrirhugaðra framkvæmda við frystihús Ísfélagsins. Einnig er sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu sbr. lóðarstækkun.
Teikn. Sigurjón Pálsson.
Fyrir liggur jákvæð umsögn frá Eldvarnareftirliti Ve. og bókun framkvæmda-og hafnarráðs frá 18 jan. 2012.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir að senda erindið til umsagnaraðila og grenndarkynningar sbr. 44. gr. Skipulagslaga.
Að grenndarkynningu lokinni mun erindið verða tekið til afgreiðslu.
Gjald vegna grenndarkynningar er kr. 23.430 skv. gjaldskrá nr. 130.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
 
 
2. 201201072 - Strandvegur 76. Umsókn um byggingarleyfi
Sigurður Hlöðversson eigandi matshluta 218-4802 Strandvegi 76, sækir um leyfi fyrir að stækka vöruhurð til austurs og leyfi fyrir nýjum gluggum á austuhlið atvinnuhúsnæðis.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda húsnæðis
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið.
Byggingarleyfisgjald kr. 10.934 skv. gjaldskrá nr. 117/2010.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
 
 
3. 201201071 - Umsókn um stækkun lóðar.
Tómas Bjarki Kristinsson Brekastíg 7c sækir um stækkun lóðar til austurs sbr. innsend gögn.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað deiliskipulags. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1.8.2012.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000 skv. gjaldskrá byggingarfulltrúa nr. 117/2010.
 
 
4. 201201077 - Erindisbréf byggingarfulltrúa og umhverfis-og skipulagsráðs
Skipulags-og byggingarfulltrúi kynnti breytingar á afgr.bréfi byggingarfulltrúa og ráðsins.
Afgr. ráðs:
Ráðið þakkar kynninguna og felur skipulags-og byggingarfulltrúa framgang erindis.
 
 
5. 201201092 - Bessahraun 1 - 1a. Umsókn um parhúsalóð.
Þórarinn Þórhallsson og Guðni Hjörleifsson sækja um parhúsalóð í Bessahrauni 1a/b.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað deiliskipulags. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1.8.2012.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000 skv. gjaldskrá byggingarfulltrúa nr. 117/2010.
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12.35
 
Vestmannaeyjabær | Ráðhúsinu | Kirkjuvegi 50 | 900 Vestmannaeyjum | Sími: 488 2000 | postur@vestmannaeyjar.is | Kt.: 690269-0159