29.12.2011
Framkvæmda- og hafnarráð - 117
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 117. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
fimmtudaginn 29. desember 2011 og hófst hann kl. 10.30
Fundinn sátu:
Arnar Sigurmundsson formaður, Stefán Óskar Jónasson, Jón Árni Ólafsson, Bergvin Oddsson, Íris Róbertsdóttir, Sveinn Rúnar Valgeirsson, Guðmundur Þ B Ólafsson og Ólafur Þór Snorrason.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Á fundinn komu fulltrúar Björgunarfélags Vestmannaeyja og var þeim afhent ljósmynd af Björgunar- og varðskipinu Þór en félagið annaðist rekstur skipsins frá 1920-1926
Dagskrá:
1. 201101391 - Kirkjuvegur 52 - Utanhússklæðning Safnahúsi 2011
Fyrir lá verkfundagerð vegna lokaúttektar á klæðningu á Safnahúsi frá 11.des. 2011. Fram kom að kostnaður við klæðningu ásamt aukaverkum er 38 milljónir króna fyrir utan hönnunarkostnað en hann tengist einnig fyrirhugaðri viðbyggingu vestan við Safnahús.
Ráðið samþykkir verkfundagerðina.
2. 201112074 - Caterpillar veghefill árgerð 1949
Fyrir lá ósk frá áhugahópi um Vinnuvélasafn á Akureyri um að fá Caterpillar veghefil Vestmannaeyjabæjar sem er safngripur af árgerð 1949 til sýningar.
Ráðið samþykkir að afhenda Vinnuvélasafninu á Akureyri gamla veghefilinn að gjöf í því ástandi sem hann er. Jafnframt leggur ráðið áherslu á að sögu veghefilsins í þjónustu Vestmannaeyjabæjar verði haldið vel til haga.
3. 201012040 - Framkvæmdir við frystihús Ísfélags Vestmannaeyja við Strandveg 102. Stækkun lóðar og byggingarleyfi.
Fyrir lá ósk Ísfélags Vestmannaeyja um stækkun lóðar og stækkun byggingar til austurs við mótorhús Ísfélagsins við Strandveg 102.
Ráðið frestar erindinu og óskar eftir umsögn Umhverfis- og skipulagsráðs með tilliti til umferðaröryggis á viðkomandi svæði.
4. 201112077 - Snjómokstur í Vestmananeyjum
Farið yfir stöðuna í snjómokstri í ljósi óvenju mikils snjóþunga í Vestmannaeyjum.
5. 201112078 - Endurbætur á Binnabryggju 2012
Sveinn R Valgeirsson fór yfir viðhaldsþörf á bryggjuþili Binnabryggju, Skipalyftukanti og Gjábakka og mögulega endurbyggingu og viðgerðir.
Ráðið felur framkvæmdastjóra og forstöðumanni Vestmannaeyjahafnar að vinna að málinu í samráði við Siglingastofnun.
6. 201112075 - Gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs 2012
Lagðar fram tillögur að gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs í Vestmannaeyjum 2012. Breytingar frá núverandi gjaldskrá taka mið af frekari flokkun úrgangs í fyrirtækjum.
Ráðið samþykkir tillögur að nýrri gjaldskrá og taka þær gildi 1. febrúar 2012.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12.00



