30.11.2011
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 98
Fjölskyldu- og tómstundaráð - 98. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
miðvikudaginn 30. nóvember 2011 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Helga Björk Ólafsdóttir, Jórunn Einarsdóttir, Jarl Sigurgeirsson, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Jón Pétursson, Margrét Rós Ingólfsdóttir, Lísa Njálsdóttir.
Fundargerð ritaði: Margrét Rós Ingólfsdóttir,
Lísa Njálsdóttir félagsráðgjafi yfirgaf fundinn eftir annað mál. Arnsteinn Ingi Jóhannesson íþróttafulltrúi sat fundinn í þriðja máli.
Dagskrá:
1. 200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
2. 200704150 - Fundargerð barnaverndar fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð
Undir þessum lið er fjallað um öll erindi sem falla undir barnavernd og eru trúnaðarmál.
Fundargerð barnaverndar er færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
3. 200707057 - Rekstrar- og afreksstyrkir til aðildarfélaga ÍBV-héraðssambands
Tillaga um breytingu á úthlutun rekstrar- og afreksstyrkja til aðildarfélaga ÍBV-héraðssambands.
Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkir að fella niður núgildandi reglur um rekstrar- og afreksstyrki til ÍBV-héraðssambands frá og með 1. janúar 2012.
Framvegis mun árlegur rekstrarstyrkur Vestmannaeyjabæjar til ÍBV-héraðssambandsins í heild sinni greiddur til aðalstjórnar héraðssambandsins sem úthlutar honum áfram til aðildarfélaga eftir sínum reglum. Rekstrarstyrkir ársins í ár verða þó greiddir eftir núverandi reglum en þó með einfaldara umsóknarferli en verið hefur.
Ráðið felur jafnframt íþróttafulltrúa Vestmannaeyjabæjar að koma með tillögur í samráði við stjórn ÍBV-héraðssambands, um breytt fyrirkomulag á úthlutun afreksstyrkja.
4. 201105050 - Deiliskipulag við Hraunveg.
Í framhaldi af 1. máli 149. fundar í umhverfis- og skipulagsráði.
Bréf barst með ábendingum varðandi aðstöðu við Hraunbúðir. Ráðið þakkar bréfriturum fyrir góðar ábendingar sem verða nýttar í áframhaldandi vinnu varðandi málefni Hraunbúða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00



