12.10.2011
Umhverfis- og skipulagsráð - 146
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 146. fundur
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
miðvikudaginn 12. október 2011 og hófst hann kl.
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form.,
Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Sigurður Smári Benónýsson, Margrét Rós Ingólfsdóttir.
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201109053 - Græðisbraut 1. Umsókn um byggingarleyfi
(5 mál frá 145 fundi - grenndarkynning)
Fjóla Björk Jónsdóttir f.h. Steina og Olla ehf. sækir um leyfi fyrir stækkun lóðar Græðisbraut 1 og byggingarleyfi fyrir verslunarhúsnæði sbr. innsend gögn.
Teikn. Sigurjón Pálsson.
Fyrir liggja umsagnir frá Heilbr.eftirliti Suðurlands og Vinnueftirliti ríkisins.
Engar athugasemdir bárust úr grenndarkynningu.
Afgr. ráðs:
Ráðið frestar afgreiðslu erindis þar til umsögn eldvarnareftirlits og slökkviliðs Vestmannaeyja liggur fyrir.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
2. 201107017 - Ráðhús Vestmannaeyja, áður sjúkrahús Vestmannaeyja
Ólafur Þór Snorrason f.h. Vestmannaeyjabæjar sækir um leyfi fyrir framkvæmdum á Ráðhúsi Vestmannaeyja. Húsafriðunarnefnd ríkisins hefur sent inn bréf dags. 31.8.2011, þar sem gerð er tillaga að friðun húsnæðisins og að útlit verði í samræmi við upphaflegar teikningar Guðjóns Samúelssonar. Í því felst að illa farin seinnitíma viðbygging vestan við Ráðhúsið verði fjarlægð og upprunalegu útliti komið á gaflinn þar með talið upprunalegt útlit á svalir, glugga og fl. Fyrir liggur afgr. bæjarráðs dags. 4.10.2011.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir breytingar á húsnæði sbr. bréf Húsafriðunarnefndar og leggur áherslu á að unnið verði áfram í fullu samráði við Húsafriðunarnefnd.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
3. 201109127 - Norðursund 7. Umsókn um byggingarleyfi og breytta notkun.
Ragnar Þór Baldvinsson sækir um leyfi fyrir að breyta notkun húsnæðis úr geymsluhúsnæði í íbúðarhúsnæði sbr. innsend gögn.
Teikn. Páll Zóphóníasson.
Afgr. ráðs:
Ráðið frestar erindinu til næsta fundar og felur skipulags-og byggingarfulltrúa og formanni ráðsins að ræða við umsækjanda.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
4. 201110050 - Skólavegur 41, Umsókn um lóð
Guðfinnur Arnar Kristmannsson og Aðalheiður Jónsdóttir sækja um lóð nr. 41 við Skólaveg til byggingar fyrir einbýlishúss.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir að úthluta lóð sbr. lóðarblað. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. maí 2012.
Umsóknargjald lóðar kr. 25.000 skv. gjaldskrá byggingarfulltrúa nr. 117/2010.
5. 201109111 - Áshamar 20. Umsókn um byggingarleyfi
Ragnar Guðmundsson Áshamri 20 sækir um leyfi fyrir breytingum á bílskúr sbr. innsend gögn.
Teikn. Páll Zóphóníasson.
Afgr. ráðs:
Ráðið frestar erindinu til næsta fundar og felur skipulags-og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
6. 201109082 - Sólhlíð 20. Umsókn um byggingarleyfi
Kristján Þórarinsson f.h. fasteigna ríkissjóðs sækir um leyfi fyrir breytingum á 1. hæð og kjallara sbr. innsend gögn.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við mannvirkjalög nr. 160/2010.
Byggingarleyfisgjald kr. 10.934 skv. gjaldskrá nr. 117/2010.
Afgreiðsla þessi er skv. Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
7. 201103053 - Vesturvegur 13A. Umsókn um lóð
Sigurjón Ingvarsson sækir um framlengingu á byggingarrétti á lóð Vesturvegi 13A til 1.4.2012 sbr. innsend gögn.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1.4.2012.
8. 201003001 - Miðstræti 20. Umsókn um lóð
Fjóla Björk Jónsdóttir f.h. Steina og Olla ehf. sækir um framlengingu á byggingarrétti á lóð Miðstræti 20 sbr. innsent bréf.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið. Umsækjandi skal skila fullnægjandi teikningum fyrir 1. maí 2012.
9. 201110067 - Vestmannabraut 29. Veitingagámur.
Wenyi Zeng og Hallgrímur Rögnvaldsson óska eftir afstöðu ráðsins til staðsetningar á veitingagám á lóð Vestmannabrautar 29 sbr. innsend gögn.
Afgr. ráðs:
Þar sem umsókn samræmist ekki deiliskipulagi svæðis getur ráðið ekki orðið við erindinu. Ráðið felur skipulags-og byggingarfulltrúa og formanni ráðsins að ræða við umsækjanda.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
10. 201110063 - Umsókn um afnot af efnis-og landmótunarsvæði.
Magnús Sigurðsson óskar eftir leyfi fyrir afnotum af efnistökusvæði E-3 og landmótunarsvæði S-2 á nýjahrauni þann 15 okt. n.k. vegna aksturs torfærubíla.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið og leggur áherslu á að ekki sé farið útfyrir efnis-og landmótunarsvæði sbr. útg. afstöðuuppdrátt umhverfis-og framkvæmdasviðs. Ráðið áskilur sér rétt til að láta lagfæra umhverfi leyfissvæðis á kostnað leyfishafa ef þörf krefur.
11. 201109079 - Skólavegur 21 b, Umsókn um byggingarleyfi
Valmundur Valmundsson f.h. stjórnar Alþýðuhúss Vestmannaeyja sækir um leyfi fyrir að koma fyrir flóttaleið á vesturhlið húsnæðis. Einnig er sótt um leyfi fyrir breytingum á vesturlóð þar sem sótt er um að steypa upp stoðveggi og koma fyrir bílastæðum sbr. innsend gögn.
Afgr. Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 30.9.2011.
12. 201109083 - Vestmannabraut 37. Umsókn um byggingarleyfi
Jón Ingi Guðjónsson f.h. Hvassafells ehf. sækir um leyfi fyrir innanhúsbreytingum sbr. innsend gögn.
Afgr. Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 30.9.2011.
13. 201109114 - Kirkjuvegur 43. Umsókn um byggingarleyfi
Arna Ágústsdóttir og Fríða Þórsdóttir eigendur Kirkjuvegar 43 sækja um leyfi fyrir gluggabreytingum sbr. innsend gögn.
Afgr. Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 30.9.2011.
14. 201109015 - Umsókn um byggingarleyfi.
Þorsteinn I. Sigfusson f.h. Húsfélags Höfðabóli 1.hæð sækir um leyfi fyrir sólpalli og breytingum á íbúðarhæð sbr. innsend gögn.
Afgr. Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 30.9.2011.
15. 201110077 - Friðarhöfn 160710. Umsókn um byggingarleyfi
Bjarki Guðnason f.h. Eimskips sækir um leyfi fyrir gluggabreytingum sbr. innsend gögn.
Afgr. Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 11.10.2011.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12.50



