30.08.2011
Bæjarráð - 2919
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2919. fundur
haldinn í fundarsal Ráðhúss,
þriðjudaginn 30. ágúst 2011 og hófst hann kl. 12.00
Fundinn sátu:
Páley Borgþórsdóttir, Páll Scheving Ingvarsson, Gunnlaugur Grettisson og Elliði Vignisson.
Fundargerð ritaði: Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Páll Scheving Ingvarsson tekur afstöðu til fyrsta máls á dagskrá, frumvarps til laga um stjórn fiskveiða - á næsta bæjarstjórnarfundi í september.
Dagskrá:
|
1.
|
201106088 - til umsagnar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða
|
|
|
Bæjaráð fjallaði um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og drög að umsögn þingmál nr 827. Í umsögninni kemur ma. fram:
Verði frumvarpið óbreytt að lögum, mun það leiða til mikillar fólksfækkunar í Vestmannaeyjum enda gert ráð fyrir skerðingu aflaheimilda í Eyjum um níu þúsund þorskígildistonn á næstu fimmtán árum eða um 15 prósent. Í álitinu kemur einnig fram að bæjarráð telji ólíklegt að útgerðarfyrirtækin endurleigi tapaðar heimildir úr fyrirhuguðum leigupottum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra enda fjárhagslegur ábati vandséður í þeim viðskiptum. Aflaverðmæti Vestmannaeyja munu því að óbreyttu minnka árlega um tæpa þrjá milljarða króna eða um 714 þúsund á hvern íbúa. Að mati bæjarráðs munu um 100 manns, sem starfa við veiðar og vinnslu, missa vinnuna og með afleiddum störfum má gera ráð fyrir að um tvö hundruð störf tapist. Forsendur á annað hundrað fjölskyldna fyrir búsetu í Eyjum bresta eins og rökstutt er í álitinu. Ekki verður séð að aðrir viðburðir í sögu byggðar í Vestmannaeyjum muni hafa áður haft viðlík áhrif á samfélag Eyjamanna nema etv. eldgosið 1973 og Tyrkjaránið 1627.
Vestmannaeyjar eru ein stærsta verstöð landsins, þar sem búa um 4200 manns og atvinnuleysi er nær ekkert. Af rúmlega 1.800 störfum tengjast ríflega 700 fiskveiðum og fiskvinnslu beint. Varlega áætlað viðheldur sjávarútvegurinn á bilinu 75 til 85% af beinum og afleiddum störfum eða alls á bilinu 1350 til 1550 störfum. Þegar núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi var komið á 1991 voru íbúar í Vestmannaeyjum 4923. Árið 2010 voru þeir 4144. Íbúum fækkaði semsagt um 16% á tímabilinu. Á sama tímabili jókst aflahlutdeild (kvóti) útgerða á staðnum verulega. Fiskveiðistjórnunarkefið sem slíkt hefur því ekki varðað veginn í íbúaþróuninni sl. áratugi enda lýtur hún mun flóknari lögmálum en svo.
Um 200 störf tapast
Við núverandi tæknistig þarf um 50 sjómenn til að veiða og færa að landi 9000 þorskígildistonn. Hver starfsmaður vinnur um 90 tonn af bolfiski á ári, 1000 tonn af frystum uppsjávarafla eða 3500 tonn af mjöli og lýsi (allt miðað við tonn af hráefni). Í landi þarf um 45 störf til að vinna þessi 9000 þorskígildi til útflutnings. Að óbreyttu munu því um 95 manns missa vinnuna við veiðar og vinnslu. Í Eyjum er ekki um mörg önnur störf að ræða og verður því mörgum nauðugur einn kostur að flytja burt. Að teknu tilliti til afleiddra starfa má áætla að um 200 störf tapist í heild, eða um 10% allra starfa verði frumvarpið að lögum.
Tapað útsvar 1,1 milljarður
Tekjutap bæjarsjóðs verður hinsvegar mikið, jafnvel þótt eingöngu sé litið til útsvarsgreiðslna. Skerðing um 9000 þorskígildistonn samsvarar um 4,1 milljarði króna í verðmætum. Laun að frádregnum launatengdum gjöldum eru um 29%. Séu einnig greiðslur í lífeyrissjóði dregnar frá stofni má reikna með að um 27,5% af af þessum 4,1 milljarði séu laun.
|
||
|
|
||
|
2.
|
201108105 - Mótmæli vegna fasteignagjalda 2010
|
|
|
Erindi dags. 22. ágúst s.l. frá hópi mótmælenda vegna fasteignagjalda 2010.
|
||
|
Bæjarráð harmar enn og aftur þau mistök sem urðu hjá Tryggingastofnun ríkisins þegar unnið var að innheimtu fasteignagjalda fyrir árið 2010. Vestmannaeyjabær hafði engar forsendur til að vita að upplýsingar sem unnið var út frá þegar reiknaður var afsláttur til þeirra sem njóta tekjutrygginga var rangur. Því miður gerðist það að nokkrir aðilar sem ekki njóta tekjutryggingar þar sem heildartekjur þeirra eru fyrir ofan viðmið Tryggingastofnunar fengu niðurfellingu á fasteignagjöldum. Mistökin eru afar leið en bæjarráði ber engu að síður að vinna eftir þeim reglum sem þeim eru sett og innheimta þau gjöld sem til falla. Bæjarráð getur ekki með nokkru móti samþykkt það að einstaklingum sé mismunað við álagningu fasteignagjalda.
|
||
|
|
||
|
3.
|
201108092 - Til umsagnar umsókn fyrir Blómabúð Vestmannaeyja vegna reksturs kaffihúss
|
|
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi rekstrarstaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
|
||
|
|
||
|
4.
|
200707340 - Fundargerðir nefnda lagðar fyrir bæjarráð
|
|
|
Fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs nr. 109. frá 12. ágúst s.l.
Fundargerð fjölskyldu- og tómstundaráðs nr. 91 frá 17. ágúst s.l. |
||
|
|
||
|
5.
|
200708078 - Samningamál lögð fyrir bæjarráð
|
|
|
Afgreiðsla samningamála er færð í sérstaka samningabók
|
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13.00



