7. fundur Fjölskylduráðs Vestmannaeyjahaldinn
7. fundur
miðvikudaginn 18. júlí 2007 og hófst hann kl. 16.00
Fundinn sátu:
Guðríður Ásta Halldórsdóttir,
Fundargerð ritaði: Sigurhanna Friðþórsdóttir.
Dagskrá:
1. 200702110 - Sískráning barnaverndarmála 2007
Mánaðarlegt yfirlit til Barnaverndarstofu vegna barnaverndartilkynninga í júní 2007.
Mánaðarlegt yfirlit til Barnaverndarstofu vegna barnaverndartilkynninga. Í júní bárust 14 tilkynningar vegna 9 barna. Tilkynningar vegna vanrækslu voru 7, vegna ofbeldis 2 og vegna áhættuhegðunar barns 5 talsins.
2. 200704150 - Fundargerð barnaverndar fyrir fjölskylduráð
Fundargerð barnaverndar er færð í sérstaka trúnaðarbók.
3. 200703047 - Leiguíbúðir aldraðra - reglur, biðlisti, listi yfir leigutaka, verklagsreglur o.fl.
Reglur um úthlutun íbúða aldraðra.
Lögð fram drög að breytingum á úthlutunarreglum v/leiguíbúða aldraðra. Breytingin er á 4. grein reglnanna þar sem segir: "Fjölskylduráð Vestmannaeyja úthlutar íbúðum til umsækjanda" bætist við: "...að fenginni umsögn fagaaðila." Fjölskylduráð samþykkir reglurnar.
4. 200704148 - Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskylduráð
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarbók.
5. 200707219 - Skýrsla til Barnaverndarstofu fyrir árið 2006
Yfirfélagsráðgjafi leggur fram ársskýrslu til Barnaverndarstofu.
Fjölskylduráð þakkar Guðrúnu fyrir greinargerðina.
6. 200707220 - Þjóðhátíð í Eyjum - barnaverndarvaktir
Umræða um barnaverndarvaktir á Þjóðhátíð.
Jón gerði grein fyrir stöðunni varðandi barnaverndarvaktir á Þjóðhátíð. Tveir hafa boðið sig fram en ennþá vantar á vakt á sunnudag.
7. 200702050 - Þjónustusamningur vegna málefna fatlaðra
Framkvæmdastjóri gerir grein fyrir stöðu máls. Fjölskylduráð þakkar framkvæmdastjóra greinargerðina og ítrekar að niðurstaða fáist sem allra fyrst.
8. 200707221 - Endurhæfingarúrræði í Eyjum
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19.10
Guðríður Ásta Halldórsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir
Sigurhanna Friðþórsdóttir
Hafdís Sigurðardóttir
Rúnar Þór Karlsson



