prenta logo�tprentun af vef Vestmannaeyjab�jar
http://www.vestmannaeyjar.is




SAMÞYKKT UM STJÓRN VESTMANNAEYJABÆJAR OG FUNDARSKÖP BÆJARSTJÓRNAR
 
I. kafli
Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.
 
1. gr.
Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar er skipuð 7 bæjarfulltrúum kjörnum skv. II. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, sbr. lög nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna.
 
2. gr.
Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.
 
3. gr.
Bæjarstjórn fer með stjórn Vestmannaeyjabæjar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.
 
4. gr.
Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa.
 
5. gr.
            Bæjarstjórn annast þau verkefni, sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að taka að sér verkefni, sem varðar íbúa bæjarins sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
 
6. gr.
Meðal verkefna bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar er:
 
1.         Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, ráð, stjórnir og aðrar nefndir, formenn og varaformenn þeirra ráða, sem kveðið er á um í 1. – 5. tl., 1. mgr. 42. gr., kjósa skoðunarmenn til þess að yfirfara ársreikninga bæjarins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá bænum.
 
2.         Að setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um   og þörf krefur.
 
3.         Að stjórna fjármálum bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja, skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
 
4.         Að ákveða stjórnkerfi bæjarins og ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá bænum.
 
 
II. kafli.
Um fundarsköp bæjarstjórnar.
 
7. gr.
Bæjarstjórn heldur fundi samkvæmt nánari ákvörðun bæjarráðs. Fundir bæjarstjórnar skulu haldnir eigi sjaldnar en mánaðarlega og fundardagar eru fimmtudagar að öðru jöfnu. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 18.00.
Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.
Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar, og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn, ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.
 
8. gr.
Sá kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn kveður bæjarstjórnina saman til fyrsta fundar að afloknum bæjarstjórnarkosningum, eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.
Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í bæjarstjórninni átt jafnlengi setu í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.Sá er boða skal fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar getur falið bæjarstjóra það verkefni.
 
9. gr.
Bæjarstjóri, sbr. þó 8. gr. samþykktar þessarar, boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað, hafi bæjarstjórn ekki gert það.
 
10. gr.
Íbúum bæjarins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar bæjarins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni. Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórnin ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum bæjarins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.
 
11. gr.
Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar og skal dagskráin fylgja fundarboði.
 
Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:
 
1.         Lögákveðnar kosningar, s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar og varaforseta, kosningar ráða, stjórna og nefnda á vegum bæjarstjórnar og formanna og varaformanna þeirra ráða, sem kveðið er á um í 1. - 5. tl., 1. mgr. 42. gr., svo og ráðningar bæjarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá bænum.
 
  1. Fundargerðir ráða, stjórna og nefnda á vegum bæjarins sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga. Óski bæjarfulltrúi eftir umræðum eða atkvæðagreiðslu um einstaka liði fundargerða, skal hann beina erindi þess efnis til bæjarstjóra, a.m.k. 30 klukkustundum fyrir bæjarstjórnarfund og í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 föstudag vegna funda sem halda á mánudag þar á eftir og skal hlutaðeigandi liður/málefni þá tekið inn sem sérstakur dagskrárliður. Bæjarstjóri getur sömuleiðis ákveðið að einstakir liðir í fundargerðum verði teknir inn sem sérstakur dagskrárliður. Að öðru leyti fer um afgreiðslu fundargerða, skv. 3. mgr. 30. gr.
 
  1. Önnur mál, sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá. Bæjarfulltrúi, sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. 30 klukkustundum fyrir bæjarstjórnarfund og í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 föstudag vegna funda sem halda á mánudag þar á eftir.
 
Bæjarstjóri skal síðasta lagi einum sólarhring fyrir bæjarstjórnarfund hafa sent bæjarfulltrúum fundarboð bæjarstjórnarfundar, ásamt dagskrá. Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna, sem bæjarstjóri telur nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti undirbúið sig fyrir fundinn.Mál sem bæjarstjórn tekur á dagskrá funda sinna skulu tekin í þeirri tímaröð sem þau bárust bæjarstjórn eða eftir ákvörðun bæjarstjórnar hverju sinni.
Bæjarstjóra er heimilt að senda fundarboð, dagskrá og fylgigögn með rafrænum hætti til bæjarfulltrúa, nema bæjarfulltrúi óski sérstaklega eftir að fá slík gögn boðsend til sín.
 
12. gr.
Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg íbúum bæjarins þegar hún hefur verið samin, á auglýsingatöflu í anddyri Ráðhúss bæjarins, á venjulegum afgreiðslutíma, heimasíðu bæjarins eða með öðrum hætti sem bæjarstjórnin ákveður.
 
13. gr.
Bæjarstjóri skal senda bæjarfulltrúum fundarboð vegna aukafundar í bæjarstjórn með ásamt dagskrá og fylgigögnum a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund. 
Bæjarstjóra er heimilt að senda fundarboð, dagskrá og fylgigögn vegna aukafundar með rafrænum hætti til bæjarfulltrúa.
 
14. gr.
Sá bæjarfulltrúi er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum, uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn.
Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta bæjarfulltrúa, skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.
Sá er rétt kjörinn forseti, sem fengið hefur atkvæði meirihluta bæjarfulltrúa. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð, skal kjósa að nýju um þá tvo, sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði, skal varpa hlutkesti, um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar, sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn, skal hlutkesti ráða kosningu.
Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri varaforseta bæjarstjórnar, og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. næstu málsgrein hér að framan. Varaforseti skal kjörinn til jafnlangs tíma og forseti. Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til samgönguráðuneytisins þegar að því loknu.
Sé enginn forseta á fundi, gegnir aldursforseti forsetastörfum, nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.
Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá forsetastörfum, skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta.
 
15. gr.
Bæjarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn.
 
16. gr.
Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgengi fatlaðra.
Bæjarstjórnarfundi skal halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim, eftir því sem húsrúm leyfir.
Bæjarstjórn getur þó ákveðið, að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins s.s. viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál, sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur, þar sem eingöngu er fjallað um slík mál, verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn.
Óheimilt er að skýra frá því, sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.
 
17. gr.
Bæjarstjórnarfundur er lögmætur, ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er á fundi. Bæjarstjórn getur enga bindandi ályktun gert, nema fundur sé lögmætur.
 
18. gr.
Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála, sér um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðarbók bæjarstjórnarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar og slítur fundi, þegar dagskrá hans er tæmd. Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um, að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði, getur forseti vísað honum úr fundarsal. 
Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum.
            Forseti hefur heimild til að fresta fundi tímabundið ef upp koma óviðráðanleg ytri atvik sem gera fundarhöld ókleif, s.s. ef bæjarfulltrúar geta ekki sótt fund. Í slíkum tilvikum skal hann ákveða hvenær nýr fundur skal boðaður, en hann skal boðaður eins fljótt og kostur er.
 
19. gr.
Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð, sem þau eru á dagskrá, nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað.
Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál, sem ekki hefur verið á dagskrá, ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði.
 
20. gr.
Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:
 
 
1.         Fjárhagsáætlun bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
 
2.         Ársreikninga bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
 
3.         Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár, sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
 
4.         Áætlanir fyrir bæinn, sem gilda eiga til lengri tíma, s.s. þriggja ára    áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
 
5.         Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
 
21. gr.
Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. 
Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra, sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Yfirlýsing um slíkt skal lögð fram á fyrsta eða öðrum fundi bæjarstjórnar eftir kosningar.
Nú næst ekki samkomulag milli stjórnmálaflokka og samtaka sem standa að sameiginlegum lista, og skulu þá þeir varamenn listans, sem eru úr sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalmaður sá sem um er að ræða, taka sæti hans í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna slíks lista í sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalfulltrúinn sem í hlut á þegar kosning fór fram taka varamenn listans sæti samkvæmt venjulegum reglum.
Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétti, en hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi.
Bæjarstjórn getur heimilað að maður utan bæjarstjórnar kveðji sér hljóðs á bæjarstjórnarfundi.
 
22. gr.
Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við umræður og afgreiðslu máls þegar það varðar hann sjálfan, skyldmenni eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti af því.
Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórn fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarins.
Bæjarfulltrúa, sem veit hæfi sitt orka tvímælis, ber að skýra forseta bæjarstjórnar frá því. Honum er þó heimilt að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr hvort mál er svo vaxið. Bæjarfulltrúi, sem hlut á að máli, má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt. 
Bæjarfulltrúi, sem vanhæfur er við úrlausn máls, skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess. 
 
23. gr.
Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi, sem taka vill til máls, skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð, sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu, ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa, sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis, ákveður forseti, í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.
 
24. gr.
Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta eða fundarins.
Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls í allt að 5 mínútur í fyrra skiptið og allt að 3 mínútur í seinna skiptið. Óski bæjarfulltrúi eftir lengri umræðu vegna einstaks máls sem er til umfjöllunar á fundinum, skal hlutaðeigandi beina beiðni þess efnis til forseta og skal ræðutími í fyrri umræðu þá lengdur í 15 mínútur og í 5 mínútur við seinni umræðu. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að tala í þriðja sinn til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd sem getur þá einnig tekið til fundarstjórnar forseta. Má þá þessi liður umræðunnar ekki taka lengri tíma en tvær mínútur. Flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega tala þrisvar við hverja umræðu máls með sömu tímatakmörkunum og að ofan greinir og í allt að 5 mínútur í þriðja skiptið.
Forseti getur leyft bæjarfulltrúum að veita stutt andsvar við einstökum ræðum strax og þær hafa verið fluttar. Skal þá sá er vill svara bera fram ósk um það við forseta. Andsvari má einungis beina að máli ræðumans en ekki öðru andsvari. Hvert andsvar má ekki taka lengri tíma en tvær mínútur og skal ræðumanni heimilt að svara því á tveimur mínútum. Heimilt er forseta að stytta ræðutíma hvers ræðumanns í þessum umræðum. Orðaskipti í andsvörum mega ekki standa lengur en fimmtán mínútur í einu.
Umræður um fjárhagsáætlun og ársreikninga bæjarsjóðs og stofnana hans eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar um tímatakmörk ræðutíma.
Forseta er þó heimilt að rýmka ræðutíma sé mál það umfangsmikið eða mikilvægt að ekki sé hægt að ræða það á fullnægjandi hátt innan þeirra reglna sem kveðið er á um í 1. mgr. Sömuleiðis er forseta heimilt að rýmka ræðutíma ef sérstaklega stendur á og nauðsyn krefur. Ákvörðun forseta skv. þessari málsgrein skal liggja fyrir áður en umræða hefst.
Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta.
 
25. gr.
Skylt er bæjarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna, er að að því lýtur að gætt sé góðrar reglu.
Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum, skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn, að bæjarfulltrúi, sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi, ef nauðsyn krefur.
Bæjarfulltrúar skulu gæta þess að hafa hljóð á meðan talað er úr ræðustóli.
 
26. gr.
Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál, sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður með hliðsjón af viðurkenndum fundarsköpum, sbr. 18. gr. hvort tillaga komist á dagskrá, í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.
 
27. gr.
Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu bæjarráðs, annarra ráða, stjórna, nefnda eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða, verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál, sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.
 
28. gr.
Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál, að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið, að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það, skýrir hann frá því, að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
Forseti getur ákveðið, að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall, ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti, hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram, að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Heimilt er bæjarfulltrúa að gera stutta grein fyrir atkvæði sínu.
Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.
 
29. gr.
Við atkvæðagreiðslu ræður afl atkvæða úrslitum máls. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Verði atkvæði jöfn með máli og móti fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.
Kosningar, sem fram fara í bæjarstjórn, skulu vera hlutfallskosningar skv. d'Hondts reglu sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og forsetakjör sbr. 3. mgr. 14. gr. þessarar samþykktar.
 
30. gr.
Bæjarstjórn skal skipa sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast færslu gerðabókar og ritun fundargerða.
Í gerðabók bæjarstjórnar skal skrá númer hvers fundar, hvar og hvenær hann er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók dagskrá fundar, upphafstíma fundar, fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar. Viðstaddir bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín í gerðabók við slit fundar.
Fundargerðir bæjarstjórnar skal skrá í tölvu. Í fundargerð skal getið, hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál, sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða, skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir ráða, stjórna og nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða fundargerðir er um að ræða, dagsetningu þeirra og fjölda töluliða. Bæjarfullrúar geta óskað eftir að einstakir liðir eða málefni fundargerðar verði afgreidd sérstaklega og skulu þá beina slíku erindi til bæjarstjóra, sbr. 2. tl., 2. mgr. 11. gr.
Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál í sérstaka gerðabók.
Í lok fundarins skal fundargerð prentuð, lesin upp og undirrituð af fundarmönnum. Einnig skulu bæjarfulltrúar setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerðar og blaðsíðurnar tölusettar í áframhaldandi töluröð frá síðasta fundi. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.
Bæjarfulltrúi sem vill gera athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.
Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti til notkunar í prent- og ljósvakamiðlum. Veiti bæjarstjórn leyfi til slíkra hljóðritana, skal leyfið háð því að viðkomandi fjölmiðlar fari eftir siðareglum Blaðamannafélags Íslands.
 
 
 
III. kafli.
Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.
 
31. gr.
Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum bæjarins. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf, sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, s.s. forsetastörf. Þó getur sá, sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd sama tímabil, skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.
 
32. gr.
Bæjarfulltrúa ber að gegna bæjarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarins, en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.
 
33. gr.
Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðarétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.
Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál, sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, s.s. fjárhagsáætlun, ársreikninga, eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu, ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.
Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skv. 2. og 3. tl., 2. mgr. 11. gr.
 
34. gr.
Bæjarfulltrúar eiga aðgang að bókum og skjölum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna. Með öll slík erindi skulu þeir snúa sér til bæjarstjóra.
 
35. gr.
Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til máls, sem til meðferðar er í bæjarstjórn. Heimilt er að hafa bókanir lengri þegar fjallað er um frumvarp að fjárhagsáætlun og ársreikninga bæjarsjóðs og stofnana hans. Bókanir skulu vera skriflegar.
 
36. gr.
Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það, sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum.
 
37. gr.
            Nú telur bæjarfullrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans samkvæmt 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
            Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
            Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
 
38. gr.
Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn.   Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarins skv. ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
 
39. gr.
Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig, að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega, sbr. 7. gr. samþykktar þessarar.
 
40. gr.
Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn, sem sitja bæjarstjórnarfundi.
 
 
IV. Kafli.
Almennt um ráð, stjórnir og nefndir.
 
41. gr.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Á sama fundi kýs bæjarstjórn formann og varaformann ráða sem getið er um í 1. - 5. tl. 1. mgr. 42. gr og skulu formenn og varaformenn ráðanna koma úr hópi aðal- og varabæjarfulltrúa. Nú forfallast aðalbæjarfulltrúi og skal þá sá sem sæti hans tekur í bæjarstjórn jafnframt taka sæti hans í þeim nefndum og ráðum sem hann situr í á vegum bæjarstjórnar og gegna enn fremur þeim embættum sem aðalbæjarfulltrúi hefur áður verið kjörinn til meðan hann situr sem aðalbæjarfulltrúi í bæjarstjórn.
 Kosning formanna og varaformanna ráða sem getið er um í 1. – 5. tl., 1. mgr. 42. gr. skal fara fram með þeim hætti að sá aðili sem fær flest atkvæði skal vera réttkjörin formaður en sá er fékk næst flest atkvæði varaformaður.
Formönnum og varaformönnum ráða er heimilt að sitja nefndar- og stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt í þeim fagnefndum og stjórnum sem heyra undir ráðin.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur ákveðið að víkja frá þessu ákvæði ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starf viðkomandi einstaklings er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum þrátt fyrir nefndarsetu.
 
42. gr.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í eftirtalin ráð, stjórnir og nefndir auk formanna og varaformanna ráða skv. 1. – 5. tl. á fundi sínum í júnímánuði ár hvert:
 
1.   Bæjarráð. Þrjá aðalfulltrúar í bæjarstjórn sem aðalmenn og jafnmarga til vara, samkvæmt 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
 
  1. Fjölskyldu- og tómstundaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
 
  1. Fræðslu- og menningarráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
 
  1. Umhverfis- og skipulagsráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara. 
 
  1. Framkvæmda- og hafnarráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
 
 
B.
 
Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum skal bæjarstjórn kjósa eftirtalin ráð, stjórnir og nefndir til fjögurra ára.
 
1.   Aðalfund Sambands sunnlenskra sveitarfélaga. Sex aðalmenn og jafnmargir til vara, eða skv. 3.1. gr. laga sambandsins.
 
  1. Almannavarnanefnd. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 9. gr. laga nr. 82/2008 um almannavarnir, með síðari breytingum.
 
  1. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 9. gr. laga nr. 68/1994 um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands.  
 
  1. Fulltrúaráð Sambands ísl. sveitarfélaga. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. lögum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
  1. Heilbrigðisnefnd Suðurlands. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 11. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, og samkomulagi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Vestmannaeyjabæjar um fyrirkomulag heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits í Suðurkjördæmi frá 5. janúar 2000.
 
  1. Kjörstjórnir. Þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Undirkjörstjórnir: Þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara í samræmi við fjölda kjördeilda.
 
  1. Skoðunarmenn. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
 
  1. Skólanefnd framhaldsskóla. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla og reglugerðar nr. 132/1997 um skólanefndir við framhaldsskóla.
 
  1. Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Vestmannaeyjabæjar. Einn aðalmaður og annar til vara auk bæjarstjóra, sem er formaður stjórnarinnar. Stjórn Lífeyrissjóðs    starfsmanna Vestmannaeyjabæjar fer með stjórn lífeyrissjóðsins og fjárreiður hans samkvæmt reglugerð sjóðsins frá 4. janúar 2001með síðari breytingum.
 
  1. Stjórn Náttúrustofustofu Suðurlands. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
 
  1. Þjónustuhópur aldraðra: Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Jafnframt tilnefnir héraðslæknir lækni, með sérmenntun á sviði öldrunar- eða heimilislækninga, og hjúkrunarfræðing, með þekkingu á öldrunarþjónustu. Samtök eldri borgara tilnefna einn fulltrúa úr sínum röðum. Bæjarstjórn velur þjónustuhópnum formann úr hópi nefndarmanna.
 
43. gr.
            Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið.
Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.
 
44. gr.
Flokkur eða framboðslisti sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn ráðsmann, skv. 1. - 5. tl., 1. mgr. 42. gr er heimilt að tilefna einn áheyrnarfullrúa til setu í hlutaðeigandi ráði með málfrelsi og tillögurétti. 
 
45. gr.
Bæjarstjóri boðar ráð, stjórn og nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af bæjarstjórn. Á þeim fundi skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða bæjarstjórnin kveði á um annað.
Formaður ráðs, stjórnar og nefndar boðar eða lætur boða fundi með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara, ásamt dagskrá. Dagskrá fundarins skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna, sem formaður telur nauðsynleg til að fundarmenn geti undirbúið sig fyrir fundinn.
Heimilt er formanni að senda fundarboð, dagskrá og fylgigögn með rafrænum hætti til fundarmanna.
Fundarmaður, sem óskar að fá mál tekið á dagskrá fundar skal tilkynna það formanni eða bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. 30 klukkustundum fyrir fund og í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 föstudag vegna funda sem halda á mánu- og þriðjudag þar á eftir.
Bæjarstjóri eða framkvæmdastjórar fagsviða bæjarins undirbúa ráðsfundi, skv. 1. - 5. tl., 1. mgr. 42. gr., í samráði við formann hlutaðeigandi ráðs. Geti ráðsmaður ekki sótt fund boðar hann varamann sinn og tilkynnir það til bæjarstjóra eða formanns hlutaðeigandi ráðs.
 
46. gr.
Ráðs-, stjórnar- og nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti. Þegar ráðs-, stjórnar eða nefndarmaður flyst burt úr bænum, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.
Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um ráðs-, stjórnar- eða nefndarkosningar, skal sá sem tilnefndi viðkomandi einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu samkvæmt 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
 
47. gr.
Ráðs-, stjórnar- og nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Ráð, stjórn eða nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins. Ennfremur getur ráð, stjórn eða nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.
Ráð, stjórn eða nefnd getur ákveðið með hliðsjón af 16. gr. að almenningi verði heimilaður aðgangur að fundum viðkomandi ráða, stjórnar eða nefndar.
Skylt er starfsmönum bæjarins að sitja fundi ráðs, stjórnar og nefnda sé þess óskað.
 
48. gr.
Formaður ráðs, stjórnar og nefndar stýrir fundum og sér til þess að allt fari löglega og skipulega fram á fundum. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum, sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar forseta bæjarstjórnar. Heimilt er að taka mál til meðferðar fundar þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgeiðslu slíks máls ef einhver fundarmaður óskar þess. Að öðru leyti eiga ákvæði  II. og III. kafla samþykktar þessarar að gilda um undirbúning og meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins, eftir því sem við á.
 
49. gr.
Nefndir, ráð og stjórnir bæjarins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari ráðs, stjórnar eða nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Ráð, stjórn eða nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar.  Um ritun fundargerða ráða, stjórna og nefnda gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnarinnar, sbr. 30. gr.
 
50. gr.
Um hlutverk og valdsvið ráða, stjórna og nefnda á vegum bæjarins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum og erindisbréfum, reglum eða samþykktum sem bæjarstjórn setur.
Forseti bæjarstjórnar skal úrskurða um valdsvið og mörk milli annarra ráða, stjórna eða nefnda sé vafi fyrir hendi.
 
51. gr.
Til þess að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð hjá sveitarfélaginu getur bæjarstjórn á grundvelli settra reglna eða erindisbréfs falið ráði, stjórn, nefnd eða öðrum aðilum innan stjórnsýslu bæjarins, fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka á þeirra valdsviði sem ekki varða verulega fjárhag bæjarins nema lög eða eðli máls mæli sérstaklega gegn því.
Feli bæjarstjórn eða ráð öðrum aðilum innan stjórnsýslu bæjarins skv. 1. mgr. að taka fullnaðarákvörðun, skal hlutaðeigandi ráð, stjórn, nefnd eða bæjarstjórn hafa eftirlit með afgreiðslu mála og kalla reglulega eftir skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.
Sá aðili innan stjórnsýslu bæjarins sem veitt hefur verið vald til að taka fullnaðarákvörðun, skv. 1. mgr. er ávallt heimilt að vísa ákvörðun til hlutaðeigandi ráðs, stjórnar eða nefndar til ákvörðunar.
            Á sama hátt getur þriðjungur fulltrúa í ráði, stjórn eða nefnd sem veitt hefur verið vald til að taka fullnaðarákvarðanir, skv. 1. mgr. ávallt óskað eftir því með bókun á fundi að viðkomandi ákvörðun verði skotið til bæjarstjórnar, sem mun þá taka málefnið til ákvörðunar.
 
52. gr.
            Aðili máls á rétt að fá mál hans tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá bæjarstjórn, ráði, nefnd eða embættismanni ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð og bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
            Beiðni um endurupptöku máls skal beina til bæjarráðs og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.
            Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur bæjarráð ákvörðun um málsmeðferð.
 
53. gr.
Fundargerðir ráða, stjórna og nefnda bæjarins, sem getið er í 1. mgr. 42. gr., skulu að jafnaði teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum fundi. Fundargerðir annara nefnda, sem tilnefndar eða kosnar eru skv. 43. gr. skal að jafnaði tekin á dagskrá hlutaðeigandi ráðs eða stjórnar sem slíkt gerir. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarstjórnar eða ráða eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar eða ráða ber að taka þær sérstaklega fyrir.                             
Ályktun ráðs, stjórnar eða nefndar sem hefur í för með sér útgjöld umfram áður veittar heimildir skal ætíð lögð fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.
            Nú er fyrirséð að útgjöld ráðs, stjórnar, nefndar eða stofnunar, munu fara fram úr áður veittum heimildum, og skal þá hlutaðeigandi senda með hæfilegum fyrirvara erindi til bæjarráðs og óska eftir aukafjárveitingu í þá veru.
 
54. gr.
Bæjarráð
Bæjarráð skal að a.m.k. halda fund tvisvar í mánuði og eru fundardagar að jafnaði fyrsti og þriðji mánudagur hvers mánaðar. Aukafundi skal halda, ef bæjarstjóri eða a.m.k. einn bæjarráðsmaður óska þess.
 
55. gr.
Bæjarstjóri á sæti í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétti en atkvæðirétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.
 
56. gr.
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Þá fer bæjarráð jafnframt með yfirumsjón með stjórnsýslu og starfsmannamálum bæjarins, þar með talið kjaramálum. Bæjarráð hefur umsjón með verkefnum sem tengjast atvinnulífi, frumkvöðlastarfsemi, samgöngumálum og markaðsmálum. Bæjarráð hefur umsjón með undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og bæjarfyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum bæjarstofnana lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um. Þá fer ráðið með nýtingu þess húsnæðis sem undir það heyrir auk annarra verkefna sem bæjarstjórn felur ráðinu.
Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, skv. 51. og 52. gr. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka skv. fjárhagsáætlun, s.s. til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.
Ef mál sem bæjarráð hefur heimild til að afgreiða eru samhljóða samþykkt í bæjarráði hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í bæjarráði við afgreiðslu máls bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
57. gr.
Fjölskyldu- og tómstundaráð
Fjölskyldu- og tómstundaráð skal að jafnaði halda fund einni sinni til tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda, ef bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. þrír ráðsmenn óska þess.
 
58. gr.
Fjölskyldu- og tómstundaráð fer með málefni sem tengjast framkvæmd félagsmálastarfs bæjarins, sbr. lög nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Þá fer ráðið með verkefni barnarverndarnefndar, sbr. lögum nr. 80/2002 um barnavernd, stefnumótun og framkvæmd forvarnarmála, málefna sem tengjast félagslega húsnæðiskerfinu, sbr. lög 44/1998 um húsnæðismál, verkefni tengd lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og rétt kvenna og karla, heilbrigðis- og öldrunarmál. Þá fer ráðið með nýtingu þess húsnæðis sem undir það heyrir auk annarra verkefna sem bæjarstjórn felur ráðinu.
Fjölskyldu- og tómstundaráð fer einnig með málefni sem tengjast framkvæmd íþrótta- og æskulýðsmála, þ.m.t. nýtingu íþróttamannvirkja og stjórn félagsstarfs á vegum bæjarins.
Fjölskyldu- og tómstundaráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Heimilt er að fela fjölskyldu- og tómstundaráði fullnaðarafgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans og lög mæli ekki á annan veg, skv. 51. og 52. gr. Fjölskyldu- og tómstundaráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka ráðsins.
Ef mál sem fjölskyldu- og tómstundaráð hefur heimild til að afgreiða eru samhljóða samþykkt í ráðinu hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í ráðinu við afgreiðslu máls bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar.
59. gr.
Fræðslu- og menningarráð 
Fræðslu- og menningarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni til tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda, ef bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. þrír ráðsmenn óska þess.
 
60.gr.
Fræðslu- og menningarráð fer með málefni sem tengjast grunnskólum bæjarins, sbr. lög 91/2008 um grunnskóla, málefni tónlistarskóla bæjarins, sbr. lög 75/1985 um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla og lög nr. 87/1989 um verkaskiptinug ríkis og sveitarfélaga, málefni leikskóla bæjarins, sbr. lög nr. 90/2008 um leikskóla og málefni listaskóla bæjarins. Þá fer ráðið með nýtingu skólahúsnæðis auk annarra verkefna sem bæjarstjórn felur ráðinu.
Fræðslu- og menningarráð fer með stjórn safna bæjarins og aðra þá hætti er varða menningarmál á vegum bæjarins, sem og málefni sem tengjast lögum nr. 36/1997 um almenningsbókasöfn auk annarra verkefna sem bæjarstjórn felur ráðinu.
Fræðslu- og menningarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Heimilt er að fela ráðinu fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans og lög mæli ekki á annan veg, skv. 51. og 52. gr. Ráðið ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka þess.
Ef mál sem fræðslu- og menningarráð hefur heimild til að afgreiða eru samhljóða samþykkt í ráðinu hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í ráðinu við afgreiðslu máls bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar.
61. gr.
Umhverfis- og skipulagsráð
Umhverfis- og skipulagsráð skal að jafnaði halda fund einu sinni til tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda, ef bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. þrír ráðsmenn óska þess.
 
62. gr
Umhverfis- og skipulagsráð fer með málefni skipulags- og byggingamála, sbr. lög nr. 73/1997, og umferðarmála, sbr. lög nr. 50/1987 um umferðarmál. Þá hefur ráðið á hendi sinni málefni sem tengjast náttúruvernd og umhverfismálum, þ.m.t. útivistarsvæði og fólkvanga, sbr. lög nr. 44/1999. Ráðið fer jafnframt með ráðstöfun landnytja, s.s. leigu beitilanda og garðlanda, úthlutun veiðileyfa, veitingu leyfa til búfjárhalds, sbr. lög nr. 103/2002. Einnig sér ráðið um fjallskil og fóðurgæslu og fer með hlutverk gróðurverndarnefndar, sbr. lög nr. 17/1965 um landgræðslu. Þá fer ráðið með nýtingu þess húsnæðis sem undir það heyrir auk annarra verkefna sem bæjarstjórn felur ráðinu.
Umhverfis- og skipulagsráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Heimilt er að fela ráðinu fullnaðarafgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans og lög mæli ekki á annan veg, sbr. 51. og 52. gr. Ráðið ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka þess.
Ef mál sem umhverfis- og skipulagsráð hefur heimild til að afgreiða eru samhljóða samþykkt í ráðinu hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í ráðinu við afgreiðslu máls bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
63. gr.
Framkvæmda- og hafnarráð
Framkvæmda- og hafnarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni til tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda ef bæjastjóri formaður ráðsins eða a.m.k. þrír ráðsmenn óska þess.
64. gr.
            Framkvæmda- og hafnarráð fer með yfirumsjón með öllum verklegum framkvæmdum sem bæjarstjórn ákveður, s.s. undirbúning þeirra, útboð, eftirlit og ákvarðanatöku sem þeim tengjast. Þá fer ráðið með umsjón með fasteignum-, fráveitu-, malbikunarstöð-, grjótnámi- og sorpeyðingu bæjarins. Ráðið fer með stjórn Vestmannaeyjahafnar og starfar samkvæmt ákvæðum hafnarlaga nr. 63/2001 og hafnarreglugerð fyrir Vestmannaeyjahöfn nr. 671/2005. Ráðið fer jafnframt með ábyrgð á rekstri og starfsemi Þjónustumiðstöðvar, Slökkviliðisins og sorpeyðingarstöðvar Vestmannaeyjabæjar.
            Framkvæmda- og hafnarráð gerir tillögur til bæjastjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Heimilt er að fela ráðinu fullnaðarafgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans og lög mæla ekki á annan veg, sbr. 51. og 52. gr. Ráðið ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakr málaflokka þess.
            Ef mál sem framkvæmda- og hafnarráð hefur heimild til að afgreiða eru samhljóða samþykkt í ráðinu hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í ráðinu við afgreiðslu máls bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
V. Kafli.
Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarins.
 
 
65. gr.
Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamingur skal staðfestur af bæjarstjórn.
 
66. gr.
Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins. Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar/bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarráð og bæjarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarins með sömu réttindum.
Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmálefna að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað.
Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykkt bæjarstjórnarinnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarstjórnar að veita öðrum starfsmanni bæjarins prókúru.
Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins.
Framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs gegnir störfum bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn ákveði annað. 
             
67. gr.
Bæjarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður s.s. framkvæmdastjóra fagsviða og yfirmenn stofnana og veitir þeim lausn frá störfum, nema á annan veg sé mælt í lögum og reglugerðum.
 
68. gr.
            Bæjarstjóri ræður aðra starfsmenn, en þá greint er frá í [69.]24 gr, nema á annan veg sé mælt í lögum og reglugerðum eða eftir reglum sem bæjarstjórn setur.
 
69. gr.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.
 
VI. Kafli.
Um fjármálastjórn bæjarins.
 
70. gr.
Bæjarstjórn skal afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, bæjarfyrirtækja og stofnana fyrir lok desembermánaðar ár hvert að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn skv. 20. gr. samþykktar þessarar.
Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. skal bæjarstjórn sækja skriflega um frest til samgönguráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.
Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreikninga bæjarins, og skal þar greint milli rekstraráætlunar, fjárfestingaráætlunar , áætlunar um efnahag í upphafi og lok ársog áætlunar um fjármagnshreyfingar. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um er að ræða og um ráðstöfun fjármagns á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsárs.
Bæjarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld bæjarins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum hans.
 
71. gr.
Fjárhagsáætlun skv. 72.gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði, nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn. Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda s.s. með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.
 
72. gr.
Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er bæjarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu í bæjarstjórn, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar bæjarfulltrúum með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar.
 
73. gr.
Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal bæjarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarins. Skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.
 
74. gr.
Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnarinnar skal senda samgönguráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 72. gr. og þriggja ára áætlun skv. 75. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 74. gr.
 
75. gr.
Ársreikningur bæjarsjóðs og stofnana hans skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar ár hvert. Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna.
Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana bæjarins og fyrirtækja hans eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn. Eintak af ársreikningnum skal senda samgönguráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.
 
Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. gr. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Vestmannaeyjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, nr. 782/2006.
 
Samgönguráðuneytinu 11. júlí 2008.
F.h.r.
Hermann Sæmundsson
Stefanía Traustadóttir.
Til baka...

Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.

Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason