Heimaey kertaverksmiðja - verndaður vinnustaður
Heimaey kertaverksmiðja er vinnustaður fyrir fólk sem vegna fötlunar eða örorku er með skerta starfsgetu.
Heimaey kertaverksmiðja er rekin í samræmi við lög um málefni fatlaðra, nr.59/1992 og reglugerð um atvinnumál fatlaðra nr. 376/1996. Rekstraraðili er Vestmannaeyjabær samkvæmt þjónustusamningi við Félagsmálaráðuneyti.
1. Júní 2009 var undirritað samkomulag milli Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar og Vestmannaeyjabæjar vegna starfsmanna í Heimaey og njóta þeir allra réttinda sem gilda samkvæmt því samkomulagi. Samkvæmt samningnum er hver starfsmaður í allt að 50% stöðugildi en þó með undantekningu í sérstökum tilfellum. Vinnutími er annað hvort fyrir eða eftir hádegi.
Vinnusamningur, sem skylt er að gera við nýja starfsmenn, getur falið í sér tímabundna starfsþjálfun um tímavinnu eða ótímabundna ráðningu um starfshlutfall m.v. starfsgetu skv. starfsmati að lokinni starfsþjálfun. Þeir sem rétt eiga á þjónustu geta sótt um hana á til þess gerðum eyðublöðum (hér).
Allar nánari upplýsingar gefur forstöðumaður.
Heimilisfang:
Faxastígur 46, 900 Vestmannaeyjar
Sími: 481 2905
Fax: 481 2959
Faxastígur 46, 900 Vestmannaeyjar
Sími: 481 2905
Fax: 481 2959
Heimasíða:
Forstöðumaður:
Sveinn Pálmason.
Þoskaþjálfi/ráðgjafi:
Binna Hlöðversdótt.
FUNDARGERÐIR
- 02. september - Bæjarráð
- 01. september - Umhverfis- og skipulagsráð
- 01. september - Fjölskyldu- og tómstundaráð
- 31. ágúst - Fræðslu- og menningarráð
- 25. ágúst - Framkvæmda-og hafnarráð
- 19. ágúst - Fjölskyldu- og tómstundaráð
Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.
Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason

FJÖLSKYLDAN
BÖRN OG UNGLINGAR
ELDRI BORGARAR
Ferðamenn
umhverfisverðlaun 2009



