prenta logo�tprentun af vef Vestmannaeyjab�jar
http://www.vestmannaeyjar.is




Dvalar-og hjúkrunarheimilið Hraunbúðir

Hraunbúðir er dvalar-og hjúkrunarheimili fyrir aldraða í eigu Vestmannaeyjabæjar. Húsið var gefið til Eyja í kjölfar eldgossins 1973 og hófst starfsemi þar 5 október 1974. Heimilið var í fyrstu dvalarheimili en 1987 fékkst leyfi fyrir hjúkrunar-og dagvistarrýmum við stofnunina. Á Hraunbúðum eru í dag  27  hjúkrunarrými og 13 þjónusturými, ásamt 2 rýmum fyrir skammtímavistun. Möguleigt er að einstaklingar geti komið til allt að 6 vikna skammtímavistunar(hvíldarinnlagnar) á Hraunbúðum, sé þess þörf. Samtímis geta  búið allt að 40 manns á heimilinu. Læknar frá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja veita Hraunbúðum læknisþjónustu.
Á Hraunbúðum eru einnig til staðar 10 dagvistarrými fyrir aldraða. Dvalar-og hjúkrunarheimilið er ætlað þeim öldruðum sem ekki er færir um að annast heimilishald þrátt fyrir heimaþjónustu  og aldraða sem eru of lasburða til að dveljast í þjónusturými. Þjónustan sem hver einstaklingur nýtur, fer eftir einstaklingsbundnu mati á þörfum og byggist á hjálp til sjálfshjálpar. Dagvist er stuðningsúrræði fyrir aldraða sem búa í heimahúsum. Í dagvist aldraðra er boðið uppá ferðaþjónustu milli heimilis og Hraunbúða, tómstundaiðju, aðstöðu til léttra líkamsæfinga, fæði, hvíldaraðstöðu og aðstoð við böðun. Einstaklingar sem þurfa á dagvist að halda, geta sótt hana daglega eða ákveðna daga í viku.
Á Hraunbúðum er veitt ýmis konar þjónusta. Föndurstofa er opin alla virka daga eftir hádegi. Hér er hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa. Í húsinu er starfrækt eldhús sem sér um alla matseld fyrir heimilið, ásamt matseld vegna heimsendingar til aldraðra og öryrkja og til ýmissa stofnana Vestmannaeyjabæjar.

 

 
Heimilisfang:
Dalhraun 3
900 Vestmannaeyjar
Sími:
Vakt allan sólarhringin    488 2600
Skrifstofa                       488 2602
Bítibúrið                        488 2603
Eldhús                           488 2604
Bryti                              488 2605
Hjúkrunarforstjóri          488 2606
Heimilishjálp                  488 2607
Hárgreiðslustofa            488 2608
Fótaaðgerðarstofa         488 2609
Föndurstofa                  488 2610

Fax:
488 2601
Veffang:
www.vestmannaeyjar.is
Netfang:
hraunb@vestmannaeyjar.is
Deildarstjóri málefna aldraðra:
Magnús Þór Jónasson  hraunb@vestmannaeyjar.is
Hjúkrunarforstjóri:
Lea Oddsdóttir   hjukrun@vestmannaeyjar.is
Bryti:
Tómas Sveinsson  eldhus@vestmannaeyjar.is
Heimilishjálp:
Sigurleif Guðfinnsdóttir  heimilishjalp@vestmannaeyjar.is
Opnunartímar:
Skrifstofa Mán - Fös 9.30 - 16
 
 
 
Til baka...

Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.

Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason