prenta logo�tprentun af vef Vestmannaeyjab�jar
http://www.vestmannaeyjar.is




27. 07. 2010 - Fundargerð hefur ekki hlotið afgreiðslu bæjarstjórnar.

 
 
Bæjarráð Vestmannaeyja - 2894
 
 
2894. fundur bæjarráðs Vestmannaeyja var haldinn í fundarsal Ráðhúss,
þriðjudaginn 27. júlí 2010 og hófst kl. 12.00
 
 
Mættir: Páley Borgþórsdóttir, Páll Marvin Jónsson og Páll Scheving Ingvarsson. Fundargerð ritaði Elliði Vignisson bæjarstjóri.
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. 201005057 - Fjölgun ferða Herjólfs.
Svarbréf frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dags. 15. júlí s.l. vegna óska um að ráðuneytið taki þátt í kostnaði vegna fjölgunar ferða Herjólfs úr 1360 í 1485.
 
Í svari samgöngurráðuneytisins dagsettu 15. júli við erindi er Vestmannaeyjabær sendi inn 31. maí er tekin afstaða til beiðni Vestmannaeyjabæjar um fjölgun ferða Herjólfs úr 1360 á ári í 1485. Fyrir liggur að kostnaður vegna þessara 125 ferða er rúmlega 18 milljónir og hafa Vestmannaeyjabær og Eimskip boðist til að greiða 66,6% af þeim kostnaði. Óskað var eftir 33,3% kostnaðarþátttöku samgönguráðuneytisins. Bent hefur verið á að komi ekki til viðkomandi fjölgunar ferða mun Herjólfur einungis sigla 3 ferðir á dag yfir vetrartímann og verða þá fyrstu farþegar ekki komnir til Vestmannaeyja fyrr en um 13.00. Þar með eru möguleikar til samnýtingar þjónustu milli lands og Eyja svo sem framhaldsskóla, sjúkrahúss, félagsþjónustu og fl. verulega skertir. Önnur vaxtartækifæri eru einnig verulega skert.
 
Afstaða samgönguráðuneytisins er sú að ekki sé tímabært að taka afstöðu til téðrar beiðni enda séu engar fjárveitingar á fjárlögum til þess. Ráðuneytið mun hins vegar taka málið til skoðunar þegar reynsla hefur fengist af siglingu skipsins milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.
 
Bæjarráð harmar þá afstöðu sem fram kemur í svarbréfi samgönguráðuneytisins. Þar til endanlegt svar fæst er ekki hægt að hefja undirbúning vetrarstarfs og skaðinn fyrir ferðaþjónustu og atvinnulífið almennt er nokkur. Bæjarráð ítrekar það sem áður hefur komið fram um að það séu ferðir Herjólfs sem eru samgöngur við Eyjar, ein og sér skilar Landeyjahöfn ekki bætum samgöngum.
 
Bæjarráð fagnar þó því sem fram kemur í bréfi ráðuneytisins þar sem segir: „Ráðuneytið mun hins vegar taka málið til skoðunar þegar reynsla hefur fengist af siglingum skipsins milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.“ Því felur bæjarráð bæjarstjóra að fylgjast vandlega með reynslu af siglingum í Landeyjahöfn fram að hausti og hefur þá trú að reynslan sýni að framboð ferða er grundvöllur þess að fjögur þúsund milljóna framkvæmd við hafnargerð nýtist samfélögum beggja megin við hafið. Fyrstu dagar siglinga í Landeyjahöfn sýna svo ekki verður um villst að þörfin fyrir tíðar ferðir er mikil en fyrstu 5 dagana ferðuðust 8110 farþegar með Herjólfi milli lands og Eyja.
 
Til að koma í veg fyrir að sóknarfærum sé fórnað með of fáum ferðum Herjólfs samþykkir bæjarráð að greiða þann kostnað sem samkomulag Vestmannaeyjabæjar og Eimskipa gerði ráð fyrir að félli á samgönguráðuneytið. Þetta er gert í þeirri fullvissu að heildar tjón samfélagsins verður margfalt ef ekki verður viðunandi ferðafjöldi yfir vetrartímann.
 
 
2. 201006084 - Lundaveiði 2010
 
Bæjarráð samþykkir að gera breytingar á fyrirkomulagi við innheimtu leigugjalda fyrir nytja- og leigurétt bjargveiðifélaga. Samþykktin felur í sér að gjaldið mun hér eftir verða tvískipt þar sem annarsvegar verður rukkað fast leigugjald og hinsvegar fyrir fjölda veiðidaga. Leiguverð er mismunandi eftir áætluðum hlunnindum hvers bjargveiðifélags. Hæsta verð greiðir veiðifélagið Heimaey en lægsta gjald greiða veiðifélögin í Hana og Hænu.
 
Bæjarráð samþykkir að gjaldtaka verði sem hér segir:
Gjaldtaka til 2010 Gjaldtaka 2010
Gjald Veiðid. Dagurkostar dagar Veiðid.mv. 5 d. Fastagjald Fast+veiði Mismunur
Heimaey 139.336 45 3.096 5 15.482 95.000 110.482 28.854
Elliðaey 100.560 45 2.235 5 11.173 65.000 76.173 24.387
Álsey 100.560 45 2.235 5 11.173 65.000 76.173 24.387
Bjarnarey 100.560 45 2.235 5 11.173 65.000 76.173 24.387
Ystiklettur 100.560 45 2.235 5 11.173 65.000 76.173 24.387
Suðurey 67.110 45 1.491 5 7.457 35.000 42.457 24.653
Hellisey 53.823 45 1.196 5 5.980 35.000 40.980 12.843
Stórhöfði  102.281 45 2.273 5 11.365 70.000 81.365 20.916
Brandur 53.823 45 1.196 5 5.980 35.000 40.980 12.843
Hani 10.008 45 222 5 1.112 9.000 10.112 -104
Hænu 10.008 45 222 5 1.112 9.000 10.112 -104
Hrauney 13.000 45 289 5 1.444 11.500 12.944 56
Súlnasker 87.124 45 1.936 5 9.680 60.000 69.680 17.444
     
 
3. 201007038 - Heildarendurskoðun á reglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Starfshópur samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga leggur til að regluverki sjóðsins verði breytt í tveimur áföngum. Fyrst verði tekið upp nýtt kerfi útgjaldajöfnunar og síðan gerð grundvallarbreyting á jöfnunarkerfinu.
 
Bæjarráð fagnar heildarendurskoðun á reglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Jöfnunarsjóður er mikilvægur tekjupóstur fjölmargra sveitarfélaga og á það ekki síst við um sveitarfélög á landsbyggðinni. Bæjarráð fagnar sérstaklega hugmyndum um að sérstaklega verði metin útgjaldaþörf sveitarfélaga. Þar skiptir máli að greina strax að þau sveitarfélög sem standa frammi fyrir meiri útgjöldum vegna landfræðilegrar legu og annarra einkenna og veita sérstök framlög til slíks. Skýrt dæmi um slíkt eru td. Vesmannaeyjabær og sveitarfélagið Hornafjörður þar sem bæjarsjóður verður fyrir verulega auknum útgjöldum til menningarmála, atvinnumála og æskulýðs- og íþróttamála en mörg önnur sveitarfélög þar sem samstarf við önnur sveitarfélög í þessum málaflokkum er ekki kostur vegna fjarlægðar.
 
Í skýrslu starfshópssins er nokkuð rætt um samráð á milli sveitarfélaga og ríkisins um hagstjórn. Það er ljóst að á mesta þenslutímanum voru ákvarðanir sem sveitarfélög og ríkið tóku ekki í takt. Þannig dró ríkið mjög úr fjárfestingum á meðan sveitarfélög jukust víða við. Hér skiptir máli að átta sig á að hagsveiflan getur verið mjög ólík á milli landshluta á hverjum tíma. Á meðan uppsveifla var á SV horninu stóðu mörg landssvæði í stað. Jöfnunarsjóður verður að taka tillit til þess háttar veruleika.
 
 
4. 201007067 - Umsögn vegna umsóknar Hlyns Más Jónssonar f.h. Þrenningar ehf. um tímabundið áfengisleyfi f. Pizza 67.
Erindi frá sýslumanninum dags. 23. júlí þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar á tímabundnu áfengisleyfi í tengslum við Þjóðhátíð og til að hafa Pizza 67 opinn til kl. 06.00 aðfaranótt fimmtudagsins 29. júlí, föstudagsins 30. júlí og þriðjudagsins 3. ágúst. Einnig er óskað eftir því að hafa garðinn opinn til kl. 02.00 þessa sömu daga en til kl. 10.00 á föstudags, laugardags- og sunnudagskvöldinu.
 
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
Þá áréttar bæjarráð það skilyrði að veitingastarfsemi í garði valdi ekki truflun fyrir nágranna.
 
 
 
5. 201007053 - Umsögn vegna umsóknar Einars Björns Árnasonar f.h. Einsa Kalda ehf. um tímabundið áfengisleyfi.
Sótt eru um tímabundið áfengisleyfi fyrir Einsa Kalda kt. 420408-1960 frá 29. júlí til 2. ágúst milli kl. 13.00 - 19.00 á daginn.
 
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
6. 201007048 - Umsögn vegna umsóknar Einis Ingólfssonar f.h. Ísjakans ehf.
Erindi frá sýslumanninum 19. júlí þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Einis Ingólfssonar f.h. Ísjakans um tækifærisleyfi í tengslum við Þjóðhátíð til að hafa verslunina Ísjakann lengur opinn frá fimnmtudeginum 29. júlí til mánudagsins 2. ágúst nk. Óskað er eftir því að verslunin fái leyfi til að vera með opið eins lengi og mögulegt er.
 
Bæjarráð bendir á fjallað var um athugasemdalista nágranna við Ísjakann Brimhólabraut 1 á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 13. júlí og í framhaldi af því veitti ráðið einnig umsögn um fyrirliggjandi beiðni. Af greiðsla þess var svo hljóðandi:
 
Ráðið veitir jákvæða umsögn varðar nætursölu, en leggur jafnframt til að leyfið verði skilyrt til kl. 03.00 umsótta daga þar sem starfsemi Ísjakans er í miðju íbúðarhverfi.
 
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið en tekur undir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs hvað varðar takmörkun á opnunartíma. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
7. 201007055 - Umsögn vegna umsóknar Guðmundar Þórs Sveinssonar vegna breytinga á afgreiðslutíma Volcano Cafe og umsóknar Jóns Inga Guðjónssonar vegna breytinga á afgreiðslutíma Lundans og Prófastsins.
Erindi frá sýslumanninum dags. 22.júlí s.l. þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um breytingu á afgreiðslutíma á Volcano Café, Lundanum og Prófastinum til kl. 06.00 aðfaranótt fimmtudagsins 29. júlí og aðfaranótt föstudagsins 30. júlí. Einnig er óskað eftir því að hafa Lundann og Prófastinn opinn til kl. 06.00 aðfaranótt þriðjudagsins 3. júlí.
 
 
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
 
8. - Umsögn vegna umsóknar Stefáns Ólafssonar fh Brands efh vegna breytinga á afgreiðslutíma Conero.
Erindi frá sýslumanninum dags. 27.júlí þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um breytingu á afgreiðslutíma á Conero til kl. 03.00 aðfaranótt fimmtudagsins 29. júlí og aðfaranótt föstudagsins 30. júlí.
 
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Umsögnin er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur.
 
 
Fundi slitið kl. 12.50
 
 
 
 
 

Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.

Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason