prenta logo�tprentun af vef Vestmannaeyjab�jar
http://www.vestmannaeyjar.is




11. Jún. 2010 kl.11:35

Gæsluvöllurinn við Miðstræti

Gæsluvöllurinn við Miðstræti
 
Vestmannaeyjabær starfrækir gæsluvöll yfir sumarmánuðina og er hann staðsettur við Miðstræti.
Frá 21. júní til 20. ágúst verður opið alla daga milli kl. 13 og 16:00. Foreldrar geta komið með börn sín á þessum tímum og falið þau umsjón starfsmanna.

Gæsluvöllurinn er ætlaður börnum á aldrinum 20 mánaða til 6 ára en þar geta þau leikið sér með öðrum börnum í öruggu umhverfi. Börnin borða nesti um miðjan daginn sem þau koma með sjálf. Daggjald á gæsluvöllinn er kr. 450. Einnig er hægt er að kaupa kort sem dugir í 10 skipti. Slíkt kort kostar 3.500 kr.
 
 
Nokkur mikilvæg atriði fyrir foreldra
Mikilvægt er að góð samvinna takist með foreldrum og starfsfólki á leikvellinum. Því er lögð áhersla á að foreldri eða aðrir nákomnir dvelji með barninu fyrstu dagana.
Eðlilegast er að fara hægt af stað og takmarka dvalartíma barnsins fyrst um sinn.
 
Skylt er að fylgja börnunum milli leikvallar og heimilis og sækja þau fyrir kl. 16:00.
 
Starfsfólk ákveður í samráði við foreldra hversu lengi barnið dvelur hverju sinni.
Foreldrum eða aðstandendum barna ber að skilja eftir símanúmer þar sem hægt er
að ná í viðkomandi meðan á dvöl barnsins stendur.
 
Hafið barnið búið eftir veðri er það sækir leikvöllinn með nesti og sólarvörn.
 
Gæsluvöllurinn er ekki hugsaður sem dagvistunarúrræði eða staðgengill leikskóla.
Heimilisfang:
Gæsluvöllurinn við Miðstræti, 900 Vestmannaeyjum
Sími:
841-1133
Opnunartímar: 21. júní til 20. ágúst, mánudaga – föstudaga kl. 13:00 – 16:00
Forstöðumaður gæsluvallar sumarið 2010 er Sigurleif Kristmannsdóttir

Til baka...

Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.

Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason