Greiðslur
Er hægt að greiða reikninga frá bænum ,sjálfkrafa með greiðslukorti?
Já, hægt er að greiða reikninga fyrir húsaleigu, ,dagvistargjöld (leikskólagjöld), fasteignagjöld, skólamáltíðir og heimilishjálp með Visa boðgreiðslum. Hægt er að smella á https://www.valitor.is/Default.aspx?PageID=1496 og skrá sig.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Hvenær þarf maður byggingarleyfi?
Í 1. málgrein 11. greinar byggingarreglugerðar nr. 441 frá 1998 segir:
“Óheimilt er að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta því að innan eða utan, burðarkerfi þess, formi, svipmóti eða notkun þess eða gera önnur þau mannvirki sem falla undir ákvæði reglugerðar þessarar nema að fengnu leyfi viðkomandi sveitarstjórnar.”
Enn fremur segir í 7. málsgrein 12. greinar sömu reglugerðar:
“Sækja skal um leyfi byggingarnefndar ef fyrirhugað er að klæða og/eða einangra byggingu að utan, breyta burðarvirki eða endurnýja burðarvirki eða ef viðgerð er fyrirhuguð á byggingu sem hefur í för með sér niðurbrot og endurgerð á hluta steypts burðarvirkis, t.d. veggja og svala.”
Hvernig sæki ég um byggingarleyfi?
Skipulags- og byggingarnefnd Vestmannaeyja fjallar um byggingarleyfisumsóknir. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, sem nálgast má http://xtreme.is/net/skraarsafn/vestmannaeyjar_is/1073558900.pdf ,á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, eða á skrifstofu Umhverfis- og framkvæmdasviðs að Tangagötu 1. ,
Byggingarleyfisumsóknum skulu a.m.k. fylgja byggingarnefndateikningar og skráningartafla, sé bygging eða starfsemi hins vegar sérstaks eðlis getur byggingarfulltrúi krafist þess að tilteknir séruppdrættir ásamt greinargerð fylgi með umsókn.
Hvernig sæki ég um lóð?
Hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar er að finna lista yfir lausar lóðir í Vestmannaeyjum. , Sótt er um lóð með því að fylla út þar til gert eyðublað, sem hægt er að nálgast á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar http://xtreme.is/net/skraarsafn/vestmannaeyjar_is/1071173487.pdf , og skrifstofu Umhverfis- og framkvæmdasviðs að Tangagötu 1, og skila inn á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa á Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyja að Tangagötu 1. , Skipulags- og byggingarnefnd fjallar svo um lóðarumsóknir og tilkynnir umsækjanda um afgreiðslu um leið og hún liggur fyrir.
Endurbótalán
Sótt er um endurbótalán til íbúðalánasjóðs. Íbúðalánasjóður afgreiðir ekki endurbótalán fyrr en staðfesting frá óháðum aðila, til að mynda byggingarfulltrúa, liggur fyrir um að verkið hafi verið unnið á þann veg sem fram kemur í verklýsingu. Skipulags- og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja framkvæmir slíka úttekt enda hafi verið rétt staðið að framkvæmdum og tilskilinn leyfi liggja fyrir.
Hvar nálgast ég teikningar af húsinu mínu?
Ljósrit af teikningum húsa í Vestmannaeyjum má nálgast á Kortaveg Vestmannaeyjabæjar og á Umhverfis- og framkvæmdasviði. Hægt er að hringja í síma 488-5030 eða senda rafpóst til ritara Umhverfis- og framkvæmdasviðs, inga@vestmannaeyjar.is og teikningarnar munu liggja fyrir næsta virka dag á skrifstofu Umhverfis- og framkvæmdasviðs að Tangagötu 1.
Almennar upplýsingar um húsaleigubætur
Lög um húsaleigubætur nr. 138/1997 tóku gildi 1. janúar 1998. Markmið laganna er að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda og að draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaðnum. Umsókn um húsaleigubætur skal skila til lögheimilissveitarfélags umsækjanda.
Reikniforrit fyrir húsaleigubætur
FUNDARGERÐIR
- 02. september - Bæjarráð
- 01. september - Umhverfis- og skipulagsráð
- 01. september - Fjölskyldu- og tómstundaráð
- 31. ágúst - Fræðslu- og menningarráð
- 25. ágúst - Framkvæmda-og hafnarráð
- 19. ágúst - Fjölskyldu- og tómstundaráð
Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.
Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason

FJÖLSKYLDAN
BÖRN OG UNGLINGAR
ELDRI BORGARAR
Ferðamenn
umhverfisverðlaun 2009



